Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 7

Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 7
Friðrik Dór Jónsson er einn heitasti popptónlistarmaður Íslands í dag. Hann sló í gegn með laginu Hlið við hlið, sem var eitt af vinsælustu lögum Íslands í fyrra. Annað lag með honum, Á sama stað, hefur einnig notið mikilla vinsælda. Bróðir hans, Jón Ragnar, sendi nýverið frá sér sitt fyrsta lag, Lately, sem hefur verið mikið spilað á Rás 2. Þar er á ferðinni hresst sumarpopp að bandarískri fyrirmynd, sem gefur góð fyrirheit um það sem koma skal. „Það er ekki beint hægt að segja að við höfum glímt við mikla erf- iðleika, sem við þurftum að vinna okkur út úr í tónlistinni.“ segir Jón, þegar blaðamaður vill stimpla þá sem íslenska poppútgáfu af Gallagher-bræðrunum úr Oasis. „Líf okkar hefur verið frekar einfalt,“ segja bræðurnir, sem ólust upp í Setberginu í Hafnarfirði, stunduðu báðir tónlistarnám og gengu báðir í Verzló, þar sem þeir voru í aðal- hlutverkum í söngleikjum skólans, hvor á sínum tíma. „Við höfum alltaf spilað og sungið mikið saman, en við höfum kannski ekki unnið mikið saman og ekki líklegt að það gerist í bráð,“ segir Friðrik. Jón tekur undir það og segir samvinnuna að mestu felast í því að gefa álit og gagnrýni „Við erum kannski frekar að halda hvor öðrum á tánum. Þegar ég var úti í Bandaríkjunum áttum við oft Skype-samtöl og sýndum hvor öðrum eitthvað sem við vorum að gera,“ segir Jón. „Okkar besta samvinna til þessa er samt þegar ég braut baðherbergishurðina heima, þegar ég sló beltissylgju á eftir Jóni,“ segir Friðrik og bræðurnir hlæja. „Þetta gerðist í fyrradag,“ grínast Jón. Fyrsta íslenska RNB-platan „Fyrsta skipti sem ég söng var í söngvakeppni Samfés í 10. bekk, þá spilaði ég á trommur og söng í laginu Afgan,“ segir Friðrik og fullyrðir að hann sé hinn íslenski Phil Collins. Upphafið að sólótón- listarferli hans má rekja til þess að hann hóf að skrifa söngleik, ásamt tveimur félögum sínum, og samdi lagið Hlið við hlið fyrir það verkefni. „Það varð reyndar ekkert úr söngleiknum, en mér fannst lagið gott og talaði við félaga mína í Redd Lights um hvort þeir vildu ekki taka þetta alla leið og gera slagara úr þessu,“ segir Friðrik. Þar á bæ höfðu menn litla trú á verkefninu til að byrja með. „Ég var einmitt að tala við Inga úr Redd Lights um daginn og hann sagði mér að það fyrsta sem hann hugs- aði þegar við gerðum þetta var: „Djöfull nenni ég þessu ekki. Hvað fáum við út úr því að gera þetta lag með þessum gaur?“ En þetta gekk vonum framar,“ segir Friðrik. Það eru orð að sönnu, því Friðrik gerði nýverið plötusamning við Senu og gefur út sína fyrstu plötu í haust. „Þetta verður 12 laga plata með lögum eftir mig. Líklega fyrsta alvöru íslenska RNB-platan sem gefin er út í heiminum,“ segir Friðrik, en hann er þegar byrjaður að vinna að plötunni. „Ég er einmitt að gefa út lag núna, sem heitir Fyrir hana. Það fjallar um hana sem ég átti einu sinni, en hann er dáinn í dag,“ grínast Friðrik og uppsker mikinn hlátur bróður síns og blaðamanns. „Nei, þetta er svona sumarsmellur. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt lag og hef trú á því,“ segir Friðrik. Of væminn á íslensku Jón fór til Boston í hagfræðinám eftir að hann kláraði Verzló og útskrifaðist vorið 2009. „Menningin þarna úti er svolítið öðruvísi en hérna heima. Menn eru reiðubúnari að gefa nýju dóti tækifæri og fíla að hlusta á og uppgötva nýja tónlist. Það var mjög skemmtilegt að spila fyrir ameríska krakka, sem kunnu vel að meta það sem maður var að gera, og það hvatti mig til að halda áfram að spila og semja,“ segir Jón, sem setti saman hljómsveit með félögum sínum þegar hann flutti aftur til Íslands. „Þegar ég útskrifaðist var ég kominn með einhver 15 lög, þannig að þegar ég kom heim ákvað ég að setja saman band og byrja að spila,“ segir Jón, sem fór til New York með hljómsveitinni í haust og lék þar á nokkrum tónleikum. „Það var eiginlega þar sem okkur varð ljóst að við þyrftum að gera eitthvað af viti við þetta. Ekki bara setja þetta á Facebook og láta þar við sitja,“ segir Jón. Hann telur að það sé erfiðara að ná hylli íslenskra hlustenda með lög sem sungin eru á ensku, en hefur þó litlar áhyggjur af því. „Ég vil hafa lögin á ensku og verð að vera samkvæmur sjálfum mér,“ segir Jón og bætir við að textasmíð- ar séu ekki hans sterkasta hlið. „Ég hef alltaf hlustað fyrst og fremst á tónlistina. Ég held að að lögin mín yrðu líka asnaleg á íslensku, ég er svo væminn.