Morgunblaðið - 26.04.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.04.2010, Blaðsíða 23
Menning 23FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010 MARTHA Wilson hefur verið ein af kjölfestunum í listalífi New York- borgar síðan í byrjun áttunda ára- tugarins. Hún er ögrandi gjörn- ingalistamaður, stofnandi og stjórn- andi listrýmisins Franklin Furnace og hefur sérþekkingu á bókverkum listamanna, sem Franklin Furnace hefur sinnt og orðið einn helsti vettvangur fyrir í New York og víð- ar. Í fyrirlestri sínum mun hún greina frá gjörningaferli sínum í samhengi við sögu gjörninga, út frá eigin kenningum. Hún mun einnig fjalla um Franklin Furnace, sem enn er rekið í New York, og um listamannarekin rými. Pólitísk Martha Wilson hóf gjörningaferil sinn á gerð vídeótextaverka í byrj- un áttunda áratugarins, þegar hún var í doktorsnámi í ensku og starf- aði við kennslu við Nova Scotia Col- lege of Art and Design í Halifax í Kanada, á sama tíma og Dan Gra- ham og Dara Birnbaum, en öll unnu þau þar með gjörninga og vídeómiðilinn sem skoðun á mann- legri hegðun. Hún flutti til New York árið 1974 og vann þar að ljósmyndagjörn- ingum og vídeóverkum þar sem hún kannaði hið femíníska sjálf í gegnum hlutverkaleik, búninga- og gervanotkun, var hluti af femínísku gjörningahljómsveitinni DISBAND (1978-1982) og gerði pólitíska gjörninga í hlutverkum þekktra einstaklinga. Þekktustu gjörningar hennar eru þar sem hún bregður sér í hlutverk eiginkvenna forseta Bandaríkjanna. Ögrandi gjörninga- listamaður Martha Wilson verður með hádegisfyrirlestur í Laugarnesi í dag Sjálfsmynd Eitt af verkum Mörthu. Bebop-kvöld verður haldið á Café Cultura í kvöld, 26. apríl. Mun Árni Heiðar Karlsson pí- anóleikari koma fram ásamt tríói sínu og spila lög úr safni píanóleikarans Bills Evans. Með Árna Heiðari leika Þor- grímur Jónson á kontrabassa og Scott McLemore á tromm- ur. Tónleikarnir hefjast kl. 21 en að þeim loknum verður helj- arinnar djammveisla að vanda þar sem þeim sem vettlingi geta valdið verður boðið að troða upp og leika af fingrum fram. Kvöldin hafa verið reglulegur liður í djassmenn- ingu landsins síðustu misseri og halda glóðinni þar lifandi svo um munar. Tónlist Bill Evans á Café Cultura Árni Heiðar Karlsson Óperukór Hafnarfjarðar er 10 ára í ár og heldur af því tilefni stórafmælistónleika í Hafnar- borg 28. apríl nk. kl. 20.00. Hann var stofnaður árið 2000 af Elínu Ósk Óskarsdóttur óp- erusöngkonu. Hefur Elín Ósk verið aðalkórstjóri hans allar götur síðan. Aðstoðarkórstjóri er Kjartan Ólafsson tónlistar- maður og barítónsöngvari. Pí- anisti kórsins frá upphafi er Peter Máté píanóleikari. Kórfélagar eru hátt í sextíu manns, tónlistarfólk af ýmsum toga, bæði lærðir söngvarar, söngkennarar, hljóðfæraleik- arar og einnig fólk með mismikla reynslu af kór- söng eins og gengur. Tónlist Óperukór Hafnar- fjarðar tíu ára Elín Ósk Óskarsdóttir Sumardaginn fyrsta kom út ný barnabók eftir skartgripa- hönnuðinn Hendrikku Waage. Kemur bókin út bæði á ensku og íslensku. Rikka á töfra- hring og með hans hjálp getur hún ferðast í tíma og rúmi um víðáttur Íslands. Bókin bregð- ur upp myndum af áhugaverð- um stöðum og skemmtilegum ævintýrum sem börn geta lent í á töfralandinu Íslandi. Tilgangurinn er að skapa löngun