Morgunblaðið - 17.04.2010, Blaðsíða 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2010
✝ Eva MjallhvítSnæbjarnardóttir,
fyrrverandi skóla-
stjóri Tónlistarskól-
ans á Sauðárkróki,
fæddist á Sauðárkróki
7. ágúst árið 1930.
Hún lést á Landspít-
alanum Fossvogi 5.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Snæbjörn Sig-
urgeirsson, bak-
arameistari á Sauð-
árkróki, fæddur í
Gunnarssundsnesi við Stykkishólm
22. mars 1886, d. 3. september 1932,
og Ólína Björnsdóttir, húsfreyja frá
Skefilsstöðum á Skaga í Skagafirði, f.
23. maí 1903, d. 13. október 1980.
Guðjón Sigurðsson, bakarameistari á
Sauðárkróki, f. á Mannskaðahóli 3.
nóvember 1908, d. 16. júní 1986, gekk
Evu í föðurstað eftir fráfall Snæ-
bjarnar.
Systkini Evu samfeðra voru: Ólöf f.
1922, d. 1947, Guðrún (Gígja) versl-
unarmaður í Reykjavík, f. 1925, Geir-
laug, f. 1927, d. 1927, Sigurgeir fram-
kvæmdastjóri, f. 1928, d. 2005, og
Snæbjörg óperusöngvari og söng-
kennari, f. 1932.
Systkini Evu sammæðra voru:
undir handleiðslu Hermínu Björns-
dóttur og síðar Rögnvaldar Sig-
urjónssonar. Hún lauk burtfar-
arprófi frá skólanum árið 1953. Á
árunum 1953-1956 stundaði Eva
framhaldsnám í píanóleik í New
York í Bandaríkjunum. Eftir að Eva
sneri heim settist hún að í heimabæ
sínum Sauðárkróki og stundaði
einkakennslu á píanó frá árinu 1957.
Við stofnun Tónlistarskólans á Sauð-
árkróki var Eva fastráðinn kennari
árið 1965 og árið 1974 tók hún við
skólastjórn af Eyþóri Stefánssyni
tónskáldi. Uppbygging og viðgangur
tónlistarskólans var hugðarefni Evu
en hún lét af störfum árið 1999 eftir
34 ára starf fyrir skólann. Fyrstu ár-
in eftir starfslok hélt Eva þó áfram
að stunda kennslu í hlutastarfi. Eva
tók á árum áður virkan þátt í starfi
Leikfélags Sauðárkróks ásamt Kára
eiginmanni sínum. Síðasta hlutverk
Evu var Kate, eiginkonan í Allir syn-
ir mínir eftir Arthur Miller, sem
Leikfélagið frumsýndi í febrúar 1972
í leikstjórn Kára. Áður hafði Eva
meðal annars farið með hlutverk
Höllu í Fjalla-Eyvindi eftir Jóhann
Sigurjónsson árið 1963 og með eitt
aðalhlutverka í Skálholti eftir Guð-
mund Kamban.
Síðustu æviárin bjó Eva á Seltjarn-
arnesi.
Útför Evu verður gerð frá Sauð-
árkrókskirkju í dag, 17. apríl 2010,
og hefst athöfnin kl. 14.
Elma Björk nuddari, f.
1935, d. 1984, Birna
húsmóðir, f. 1943, og
Gunnar Þórir bak-
arameistari og hús-
vörður, f. 1945.
Eiginmaður Evu var
Kári Jónsson, stöðv-
arstjóri Pósts og síma
á Sauðárkróki, f. 27.
október 1933, d. 19.
mars 1991. Þau gengu
í hjónaband 28. apríl
1960. Synir þeirra eru:
Óli Björn Kárason
blaðamaður, f. 1960, og (Guðjón)
Andri Kárason, konditormeistari og
sölumaður, f. 1963. Eiginkona Óla
Bjarnar er Margrét Sveinsdóttir
framkvæmdastjóri, f. 1960, og
þeirra börn eru: Eva Björk við-
skiptafræðingur, f. 1983, Kári Björn
framhaldsskólanemi, f. 1991, og Ása
Dröfn, f. 1999. Eiginkona Andra er
Ingibjörg Guðjónsdóttir, söngkona
og söngkennari, f. 1965. Sonur
þeirra er Daníel Guðjón, f. 1999.
