Organistablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 14
Ný orgel:
Nýtt 72 radda orgel í Hallgrímskirkju
Hinn 13. desember 1992 var merkur dagur í sögu kirkjutónlistar á íslandi. Þá voru vígð
ný orgel í þremur íslenskum kirkjum. { Lágafellskirkju í Mosfellsbæ var vígt 14 radda
orgel smíðað af Björgvini Tómassyni og í Neskaupstað var vígt 17 radda orgel smíðað af
P. Bruhn & S0n í Danmörku. Sagt er frá þessum orgelum á öðrum stað í blaði þessu. Þá var
stærsta orgel íslands vígt í Hallgrímskirkju, 72 radda orgel, smíðað af Klais
orgelsmiðjunni í Bonn í Þýskalandi.
Saga orgels Hallgrímskirkju
Orgel í Hallgrímskirkju á sér langa sögu. Hugmynd um stórt orgel virðist hafa fæðst
með fyrstu hugmyndum um kirkju á Skólavörðuhæð upp úr síðustu aldamótum. Árið 1940
var Dómkirkjuprestakalli skipt og voru þá fjórar sóknir í Reykjavík, þ.e. Dómkirkju-,
Nes-, Hallgríms- og Laugamesprestakall. 1945 var svo hafist handa við að reisa
Hallgrímskirkju og árið 1948 var kórkjallarinn vígður sem kapella hins unga safnaðar,
sem áður hafði sótt guðsþjónustur í bíósal Austurbæjarskóla. Árið 1956 var keypt 14
radda tékkneskt Rieger-Kloss orgel og sett upp þar. Það var Kvenfélag Hallgrímskirkju
sem stóð að þeim kaupum. Bygging Hallgrímskirkju hélt áfram og þegar farið var að reisa
turninn í byrjun 7. áratugarins var farið að ræða um staðsetningu orgelsins. Niðurstaðan
þá varð sú að stefnt skyldi að því að það yrði staðsett inni í turninum, uppi á palli, en
orgelstúkan yrði á gólfinu með aðstöðu fyrir kór og hljóðfæraleikara umhverfis.
Þegar kirkjusalurinn í suðurálmu turnsins var vígður árið 1974 var Rieger-Kloss orgelið
flutt þangað. Th. Frobenius og Spnner Orgelbyggeri í Danmörku smíðuðu árið 1985 tíu
radda orgel fyrir kirkjusalinn og var það vígt á þriðja sunnudegi í aðventu það ár. Hið
hljómfagra Frobeniusar-orgel var síðan flutt í kirkjuskipið stóra fyrir vígslu
Hallgrímskirkju og hljómaði þar í fyrsta skipti á vígsludegi 26. október 1986. Núna
gegnir það hlutverki kórorgels.
Staerð, staðsetning og orgelsmiður
Þegar hilla tók undir vígslu stóra kirkjuskipsins fór að koma skriður á umræðuna um
smíði stórs konsertorgels og þá fyrst sérstaklega varðandi staðsetningu þess og umfang.
Var m.a. haldinn langur vinnufundur í kirkjunni þar sem hljómburðarfræðingur var
fenginn frá Þýskalandi til að fjalla um þessi mál.
Síðari hluta árs 1987 var endanlega ákveðið að orgelið skyldi vera 70 raddir, fjögur
nótnaborð, handstýrt með rafstýrðu raddvali og staðsett í turnopi fyir kirkjudyrum. Þrjú
tilboð bárust í smíðina; frá Th. Frobenius og Spnner í Danmörku, Klais Orgelbau í
Þýskalandi og Rieger Orgelbau í Austurríki.
Sóknarnefnd skipaði sérstaka nefnd sérfræðinga um val orgelsins. Hlutverk
nefndarinnar var að taka faglega afstöðu til þeirra, gera samanburð á teikningum og
raddvali og að miðla öllum hugsanlegum upplýsingum um orgelsmíðina. Að vandlega
athuguðu máli komst nefndin að þeirri niðurstöðu að taka ætti tilboði Klais-
orgelsmiðjunnar og í mars 1988 ákvað sóknarnefnd Hallgrímskirkju að ganga til
samninga við Klais-orgelsmiðjuna í Bonn. Næstu mánuðir fóru í útlitshönnun orgelsins
og umgjörðar þess og voru samningar við Klais um smíði orgelsins undirritaðir 31.
október 1989.
14 ORGANISTABLAÐIÐ