Ísfirðingur - 11.07.1962, Blaðsíða 4
SIAÐ TRAMSÓKNAKMANNA / VCSTFJARDAKJÖKDÆMI
Frá
w
Vestur - Isf ir ðinga
Dánardægur
Bessabe Halldórsdóttir, Kirkju-
bóli í Bjarnardal í önundarfirði,
andaðist 26. júní s.l. Hún var fædd
á Hóli á Hvilftiarströnd 4. desem-
ber 1877. Foreldrar hennar voru
þau hjónin Halldór Halldórsson og
kona hans Guðrún Jónsdóttir, er
þá bjuggu að Hóli. Á fyrsta ald-
ursári var Bessabe tekin til fósturs
að Þorfinnsstöðum í önundarfirði,
en þar bjó Iþá Eiríkur Halldórsson
föðurbróðir hennar. Árið 1901
giftist hún Kristjáni Guðmunds-
syni frá Kirkjubóli í Bjarnardal,
og þar hófu iþau búskap fáum ár-
um síðar. Kristján andaðist 31.
október 1920, eftir langvarandi
veikindi.
Þeim hjónum varð fjögurra
bama auðið. Þau em: Ólafur Þ.
skólastjóri í Hafnarfirði, Guð-
mundur Ingi, skáld, Halldór, bóndi
og Jóhanna, öll búsett að Kirkju-
bóli í Bjarnardal.
Þá ól Bessabe upp fjóra fóstur-
syni. Jafnan var margt barna um
lengri og skemmri tíma á heimili
hennar.
Bessabe Halldórsdóttir var kona
mikillar gerðar, gáfuð og dugmik-
il, og heimili hennar jafnan talið
til fyrirmyndar að mörgu leyti.
Jarðarför hennar var gerð frá
Holtskirkju föstudaginn 6. þ.m. að
viðstöddu fjölmenni.
J.Á.J.
Þorbjörn Eggertsson, verzlun-
armaður, lézt í Reykjavík í júní,
og var jiarðsettur hér á ísafirði
16. sama mán. — Hann var fædd-
ur 28. desember 1880, ættaður úr
Hrútafirði, en fluttist ásamt föður
sínum lí Vatnsfjörð með séra Páli
Ólafssyni um aldamótin, og var
þar vinnumaður um skeið. Kona
Þorbjöms var Rósa Aradóttir frá
Uppsölum, dáin 1939. Böm þeirra
eru: Guðbjörg leikkona og Eggert
verkamaður. Meðal bama Rósu frá
fyrra hjónabandi er Þorgerður
Bogadóttir, kona Guðmundar Pét-
urssonar kaupmanns. — Starfaði
Þorbjörn lengstum við verzlun
Guðmundar, fyrst hér í bænum og
síðan í Reykjavík. — Þorbjörn var
prúður maður í framgöngu, vand-
aður og vel látinn.
K.J.
EINS OG frá var sagt í síðasta
blaði verður kjördæmisþing fram-
sóknarmanna í Vestfjarðakjör-
dæmi haldið að félagsheimilinu
Sævangi í Strandasýslu dagana
28. og 29. þ.m., og hefst þingið
kl. 3 e.h. laugardaginn 28. þ.m.
Rétt til setu á þinginu eiga um 40
fulltrúar úr hreppum kjördæmis-
ins og úr Isafjarðarkaupstað, svo
og alþingismenn Framsóknar-
flokksins lí kjördæminu.
50 ÁRA afmæhs H.V.Í. var minnst
11. júní s.l. með samsæti að Núps-
skóla. Voru þar saman komnir 83
gestir sambandsins víðs vegar að.
Hófinu stjómaði Sigurður R. Guð-
mundsson formaður sambandsins.
Ræður fluttu: Sigurður R. Guð-
mundsson, um starfsemi sam-
bandsins og framtíðaráform, Hall-
dór Kristjánsson frá Kirkjubóli
flutti minni sambandsins, Tómas
Jónsson skólastjóri flutti minni
kvenna og Jón F. Hjartar flutti
minni Islands.