Eva ólst upp á Sauðárkróki en
lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Akureyrar 1948. Hún
hélt þá til Reykjavíkur í tónlist-
arnám. Hún lagði stund á píanóleik
við Tónlistarskólann í Reykjavík
Elsku Eva. Það eru rúm 30 ár síð-
an ég kom á puttanum frá Árskógs-
strönd til að hitta í fyrsta sinn verð-
andi tengdaforeldra mína.
Móttökurnar sem ég fékk eru mér
ennþá ljóslifandi og eftir þessa fyrstu
heimsókn á Smáragrundina var eins
og ég hefði alltaf tilheyrt fjölskyld-
unni, svo vel tókuð þið Kári mér.
Á langri vegferð er margs að
minnast og ekki hægt að gera því skil
í fáeinum kveðjuorðum en við fjöl-
skyldan munum ylja okkur við þær
minningar um ókomin ár. Við áttum
oft góðar stundir saman við að rifja
upp árin þín í New York. Ég dáðist
að þessari ungu glæsilegu skvísu
sem ég sá á myndum og ímyndaði
mér klæðast þeim flottu fötum og
skóm sem þú geymdir frá þessum ár-
um. Ég er meira að segja svo heppin
að passa í sum fötin og hef klæðst
þeim við sérstök tækifæri.
Þó að ég hafi ekki átt þess kost að
sjá þig á leiksviði þá er gaman að
skoða myndir af öllum þeim fjölda
leiksýninga sem þú tókst þátt í og sjá
leikbúningana og gervin sem þú og
Kári klæddust. Það duldist engum
sem fylgdist með þér í starfi þínu
sem píanókennari og skólastjóri Tón-
listarskólans að þar fór mikil fag-
manneskja. Ósérhlífnin og dugnað-
urinn fyrir hönd skólans og nemenda
var eftirtektarverður og búa margir
Sauðkrækingar ennþá að því starfi.
Börnin okkar Óla hafa einnig notið
góðs af. Fyrir mig var einstaklega
gott að koma á Smáragrundina og
slappa af í rólegheitum. Það var aug-
ljóst að þegar von var á okkur norður
þá var búið að undirbúa komu okkar
vel og ekkert til sparað til að gera
okkur heimsóknina notalega. Alltaf
voruð þig Kári tilbúin að fá Evu
Björk norður í heimsókn og þú síðar
Kára Björn og Ásu Dröfn eftir hans
dag. Þau eiga góðar minningar frá
þeim heimsóknum og minnast ekki
síst fjöruferða, garðræktar í gróður-
húsinu og ferða í Tónlistarskólann til
að spila á hljóðfærin þar.
Eftir að Kári féll frá komst þú suð-
ur til okkar á jólum og eru fyrstu jól-
in sérstaklega minnisstæð. Þá kom
ég heim af fæðingardeildinni á að-
fangadag með Kára litla. Þér var
mjög umhugað að allt yrði nú hreint
og fínt þegar litla barnið kæmi og var
ákafinn svo mikill að þú stórslasaðir
þig á höfði við skúringarnar þannig
að Óli Björn þurfti aðra ferð á spít-
alann, nú með þig á slysadeild til að
sauma skurðinn. Allt fór þó vel og
fyrstu jólin þín fyrir sunnan voru
yndisleg þrátt fyrir þessa byrjun.
Eftir að þú fluttir suður var stutt á
milli okkar og samverustundirnar
tíðari. En nú er komið að leiðarlokum
og ekki fleiri ferðir í kaffisopa í Eið-
ismýrina.
Elsku Eva, takk fyrir allt og allt.
Hvíl þú í friði.
Þín tengdadóttir,
Margrét Sveinsdóttir.
Elsku amma mín.
Ég mun sakna þess að geta ekki
átt fleiri æðislegar stundir með þér
eins og ég gerði. Ég veit að núna ertu
búin að hitta afa Kára. En nú get ég
ekki gist hjá þér, farið upp í sum-
arbústað með þér og Snæju, eða farið
annað með þér.
Takk fyrir allt.
Ég mun sakna þín mjög mikið,
elsku besta amma mín.
Ása Dröfn.
