Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 10

Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 10
10 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 J Þegar við vorum að byrja á PoppTíví horfði enginn á okkur. Svo komst þetta inn undir hjá krökkunum og þannig fóru foreldrarnir að horfa, yfir öxlina á þeim. Þannig sprakk PoppTíví út, þetta varð ansi vinsæll þáttur og við náðum frábærum árangri hjá yngri markhópum. Idolið varð svo auðvitað alveg svakaleg bomba og það myndaðist algjört Idol-æði. Eftir það höfum við verið frekar uppteknir af áhorfi og tölum. Þegar maður er búinn að vera í svona stóru prógrammi er maður ekkert að fara að vera eitthvað jaðar. Þá finnur maður hvatningu í því að skoða hlustunar- og áhorfstölur. Það verður gulrótin og maður vill bara vera í stóra leiknum. Þið gerið mikið af því að semja grínlög í útvarpsþættinum ykkar. Hafið þið aldrei viljað gera alvöru tónlist? S Við eigum eitt popplag, Týpíska lagið. Það náði toppnum á íslenska listanum í eina viku, en var slegið út af Audda Blöndal og Sverri Bergmann. J „Ég skæri mér hjartað úr með skeið.“ Það var Auðunn Blöndal. S Hann kann að slá því upp í grín í dag, en hann var í alvörunni að semja þetta lag. Hann meinti þetta lag. Honum fannst þetta mjög kúl og var stoltur af því. J Ég hef náttúrlega stússast mikið í tónlist og ætlaði mér alltaf að verða tónlistarmaður. Ég kannski kláraði það þegar ég, Pálmi, Sjonni og Hilmir Snær settum upp Bítl í Loftkastalanum. Ég hafði verið í einhverri barspilamennsku fram að því, en hætti því að mestu eftir Bítl. Simmi á næstum 5.000 vini á Facebook en Jói innan við 2.000. Hvaða ályktun má draga af þessu? J Að Simmi samþykki alla vini, en Jói er selektívur. S Já, ég byrjaði fyrr að sam- þykkja alla, en Jói er farinn að samþykkja alla núna. J Ég verð að ná þér maður. Þetta eru allt væntanlegir „hamborgarar“. Jói, þú varst að gerast vinur Anitu Briem. Hvor addaði hverjum? J Ég addaði henni. Hvers vegna? J Bara „one celeb to another“. (Hlær.) S Það er meginmunurinn á mér og þér, ég er ekki búinn að adda vinum frá því að ég byrjaði á Facebook. J Ég adda alltaf öðru hvoru. Einhverjum sem gætu talað vel um hamborgarana mína. S Þú þekkir ekkert Anitu Briem. J Nei, ég myndi bara bransaheilsa henni. S Varstu að adda Anitu Briem? (Hneykslaður.) J Já. (Simmi gerir mikið grín að Jóa og hrósar blaðamanni fyrir rannsóknarvinnuna. Verðlaun fyrir rannsóknar- blaðamennsku ársins sendist á skrifstofu Monitor.) Segið mér meira frá bransaheilsinu. J Um leið og Ingibjörg Sólrún var búin að drekka ógeðsdrykk á PoppTíví fóru allir stjórn- málamenn að heilsa okkur. Þegar við urðum svona frægir í Idolinu byrjaði þetta svo af alvöru. Við höfum oft grínast með að það er svona „klan“ af frægum á Íslandi og það heilsa allir hver öðrum, alveg sama hvort þeir þekkjast eða ekki. Þú færð kannski nikk frá Stebba Hilmars á kassanum í Nóatúni. S Mitt furðulegasta bransaheils er Annþór Karlsson. Ég veit ekki af hverju hann heilsaði mér, en hann heilsaði mér og ég heilsaði til baka, enda þorði ég ekki öðru. Að lokum, Simmi hvað ertu búinn að borða margar brauðstangir á meðan á viðtalinu stóð? S Átta. Mitt furðulegasta bransaheils er Annþór Karlsson. JÓI UM SIMMA SIMMI UM JÓA Hvað er skrýtnast við hann? S Hann hefur aldrei á ævinni sett í þvottavél og getur ekki hengt upp mynd eða hillu. J Það skrýtnasta við hann er hvað hann hefur mikla samkennd með fólki og er tilbúinn að eyða tíma með hverjum sem er. Hann er maður litla mannsins, sem er í hrópandi andstöðu við hið mikla egó hans. Hver er helsti kostur hans? S Hann er svakalega traustur í öllum mögulegum skilningi þess orðs. Hann myndi eiginlega drepa fyrir þig, þótt hann sé engan veginn ofbeldishneigður. J Hann er bara ótrúlega öflugur náungi. Mikill framkvæmda- maður og fylginn sér. „Talks the talk and walks the walk.“ Hver er fallegasti líkamshluti hans? S Ég myndi segja að það væri innskotið rétt fyrir ofan rófubeinið á honum. Þar er hann með brúsk, það sprettur svona smá Vaglaskógur á honum. J Það er hamurinn, aftanvert lærið á honum síðan í spjótinu. Hamstrengurinn slitnar ekki, alveg sama hvaða klippur þú myndir reyna á hann. Nei, mér finnst þú nú reyndar ekki með neitt sérstaklega fallegan tittling. Er það ekki getnaðarlimurinn? Hvað er mest pirrandi við hann? S Það er mjög pirrandi að hann á aldrei sjálfur í vörina. J Það getur verið fjandanum erfiðara að rökræða við hann, en mér tekst það nú yfirleitt alltaf. Þegar hann er kominn í ham með sannfæringarkraftinn sinn er best að bíða bara aðeins og koma svo seinna og reyna að ná lendingu. Þetta má eiginlega ekki fara í blaðið, því mamma og pabbi vita ekki að ég tek í vörina. Hvernig er auðveldast að fara í taugarnar á honum? S Það eru ansi margar leiðir til þess. Auðveldasta dæmið er að byrja að ræða Bítlana og gera grín að þeim. J Með því að vera latur og láta hann vinna meira en maður gerir sjálfur. Ef ég læt hann gera eitthvað af því að ég er sjálfur að fara að gera eitthvað skemmtilegt. Simmi segir að David Beckham sé stærri en Bítlarnir. Fyrir hverju er hann viðkvæmastur? S Ég held að Jói sé almennt ekkert svakalega viðkvæmur. Á sínum tíma var hann viðkvæmur fyrir hárþynningunni, þar til hann horfðist í augu við vandamálið. Hann er líklega viðkvæmastur fyrir gagnrýni. Hann má ekki vita af neikvæðu bloggi skrifuðu um okkur, þá heldur hann varla svefni. J Ég hélt alltaf að hann væri alveg kúl með það hvað hann á auðvelt með að bæta á sig. En það er búið að gera svolítið mikið úr því núna undanfarið og ég held að það stingi aðeins. Ég gerði mér bara ekki grein fyrir því. Þetta er alls ekki rétt. En ég væri alveg til í að vera grennri samt. Ég held að það hafi verið Simmi sem tók í mig á sínum tíma og sagði mér að snoða mig. Ég var lentur í smá skallarexíu, án þess að vita af því. Við vorum saman í hótelherbergi og hann spurði í mót- tökunni hvort hótelherbergið væri með hárblásara, því hann þurfti alltaf að blása á sér hárið. Eini karlmaðurinn á Íslandi sem blés á sér hárið og pissaði sitjandi. Ég hefði ekki blásið á mér hárið fyrir framan alþjóð. Hárþynning er alveg alvöru dæmi. En ég komst í gegnum það.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.