Þá voru kjörnir iheiðursfélagar
sambandsins. Þeir voru: Bjöm
Guðmundsson fyrrv. skólastjóri og
formaður sambandsins í 34 ár,
Bjarni ívarsson fyrv. bóndi, Stefán
Pálsson bóndi Kirkjubóli, Kristján
Davliðsson bóndi Neðri-Hjarðardal,
Jóhannes Davíðsson bóndi Neðri-
Hjarðardal og ólafur H. Kristjáns-
son skólastjóri Reykjaskóla.
Þá voru eftirtaldir menn sæmd-
ir heiðursskildi sambandsins: Séra
Eiríkur J. Eiríksson Þingvöllum,
Guðmundur Ingi Kristjánsson
skáld, Halldór Kristjánsson bóndi
Kirkjubóli, Helgi Guðmundsson
Brekku, Hjörtur Hjálmarsson
skólastjóri Flateyri, Jón F. Hjart-
ar, Flateyri, Ólafur Þórðarson
Akranesi og Viggó Nathanaelsson
Reykjavík.
Formaður þakkaði hinum ný-
JÚNÍMÁNUÐUR viar óvenju
stormasamur um Vestfirði. Sjó-
ferðirnar því færri en ella og afla-
fengurinn í heild rýr víðast hvar.
— Dragnótaveiðar voru teknar
upp frá Patreksfirði, Tálknafirði,
Bíldudal og Þingeyri og Isafirði.
Patreksfjörður. Sjö þilfarsbátar
þaðan, frá 6—24 lesta, tóku upp
dragnótaveiðar um miðjan mánuð-
inn. Þrír þeirra lögðu afla sinn í
hraðfrystihúsið á Tálknafirði. —
Bátarnir, sem lönduðu á Patreks-
firði, voru: Freyja, er fékk 23
lestir, Skúli Hjartarson með 17
lestir, Steinbjörg með 6 lestir.
Margt smábáta með tveimur
mönnum og einum stunduðu færa-
veiðar og línuveiðar á víxl. Voru
það 10—11 bátar, sem veiðarnar
kjömu heiðursfélögum og skjald-
arhöfum fórnfúsa og örugga for-
ustu í þágu sambandsins og voru
þeir hylltir með húrrahrópum.
Að loknu matarhléi var orðið
gefið frjálst, og margar ræður
fluttar ýmist í bundnu eða ó-
bundnu máli. Þeir sem tóku til
máls voru:
Bergur Torfiason, Bjarni ívars-
son, Gísli Vagnsson, Guðjón
Davíðsson, Guðmundur Ingi Krist-
jánsson, Gunnlaugur Finnsson,
Guðný Gilsdóttir, Halldór Krist-
jánsson, Kristján Davíðsson. Sið-
astur gesta talaði Björn Guð-
mundsson. Lagði hann út af orð-
unum „Orkunýting er menning".
Þá ræddi hann um fósturjörðina,
og þann yl, sem hver einstaklingur
væri skyldur til að gefa með ialúð,
einlægni og fórnarlund í starfi fyr-
ir hana. í lok ræðu sinnar flutti
hann bænina: Faðir vor.
Að lokum sleit formaður, Sig-
urður R. Guðmundsson, samsætinu
með stuttri ræðu. Þakkaði hann
árnaðaróskir og hlýhug til sam-
bandsins. Þá þakkaði hann mönn-
um komuna um leið og hann hvatti
menn til aukinna átaka og sam-
heldni í félagsstarfinu.
Mikill og hressilegur söngur var
á milli ræðuhalda og var hófið hið
ánægjulegasta.
stunduðu að staðaldri, en auk
þeirra margt báta í ígripum. Afli
sæmilegur, en langsótt. Aflahæstu
bátarnir, Sverrir og Hringur, fengu
11 lestir hvor.