Elsku amma mín, ég á eftir að
sakna þín óendanlega mikið og á erf-
itt með að trúa því að ég geti ekki
bara tekið upp símann og hringt í þig
eða komið við hjá þér í heimsókn. Það
er svo margt sem ég vil segja þér að
ég veit ekki hvar ég ætti að byrja eða
enda. Minningarnar sem ég á um þig
eru svo margar og hver annarri betri
að erfitt er að hugsa til þess að við
munum ekki geta rifjað þær upp
saman og búið til fleiri. Allar ferð-
irnar norður á Krók til að vera hjá
ykkur afa, og seinna meir þér, mun
ég halda í það sem eftir er.
Það er svo margt sem gleður mig
þegar ég huga til baka. Á kvöldin
þegar þú og ég vorum að búa til heitt
hunang með ediki svo ég gæti nú
örugglega sofið vel alla nóttina eða
þær stundir sem við áttum saman úti
í garði að hugsa um öll fallegu blómin
þín sem þér þótti alltaf svo vænt um.
Gönguferðirnar upp í Skagfirðinga-
búð og Tónlistarskólann þar sem við
þurftum að taka hinar ýmsu króka-
leiðir ef við sáum hund í fjarska því
þú varst svo hrædd við þá, sem
breyttist heldur betur þegar þú flutt-
ir hingað suður því þið Rocky urðu
bestu vinir.
Ég man svo vel allar þær samræð-
ur sem við áttum um flug og flugvélar
þegar ég var yngri, þú sagðist aldrei
ætla aftur upp í flugvél og værir bara
sátt við að taka rútuna suður. En þær
voru nú minnst fjórar utanlandsferð-
irnar eftir þetta, þar sem ég fékk að
vera með þér í þremur af þeim og
stendur New York-ferðin okkar al-
veg upp úr. Bara við tvær. Ég og þú.
Eva Snæbjarnardóttir
• Hlýlegt og gott viðmót
á Grand hótel.
• Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum.
• Næg bílastæði og gott aðgengi.
Grand erfidrykkjur
Grand hótel Reykjavík,
Sigtúni 38, sími 514 8000.
erfidrykkjur@grand.is
grand.is
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför vinar okkar,
JÓHANNS SIGURÐAR HJARTARSONAR,
Leirhöfn,
síðast til heimilis á
dvalarheimilinu Hvammi,
Húsavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hvamms fyrir góða
umönnun og hlýju.
Hildur Jóhannsdóttir, Jón Þór Guðmundsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS STEINSSONAR,
áður garðyrkjubónda
í Hveragerði.
Gunnhildur Ólafsdóttir, Agnar Árnason,
Jóhanna Ólafsdóttir, Pétur Sigurðsson,
Steinn G. Ólafsson, Guðrún Sigríður Eiríksdóttir,
Símon Ólafsson, Kristrún Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
bróður okkar og vinar,
RUNÓLFS ENGILBERTSSONAR
bifreiðarstjóra
frá Vatnsenda í Skorradal.
Hulda Bachmann,
Haukur, Svava og Eyjólfur Engilbertsbörn,
Þóra Guðmundsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
FRIÐRIKKU ÞORBJÖRNSDÓTTUR,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
og heiðruðu minningu hennar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar, Guðmundur og Friðrik Guðlaugssynir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför frænku okkar,
HELGU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Litlu-Háeyri,
Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Kumbaravogi
fyrir góða umönnun.
Brynjólfur G. Brynjólfsson,
Bára Brynjólfsdóttir,
Auðbjörg Ögmundsdóttir,
Valgerður K. Sigurðardóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við útför hjartkærs frænda
okkar og vinar,
BJÖRNS TRYGGVA JÓHANNSSONAR
bónda á Stóru-Borg,
Húnaþingi vestra,
og heiðruðu minningu hans.
Séstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki
Heilbrigðisstofnunarinnar Hvammstanga fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd frændsystkina og annarra aðstandenda,
Ólöf Hulda Karlsdóttir.
✝
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
MARÍA SKÚLADÓTTIR,
síðast til heimilis
Skjóli,
Kleppsvegi 64,
verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 19. apríl
kl. 15.00.
Birgir Óttar Ríkharðsson, Ásta Gréta Samúelsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.