Morgunblaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010 LOKAHÓF Körfuknattleiks- sambands Íslands fór fram á laug- ardag. Hlynur Bæringsson úr Snæfelli og Signý Hermannsdóttir úr KR voru útnefnd bestu leik- mennirnir í karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í körfuknattleik, í lokahófi KKÍ. Hlynur var jafnframt kjörinn besti leikmaðurinn í úrslitakeppni karla en Unnur Tara Jónsdóttir úr KR var hinsvegar valin besti leik- maðurinn í úrslitakeppni kvenna. Bestu ungu leikmennirnir voru kjörin Ægir Þór Steinarsson úr Fjölni og Guðbjörg Sverrisdóttir úr Hamri. Bestu þjálfararnir voru kjörnir Ingi Þór Steinþórsson úr Snæfelli í karlaflokki og Benedikt Guð- mundsson úr KR í kvennaflokki. Úrvalslið IE-deildar kvenna: Hildur Sigurðardóttir (KR), Kristrún Sigurjónsdóttir (Hamri), Margrét Kara Sturludóttir (KR), Birna Valgarðsdóttir (Keflavík), Signý Hermannsdóttir (KR) Úrvalslið IE-deildar karla: Hörður Axel Vilhjálmsson (Keflavík), Brynjar Þór Björnsson (KR), Páll Axel Vilbergsson (Grindavík), Sigurður Þorvaldsson (Snæfelli), Hlynur Bæringsson (Snæfelli).  Bestu varnarmenn í IE-deild karla og kvenna: Hlynur Bærings- son (Snæfelli) og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir (KR).  Morgunblaðið hlaut fjölmiðla- verðlaun KKÍ, annað árið í röð. Aðrar við- urkenningar: Prúðustu leik- menn í IE-deild karla og kvenna: Ómar Örn Sæv- arsson (Grinda- vík) og Ragna Margrét Brynj- arsdóttir (Hauk- um). Besti erl. leikm. IE-deild karla og kvenna: Justin Shouse (Stjörnunni) og Heather Ezell (Haukum).  Besti dóm- ari í IE-deildum: Sigmundur Már Herbertsson Úrvalslið 1. deildar karla: Sævar Haraldsson (Haukar), Baldur Ragnarsson (Þór Þ.), Hörður Hreiðarsson (Valur), Óð- inn Ásgeirsson (Þór Ak.), Grétar Erlendsson (Þór Þ.). Besti leik- maðurinn: Grétar Erlendsson. Besti þjálfari 1.d. karla: Borce Ilievski (KFÍ). Úrvalslið 1. deildar kvenna: Íris Gunnarsdóttir (Skallagrím- ur), Erna Rún Magnúsdóttir (Þór Ak.), Eva María Grétarsdóttir (Fjölnir), Gréta María Grét- arsdóttir (Fjölnir), Salbjörg Sæv- arsdóttir (Laugdælir). Besti leikmaðurinn: Gréta María Grétarsdóttir (Fjölnir). Besti þjálfari 1.d. kvenna: Eggert Maríuson (Fjölnir)  Áhorfendaverðlaun 2009-2010 Stuðningsmenn Snæfells  Silfurmerki KKÍ: Ágúst Kárason, Sigmundur Már Herbertsson.  Gullmerki KKÍ: Svali Björgvinsson. Hlynur og Signý best Ægir Þór Steinarsson Guðbjörg Sverrisdóttir Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir Sigmundur Már Herbertsson ÞAÐ verður örugglega mikil spenna í íþróttahúsinu á Varmá í kvöld þegar lærisveinar Geirs Sveinssonar í Gróttu á Seltjarnarnesi bregða sér bæjarleið. Afturelding og Grótta munu þá leika annan leik sinn í umspilinu um eitt laust sæti í efstu deild karla, N1-deildinni, í handknattleik næsta vet- ur. Afturelding hafði betur í leik liðanna á Seltjarnarnesi á laugardaginn, 25:22, og tryggir sér sæti í efstu deild með sigri í kvöld. Afturelding færi þá upp um deild ásamt Sel- fyssingum þannig að tvö lið úr annarri deildinni færast upp um deild og Grótta og Stjarnan færu þá niður um deild. En Grótta á enn möguleika á að halda sæti sínu í efstu deild og þarf til þess að sigra í Mosfellsbænum í kvöld og síðan aftur úti á Seltjarnarnesi á miðvikudgskvöldið þegar oddaleikurinn verður, komi til hans. Leikurinn á laugardaginn var jafn og alveg ljóst að það verður vel tekið á því í Mosfellsbænum í kvöld þegar liðin mætast öðru sinni. Hjalti Þór Pálmason og Anton Rúnarsson voru markahæstir í liði Gróttu á laugardaginn með fimm mörk hvor um sig en hjá Aftureldingu var Bjarni Aron Þórðarson með sjö mörk og Jón Andri Helgason gerði fimm. skuli@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Sigur Hrafn Ingvarsson sækir að Matthíasi Ingimarssyni. Nær Grótta í oddaleik? Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „MÉR þætti gaman að vita hversu oft Haukar hafa leikið þann leik að snúa tapaðri stöðu í vinning í leikjum sínum í vetur. Þau eru örugglega nokkur skiptin enda liðið feikisterkt og býr yf- ir mikilli reynslu,“ sagði Óskar og und- irstrikar að sitt verk fram að næstu viðureign úrslitanna verði að fara yfir og kanna hvað veldur því að hans menn glopra niður vænlegri stöðu á síðustu tíu til fimmtán mínútum leikja. Í gær sluppu Valsmenn fyrir horn en naumlega þó. „Við megum ekki láta þetta gerast hvað eftir annað,“ sagði Óskar Bjarni og bætti við. „Það er alls ekki boðlegt hjá okkur að skora ekki nema tvö mörk síðasta stundarfjórð- unginn í leiknum. Á þeim tíma var enginn leikmanna minna mjög líklegur til þess að skora. Við þurfum að fara vel yfir okkar mál áður en að þriðja leiknum í einvíginu kemur. Ég neita því ekki að það var farið að fara um mig í lokin. Síðustu mín- úturnar frá fyrsta leiknum við Hauka á föstudagskvöldið runnu í gegnum huga minn. Ég er með reyndan að- stoðarþjálfara, Heimi Ríkarðsson, mér við hlið og það skiptir miklu máli á svona stundum. Útlitið var ekki bjart og allt stefndi í jafntefli og þar með að leikurinn yrði framlengdur. Það bjarg- aði okkur að Aron [þjálfari Hauka] fékk gult spjald. Þá fengum við nýja sókn, gátum stokkað spilin upp á nýtt og spilað upp á sigurmarkið,“ sagði Óskar Bjarni og óttast ekki fram- haldið, ekki síst ef tekst að draga úr miklum sveiflum í sóknarleik Valsliðs- ins. „Við höfum alveg næga orku til þess að leika okkar sterku vörn í fimm leiki, ef með þarf. Við eigum fleiri mögu- leika í varnarleiknum og síðan á ég nokkra ása uppi í erminni ef í harð- bakkann slær,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, hvergi bang- inn. Var orðinn pínu smeykur „Ég var orðinn pínu smeykur undir lokin að við værum að missa leikinn úr höndum okkar á nýjan leik. En gula spjaldið á Aron varð okkur mikilvægt þegar upp var staðið. Það var síðan sætt að sjá Adda [Arnór Þór Gunn- arsson] skora sigurmarkið,“ sagði Ingvar Árnason, fyrirliði Vals. „Í vörninni höfðum við góð tök á Haukunum allan leikinn. Sóknarleik- urinn var hins vegar erfiður þegar á leið, það var eins við verðum full-„passífir“ þegar við náum góðu forskoti. Á því verðum við að vinna og það verður eflaust verkefni okkar fram að næsta leik,“ sagði Ingvar Árnason. Þurfum að vinna leiðir framhjá vörninni og Hlyni Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var þungur á brún eftir tapið í gær „Það var eins og allan vilja vantaði í liðið lengst af leiknum. Eftir að hafa fengið „sjokkbyrjun“ þar sem við vor- um fimm mörkum undir þá vorum við lengst af í vandræðum í sókn- arleiknum. Ekki síst þegar við vorum manni fleiri. Síðan var skotnýtingin slæm og menn alls ekki að meta hlut- ina rétt. Fyrir næstu viðureign við Val verð- um við að finna leiðir til þess að brjóta vörn Valsliðsins á bak aftur og hvernig auðveldast er að skjóta á Hlyn, mark- vörð þeirra sem svo sannarlega hefur reynst okkur erfiður í tveimur fyrstu leikjunum,“ sagði Aron. „Það er alls ekki nóg að vakna upp síðasta korterið í leiknum. Við verðum að vera á tánum frá fyrstu mínútu í leikjunum. Fyrirfram átti ég von á miklum bar- áttuleikjum og það hefur svo sann- arlega komið í ljós. Úrslit tveggja fyrstu leikjanna hafa ráðist á síðustu sekúndum. Nú verðum við að hvílast vel fyrir næstu viðureign sem fram fer á þriðju- dagskvöldið og mæta betur undir þann leik búnir en í dag,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Íslands- og bik- armeistara Hauka. Morgunblaðið/Kristinn Sterkur Valsarinn Fannar Þór Friðgeirsson hefur reynst Haukum afar erfiður í tveimur fyrstu leikjunum í úrslitakeppninni. Nægur kraftur eftir  Óskar Bjarni segist ánægður með varnarleikinn og markvörsluna en minnka verði sveiflur í sóknarleik Vals  Ekki nóg að vakna korteri fyrir leikslok, segir Aron „Nú tókst okkur að halda út og vinna, rétt eins og við áttum að gera á föstu- daginn,“ sagði Óskar Bjarni Ósk- arsson, þjálfari Vals, eftir nauman sig- ur á Haukum, 22:20, í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeist- aratitilinn á heimavelli gær. Eðlilega var léttara yfir Óskari í gær en eftir fyrsta leik liðanna á föstudag þegar lærisveinar hans misstu unninn leik niður í tap á síðustu sekúndum. LIÐ Sundknattleiksfélags Reyk varð um helgina Íslandsmeistar nattleik karla þegar liðið lagði Hafnarfjarðar 4:3. Það eru aðeins tvö lið sem æf nattleik hér á landi og því var le laugardaginn hreinn úrslitaleik ilinn og þar hafði SKR betur. Leikurinn var bæði jafn og sk legur og í fyrri hálfleik hafði SK var 3:2 yfir og í síðari hálfleik g lið um sig eitt mark. Glenn Moyle gerði tvö mörk f og þeir Vadim Forafonov og St Sævarsson eitt mark hvor. Kris son gerði tvö marka SH og Mla pavcevic eitt. Að úrslitaleiknum loknum lé áttuleiki við hollenska liðið WS og höfðu Hollendingar betur í b áðum leikjunum, unnu SKR 8 6:2. skuli@mbl.is SKR meist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.