Tálknafjörður. Þrír dragnóta-
bátanna frá Patreksfirði, Hersir,
Mummi og Vestfirðingur, lögðu
afla sinn í hraðfrystihúsið þarna
og ennfremur einn, heimabátur,
Höfrungur frá Suðureyri. Afli
þeirra sæmilegur og góður með
köflum. Mummi fékk mest, um 14
lestir i rúma viku. Þrír smábátar
úr Firðinum voru á færaveiðum.
Afli þeirra rýr.
Bíldudalur. Fjórir bátar þaðan,
Dröfn, Frigg, Freyja, Jörundur,
voru á dragnótaveiðum. Afli þeirra
rýr, en Ókunnugt um aflamagnið
flngfélao Islands 25 ára
FL.UGFÉLAG ISLANDS h.f. átti
nýlega aldarfjórðungsafmæli, en
það var stofnað á Akureyri 3. júní
1937. Aðalhvatamaður að stofnun
félagsins var Agnar Kofoed-Han-
sen, núverandi flugmálastjóri. Vil-
hjálmur Þór, núverandi banka-
stjóri, átti og mjög veigamikinn
þátt í stofnun félagsins.
Starfsemi félagsins hefur vaxið
jafnt og þétt, og er saga þess hin
merkastia. Um 78000 farþegar ferð-
uðust á s.l. ári með flugvélum fé-
lagsins, og fluttar voru um 1100
smáL af vörum á sama tíma.
Brúttótekjur félagsins námu á
s.l. ári um 113 milljónum króna.
GJafir til slysavarna
NÝLEGA var karladeild Slysa-
vamafélagsins á Isafirði fært 30
þús. kr. sem minningargjöf um
hjónin Guðrúnu Jónsdóttur og Júl-
íus Geirmundsson frá Atlastöðum
í Fljótavík. Gefendur eru börn
þeirra hjóna og aðrir nánir vanda-
menn.
Gjöfinni skal varið til þess að
fullgera skipbrotsmannaskýlið í
Fljótavík, er reist var fyrir nokkr-
um árum, klæða það innan og gera
það eins vistlegt og hægt er.
Guðrún og Júlíus bjuggu á Atla-
stöðum um langt árabil og fluttust
til ísafjarðar árið 1946. Þeim varð
12 bama auðið og em 10 þeirra á
lífi. Gefendum eru hér með færðar
hjartans þakkir fyrir að hafa á
jaín myndarlegan hátt lagt sinn
skerf til málefna Slysavamafélags-
ins og jafnframt stuðlað að því að
vistlegt húsnæði verði ávallt til
reiðu á æskustöðvum þeirra í
Fljótavík, þeim til handa er á
þurfa að halda hverju sinni.
Þá hafa Björgunarsjóði Vest-
fjarða borizt eftirtaldar gjafir:
Frá Hrönn h.f. ísafirði f jögur þús.
kr. og frá ónefndum gefanda 150
krónur.
Beztu þakkir.
Guðjón Jóhannesson
gjaldkeri.
að þessu sinni. Einn fimm lesta
bátur var á færaveiðum, og annar
8 lesta bátur nýkeyptur til staðar-
ins, byrjaði þar á færum fyrir
mánaðarlokin. Aflinn jafnan treg-
ur.
Þingeyri. Tveir smáir þilfars-
bátar, með þriggja manna áhöfn
hver, hófu dragnótaveiðar um
miðjan mánuðinn og fengu dágóð-
an afla með köflum. — Fjórir
trillubátar með þremur mönnum
stunduðu línuveiðar og færi á víxl
og fengu jafnan reitingsafla, er
gæftir leyfðu.
Flateyri. Vb. Einar Þveræingur
var á færaveiðum og aflaði um 50
lestir í mánuðinum með 6 manna
Framhald á 2. síðu.
Aflabroyð í Vestfirðinyafjórðungi
í júní 1962