Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 15

Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 15
15 fílófaxið FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 Monitor Sigurður Eggertsson, handboltakappi „Ætli ég kaupi mér ekki flösku. Svo sest ég við símann og bíð eftir að einhver hringi. Af hverju ætti þessi helgi að vera eitthvað frábrugðin öðrum helgum?“ segir handboltakappinn Sigurður Eggertsson sem leikur með Val í N1-deildinni. „Það hefur enginn hringt hingað til,“ segir Sigurður að lokum og er augljóslega spenntur fyrir helginni. sunnudagur SKOPPA OG SKRÍTLA Borgarleikhúsið, litli salur 12:00 og 14:00 Tilvalin sýning tilað fara á með krakka enda hafa Skoppa og Skrítla verið eftirlæti ungra leikhús- og bíógesta undanfarin ár. FÍASÓL Þjóðleikhúsið, Kúlan 13:00 og 15:00 Fíasól í Hosiló ersprellfjörug sýning fyrir alla fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur en sýningunni er leikstýrt af Vigdísi Jakobsdóttur. ALGJÖR SVEPPI Íslenska óperan 13:00 og 16:00 Börnin elska Sveppa.Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks er frábær fjölskyldusýning í leikstjórn Felix Bergssonar en tónlistarstjóri er sjálfur Jón Ólafsson. ÞÝSK SÁLUMESSA Hallgrímskirkja 17:00 Lokatónleikar á Kirkjulista-hátíð 2010. Flutt verður Þýsk sálumessa eftir Johannes Brahms sem þykir eitt af stórverkunum í kirkjutónlist. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. UNDANÚRSLIT Í KÖRFUNNI Toyota-höllin, Keflavík 19:15 Suðurnesjaslagur af bestugerð. Baráttan um Reykjanes- bæ verður gríðarlega hörð og áhorfendur geta búist við gríðarlega spennandi viðureign. Liðið sem fyrst vinnur þrjá leiki í rimmunni fer áfram í úrslitin. EILÍF ÓHAMINGJA Borgarleikhúsið – Litli salur 20:00 Eilíf óhamingja er sjálfstættframhald af verkinu Eilíf hamingja sem sett var upp í Borgarleikhúsinu árið 2007. Verkinu er lýst sem gamansamri en beittri ádeilu á markaðshyggjuna. Handrits- gerð er í höndum Andra Snæs Magnasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar. Þorleifur leikstýrir verkinu en hann hefur getið sér gott orð á erlendri grund, nú síðast fyrir uppsetningu á Rómeó og Júlíu í Sviss. FAUST Borgarleikhúsið 20:00 Það eru liðin fjörutíu ár síðanFaust fór síðast á leiksvið á Íslandi en nú gefst áhugasömum tækifæri til að berja sýninguna augum í Borgarleik- húsinu. Í þetta skipti er leikstjórn í höndum Gísla Arnar Garðarssonar en það er enginn annar en Nick Cave sem sér um tónlistina í sýningunni ásamt Warren Ellis. „Þetta hefur verið frábært verkefni. Tvímælalaust stærsta og flóknasta verkefni sem ég hef komið að. Það eru fjörutíu manns á sviðinu og þar af meirihlutinn börn með takmarkaða reynslu á sviði þannig að það var mjög krefjandi að kenna þeim í rauninni allt frá grunni. Þetta er bara svona risasöngleikur, þeir verða ekkert mikið stærri en þetta,“ segir Selma Björnsdóttir sem leikstýrir söngleiknum Ólíver sem hefur gengið fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu frá jólum. Hún hefur leikstýrt þremur stórum sýningum undanfarið og kann vel við sig í leikstjórastólnum en núna tekur hún næsta skref. „Ég er einmitt að fara að flytja til Englands í næstu viku þar sem ég ætla að taka mastersgráðu í leikstjórn. Öll fjölskyldan flytur út og við munum búa í Bristol næsta rúma árið,“ segir Selma að lokum. Ólíver á flugi og Selma flytur út ÓLÍVER Þjóðleikhúsið 15:00 19:00 11 apríl Helgin mín

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.