hjá smáfólkinu til að ferðast um landið en einnig er þetta dálítil fræðslusaga sem vekur okkur til meðvitundar um hvers vegna við eigum að gæta jarðarinnar fyrir komandi kyn- slóðir. Bókmenntir Hendrikka Waage gefur út barnabók Hendrikka Waage Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is „ÉG hef lengi verið hvattur til að skrifa eitthvað en gat það ekki sjálfur. Fyrir tilviljun hitti ég Hávar Sigur- jónsson og sá að hann var maður sem ég gæti treyst til verksins. Hann kom til mín og við sátum saman í allmörg skipti og ég rifjaði upp það sem ég mundi og hann skrifaði niður,“ segir Páll Gíslason læknir en æviminningar hans eru nýkomnar út. Það er Hávar Sigurjónsson, leikskáld og blaðamað- ur, sem skráir, og Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út, en hún ber titilinn Læknir í blíðu og stríðu. „Það er bæði gleði og kvíði sem fylgir útkomunni,“ segir Páll. „Maður vill að allt sé rétt og ég átti hauka í horni í uppkomnum börnum mínum og Soffíu, konunni sem ég hef verið giftur í sextíu ár, því hún man margt með mér.“ Mörg tækifæri Páll hefur komið víða við. Hann var skurðlæknir og brautryðjandi í æða- skurðlækningum og byggði upp æða- skurðdeild á Landspítalanum eftir að hann var ráðinn þar yfirlæknir árið 1970. Hann var skátahöfðingi Íslands í tíu ár og stjórnmálastörfum sinnti hann löngum fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. „Ég hef átt góða og gjöfula ævi,“ segir Páll. „Ég hef fengið mörg tæki- færi til að láta að mér kveða, til góðs vonandi. Fyrst í námi og læknisstarfi á Landspítalanum, þar var ég svo heppinn að Snorri Hallgrímsson pró- fessor var nýbyrjaður og ég naut þess mjög að hann hjálpaði mér fyrstu stigin í skurðlækningunum. Hann var mjög fjölhæfur, gerði alls konar að- gerðir, og ég lærði mikið af honum. Sú reynsla var mér ómetanleg þegar ég starfaði um tíma á Akranesi, var þar eini skurðlæknirinn og átti að geta gert allt.“ Á hægri vængnum Pólitísku starfi sinnti Páll fyrir Sjálfstæðisflokkinn í fjörutíu ár, sat í bæjarstjórn Akraness og síðar í borg- arstjórn Reykjavíkur. „Ég blandaðist í pólitíkina í Reykjavík fyrir orð Geirs Hallgrímssonar. Fjölskylda mín hef- ur alltaf verið á hægri væng stjórn- mála. Ég styð velferð og álít að ríkið eigi að koma þeim til aðstoðar sem þurfa á hjálp að halda.“ Páll er orðinn 85 ára. „Heilsan er eins og búast má við en það vill mér til láns að kona mín er mjög hraust og styður mig í öllu.“ Góð og gjöful ævi  Æviminningar Páls Gíslasonar yfirlæknis, borgarfulltrúa og skátahöfðingja eru komnar út  Hávar Sigurjónsson skráði eftir Páli og Hólar gefa bókina út Morgunblaðið/Ernir Páll Gíslason „Ég hef átt góða og gjöfula ævi. Ég hef fengið mörg tækifæri til að láta að mér kveða, til góðs vonandi,“ segir læknirinn m.a. í spjalli. Aðeins hálfum mánuði eftir9.4. sl. leitaði Sinfóníuhljóm-sveitin aftur á náðir Lang-holtskirkju. Nú af enn betri ástæðu, þar eð einungis strengjadeild hennar kom fram; raunar aðeins helm- ingur. Enda reyndist fullrausnarleg kirkjuheyrðin sem sérsniðin fyrir 22 strokleikara, sembal og einleiksfiðlu, með hæfilegri deyfiaðstoð þétt set- inna hlustendabekkja. Þó að fæstir áheyrenda létu hljóm- burð ráða úrslitum, þá skipta fylling og ómtími vettvangs samt miklu um hljómblæ strokhljóðfæra, fremsta ígildis mannsradda. Fyrir vikið átti kirkjan drjúgan hlut að eggjandi eyrnaveizlu sl. föstudags. Hér þurfti enginn spilari að þenja sig á kostnað tóngæða, og svigrúm hússins leyfði gífurlegt styrksvið allt niður fyrir hvíslandi pppp. Atriðin tvö – Árstíðafiðlukonsertar Vivaldis um Vor, Sumar, Vetur og Haust og jafnmargar tónlýsingar tangósnillingsins Astors Piazzolla (1921-92) um „Árstíðir Buenos Aires“ (1965) undir áhrifum feneyska bar- okkmeistarans – voru skemmtilega upp sett. Fyrst V1-P1-V2-P2, og eftir hlé P3-V3-P4-V4; sumsé í spegluðu bogaformi, í stað þess að leika hvora höfundarfernu fyrir sig. Fyrir því var gild ástæða, enda vísaði Piazzolla [eða öllu heldur strengjaútsetjari hans Leonid Desyatnikov] iðulega í stefja- brot fyrirmyndarinnar frá 1720. Skemmtileg smáinnskot, og hæfilega hógvær. Útsetning Desyatnikovs fyrir strengi frá 1999 kvað nú kunnust allra á CEP og myndaði skemmtilega samfellu við konsertafernu Vivaldis í nefndri uppröðun. Tveir gjörólíkir heimar – en samt tengdir leyndum sem ljósum böndum, allt að því eró- tískum. Rétt má svo heita að Quatro estaciones hafi aldrei áður heyrzt hér, því jafnvel þótt kvennakvartettinn Elektra flytti umritaða frumgerð í fyrrahaust, þá er strengjaútsetningin stórum skemmtilegri. Samt var engin spurning um hvað laðaði mest. Árstíðir Vivaldis – stæld- asta „prógramm“-tónverk fyrr og síð- ar – sló þegar 1955 í gegn á breiðskí- fuvangi sem vinsælasta klassík allra tíma í innspilun I Musici með Felix Ayo. Stendur það met óhaggað, jafn- vel þótt upprunahreyfing seinni ára- tuga hafi kollvarpað fyrri róm- antískari nálgun. Fóru hlustendur ekki varhluta af því, þrátt fyrir stál- strengd nútímastrokfæri. Flest var þó til bóta – að frátöldu askvaðandi hraðavali á miðþætti Vetrarins er skvetti ódauðlegri melódíu fyrir borð sem hendi væri veifað. Hraðir út- þættir komu hins vegar glæsilega út, t.d. „Borea“ skyndiskaðviðrin (er enn hrjá skútumenn á Adríahafi) við hvít- fyssandi hópsnerpu. Einkum þó eftir hlé, þegar liðið hafði náð að hitna. Elfa Rún Kristinsdóttir sýndi víða meistaratök á einleiksröddinni. Stöku sinni verkaði upprunafáð hend- ingamótun hennar að vísu heldur kenjótt (jafnvel stuttir lokatónar mega gjarna heyrast áður en hrapa niður í núll). En tæknin var ávallt upp á hundrað, og á þeim trausta grunni skartaði sólistinn æ meira heillandi og persónulegri túlkun á viðfangsefn- inu af magnaðri innlifun og krafti. Eldheitar undirtektir nærstaddra komu því engum á óvart. Eggjandi eyrnaveizla Langholtskirkja Sinfóníutónleikarbbbbn Vivaldi: Árstíðirnar. Piazzolla: Cuatro estaciones porteñas. Elfa Rún Kristins- dóttir fiðla og strengir úr Sinfóníuhljóm- sveit Íslands. Stjórnandi: Wolfram Christ. Föstudaginn 23. apríl kl. 19:30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Í bókinni, sem ber titilinn Læknir í blíðu og stríðu, rifjar Páll upp ýmislegt frá löngum læknisferli, skemmtilegum en erfiðum ferðum erlendis sem fararstjóri á heimsmótum skáta um miðja síðustu öld og átökum í stjórnmálunum, bæði við eigin flokksmenn og yfirlýsta andstæðinga. Erfitt en skemmtilegt Kick-Ass gefst ekki upp þó hann komist að því að það getur verið ósköp sárt að vera ofur- hetja 26 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.