SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Blaðsíða 38

SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Blaðsíða 38
38 24. janúar 2010 Þ að var í tengslum við 50 ára af- mæli Íþróttafélags Reykjavíkur árið 1957 sem farið var að kanna möguleika á því að körfuboltalið félagsins færi utan til keppni og fóru þar fremstir í flokki Helgi Jóhannsson, Ingi Þór Stefánsson og Gunnar Petersen. Þjálfari ÍR á þeim tíma, Evald Mikson, benti þeim á austur-þýskan íþróttaháskóla í Leipzig, DHfK, og þar á bæ var áhuginn mikill. Svo fór reyndar að Austur-Þjóðverjarnir komu fyrst til Íslands, 1958, en ÍR-ingar end- urguldu þá heimsókn árið eftir ásamt tveimur leikmönnum úr röðum Körfu- knattleiksfélags Reykjavíkur, KFR. Hópurinn fór utan í ágúst 1959 og leik- irnir urðu átta. Guðmundur Þorsteinsson, hinn stóri og sterki miðherji ÍR-inga, var aðeins 16 ára þegar þetta var og upplifunin því mikil. Þegar ÍR-ingana bar að garði var að hefjast árleg stórhátíð í Leipzig; Deutsches Turn und Sportfest, þar sem keppt var í fjölda íþróttagreina. Nánast öllum sem nöfnum tjáir að nefna nema skíðaíþróttinni, segir hann. „Auk þess voru haldnar miklar fim- leikasýningar á hátíðinni með allt að 1900 manns á vellinum í senn. Það var því ekki að undra þótt hvarvetna gæfi að líta ungt fólk í nýjum íþróttabún- ingum en í Leipzig bjuggu þá um 730 þús- und manns en talið að um 200 þúsund íþróttamenn- og konur hefðu tekið þátt í hátíðinni þessa daga.“ Austurþýska íþróttasambandið rak níu íþróttaskóla á þessum tíma en af þeim var skólinn í Leipzig, DHfK, Deutsche Hochsc- hule für Körperkultur, langstærstur að sögn Guðmundar og aðstaða frábær að öllu leyti. Auk heimamanna var það íþróttafólk frá m.a. Tékkóslóvakíu, Rússlandi, Finnlandi, Marokkó, Túnis, Víetnam, Kína, Írak, Kór- eu, Sýrlandi, Póllandi og Íslandi, auk 17.000 Vestur-Þjóðverja sem tóku þátt í mikilli skrúðgöngu lokadag hátíðarinnar. Langt ferðalag Flogið var frá Íslandi til Kaupmannahafnar, með millilendingu í Gautaborg og eftir tvær nætur í Höfn farið með lest til Gedser á suðurodda Falsturs. Þaðan var svo siglt með ferju yfir til Warnemünde í Austur- Þýskalandi. Við komuna, undir kvöld, tók við ströng vegabréfa- og tollskoðun, segir Guðmundur. „Að beiðni Þjóðverjanna höfðum við tekið með okkur ógrynni af kaffi og sígarettum og vorum við af þeim sökum teknir afsíðis og spurðir út í þessa vöruflutninga.“ Þegar tollvörðunum þótti málið skýrt var Íslendingunum hleypt inn í landið. Þá var sest upp í fjórtán manna Garant, heldur þröngan farkost fyrir körfuknattleiksmenn, sem fyrirliði gest- gjafanna ók á leiðarenda. Gist var eina nótt á leiðinni. Sums staðar var heldur eyðilegt um að litast, sveitabæir í niðurníðslu, óhrein þorp og fátt fólk á ferli. Á milli þorpa og bæja voru vegirnir yfirleitt ágætir en inni í þéttbýliskjörn- unum víða mjög slæmir og oft líka sund- urgrafnir svo krókaleiðir þurfti að fara til að komast leiðar sinnar. Komið var til Leipzig að kvöldi og þar var annað upp á teningnum,“ segir Guðmundur. Hópurinn fékk inni í tveggja hæða glæsivillu, með mörgum herbergjum, stórum matsal og víðáttumiklum garði. „Það var rúmt um okkur alla, eldabuskur í eldhúsinu og bíll til reiðu að aka okkur hvert sem fara þurfti. Fæðið var gott en að vísu heldur einhæft og ekki alltaf nóg handa matlystugum og þurftafrekum íþróttamönnum. En greinilegt var að Þjóðverjarnir vildu launa okkur vel þann góða viðurgerning sem þeir höfðu notið í heimsókn sinni til Íslands árið áður.“ Leirvöllur og gola Þjóðverjarnir höfðu í tengslum við hátíð- ina efnt til fjölþjóðlegs körfuboltamóts á útivelli við íþróttaháskólann í Leipzig þar sem ÍR var eitt fjögurra þátttökuliða. Mótherjarnir voru landslið Austur- Þýskalands og Finnlands og úrval úr rúss- ÍR-ingarnir í Austur- Þýskalandi. Fremri röð frá vinstri: Haukur Hannesson, Þor- steinn Hallgrímsson, Lárus Lárusson og Einar Ólafsson. Aftari röð frá vinstri: Helgi Jóhannsson, Einar Matthíasson, Guð- mundur Þorsteinsson, Guðmundur Að- alsteinsson, Ingi Þór Stefánsson, Hólm- steinn Sigurðsson og Gunnar Petersen. Í ferðinni voru einnig Gunnar Oddur Sig- urðsson og Guð- mundur Þórarinsson fararstjóri en hvor- ugur er á myndinni. Ævintýri austan tjalds Fyrir hálfri öld var það ekki daglegt brauð að íslenskir íþróttamenn færu utan til keppni en síðsumars 1959 hélt hópur vaskra körfubolta- manna í ævintýraferð til Austur-Þýskalands. Guðmundur Þorsteinsson rifjar hér upp ferðina. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Guðmundur Þorsteinsson var aðeins 16 ára þegar ÍR-ingar fóru til Austur-Þýskalands. Hér gnæfir hann yfir landsliðsmanninn Günther Laudert. Þorsteinn Hallgrímsson er til hægri. Ferðalög
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.