“ „Mín lög eru ekki væmin,“ grípur Friðrik inn í. „Ég sem um stríð og byssur. Næsta lag fjallar um hungursneyð. Svo ætla ég líka að gefa út kreppulag,“ grínast hann, en játar svo að hann sé síst minna væminn en Jón. Boðið í bíó af grunnskólastelpum Markhópur þeirra bræðra er óneitanlega ekki sá sami og Friðrik gengst við því að stærsti hluti aðdáenda hans sé í yngri kantinum. „Ég er reyndar að ná til aðeins eldri hóps en ég átti von á. Ég spila alveg fyrir 20 plús, en ég er kannski ekkert að heilla einhverjar húsmæður,“ segir Frikki. „Víst!“ segir Jón og heldur áfram: „Ég spilaði um daginn í félagsmiðstöð. Þau þekktu coverlögin sem við tókum, en kveiktu ekki eins vel á mínu eigin efni. Svo mætti Friðrik sem leynigestur í lokin, þá varð allt vitlaust,“ segir Jón og hlær. Talið berst að vinsældum Friðriks meðal unglingsstúlkna. „Ég er með einhverja sex hundruð vini á Facebook sem ég þekki ekki og einstaka sinnum fæ ég fyndin skilaboð. Um daginn spurði einhver stelpa, líklega svona 14 ára, hvort ég vildi koma í bíó. Hún bauðst meira að segja til þess að borga,“ segir Friðrik og hlær, en neitar því að hann verði fyrir miklu áreiti. Þekkt er að menn í hans stöðu fá líka á sig vænan slurk af skítkasti. Aðspurður hvort menn séu mikið í að drulla yfir hann segir Friðrik: „Drullið fer aðallega fram á YouTube og svoleiðis stöðum. Þá eru það einhverjir gaurar sem kalla sig „I H8 My Life“ og verða að vera geðveikt neikvæðir. En flestir sem gefa sig á tal við mig eru bara góðir á því og segjast fíla þetta.“ Friðrik Dór og Jón Ragnar Jónssynir eru bræður úr Hafnarfirði, sem báðir eru að gera það gott í tónlistinni. Um dag- inn spurði einhver stelpa, líklega svona 14 ára, hvort ég vildi koma í bíó. Valkvíði Hvít-Rússa Valkvíði er nokkuð sem margir vilja kalla lúxusvandamál. En valkvíði virðist samt hrjá Hvít-Rússa, þjóð sem maður hefði haldið að glímdi við nógu mörg vandamál fyrir. Vandamál sem ekki verða leyst með kökusölu í Kringlunni. Það gerðist í annað sinn á dögunum, í fremur stuttri Eurovision- sögu Hvíta-Rússlands, að lag sem hafði verið kynnt sem framlag landsins var dregið til baka á síðustu stundu. En ólíkt nágrönnum sínum í Úkraínu, sem báru við pólitískum ástæðum, þá finnst Hvít-Rússum það einfaldlega frekar leiðinlegt þegar lagið þeirra þykir lélegt. Þannig var það allavega árið 2005, en þá var fulltrúi landsins hin snoppufríða Angelica Agurbash, fyrrverandi ungfrú Hvíta-Rússland og meira að segja fyrrverandi Miss Photo USSR - titill sem eflaust hefur verið slegist um í gömlu Sovétríkjunum. Angelica var því líklega ekki vön höfnun. Lagið hennar, Boys and girls, sem fjallaði lauslega um gíslatökuna í Beslan, fékk hins vegar hörmulegar viðtökur erlendis eftir að það var valið sem framlag landsins. Hún heimtaði því að fá að skipta um lag og söng á endanum lagið Love me tonight. Hún uppskar þó enga ást á keppniskvöldinu og komst ekki upp úr undanúr- slitunum. Maður hefði haldið að þessi litla saga hefði kennt Hvít- Rússunum lexíu en svo virðist ekki vera. Sönghópurinn 3+2 hefur skipt út laginu Far Away sem hafði verið kynnt sem framlag landsins í ár og í stað- inn er komið lagið Butterflies. Skemmst er frá því að segja að bæði lögin eru léleg og það seinna líklega verra en hið fyrra. Þau geta þó reynt að gera fleiri breytingar og umbætur fram að stóru stund- inni. Þau gætu kannski skipt um söngvara eða bara um kyn ef þau halda að það muni hjálpa. En þegar þeim hefur verið snúið heim eftir forkeppnina í Ósló skulum við samt vona að þau hafi loksins lært það sem við lærðum flest í grunnskóla: Maður á aldrei að breyta krossinum á síðustu stundu. EURO-HAUKUR ER DÓSENT Í EUROVISION 7FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 Monitor JÓN RAGNAR JÓNSSON Fyrstu sex: 30.10.85 Áhrifavaldar: Ég er bara ógeðslega „mainstream“. Ég get nefnt Coldplay, Ben Harper, Gavin DeGraw, John Mayer og Jack Johnson. Ég vil ekki nefna James Morrison því hann er bara einu ári eldri en ég, en hann er flottur. Eftir þrjá mánuði: Að spila ein- hver svöl sumargigg á skemmti- legum stöðum. Eftir þrjú ár: Ennþá að spila og búinn að gefa eitthvað út. Svo væri gaman að taka einn háskólatúr í Bandaríkjunum. FRIÐRIK DÓR JÓNSSON Fyrstu sex: 07.10.88 Áhrifavaldar: Þetta hefur þróast frá einhverju Led Zeppelin yfir í Jack Johnson og Ben Harper. Úr því yfir í Lauryn Hill og í dag er ég farinn að hlusta meira á svona „pródúsað“ efni eins og Ne-Yo og The-Dream. Eftir þrjá mánuði: Að spila út um allt, gefa út lög og klára plötuna, sem kemur út í haust. Eftir þrjú ár: Búinn að gera svo mikið af svölu stöffi að fólki finnist í lagi að ég sé með sólgleraugu inni. Bræður munu berjast... um vinsældir Mynd/Árni Sæberg 8 vikur í Eurovision

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.