Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 1
íþróttir LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010 Úrslitaleikur Það ræðst í dag hvort Haukar eða Valsmenn verða Íslandsmeistarar karla í handbolta. Haukar líklegir ef fá mörk eru skoruð. Valsmenn ef mikið er skorað 4 Íþróttir mbl.is Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „ÉG get staðfest að ég vænti tilboðs frá Hamm á mánudaginn eða í síð- asta lagi á þriðjudag. Þeir ætla að bjóða mér eins árs samning,“ sagði Einar í samtali við Morgunblaðið í gær en fyrir nokkru var honum til- kynnt að hann fengi ekki áfram- haldandi samning við Grosswall- stadt þar sem hann hefur verið síðustu tvö árin. Einar hefur verið einstaklega óheppinn síðustu þrjú árin og verið mikið frá vegna meiðsla í baki og hnjám. Hann segist vera orðinn góður og tilbúinn í slaginn þótt hann hafi ekki fengið mörg tækifæri með Grosswallstadt á þessu ári eftir að hafa jafnað sig á erfiðum meiðslum í hné. Vegna þessa varð Einar að fara í gegnum ítarlega læknisskoðun áður en forráðamenn ASV Hamm gáfu því gaum að gera honum tilboð. „Ég hef farið tvisvar í heimsókn til Hamm þar sem þeir hafa viljað hafa allan vara á sér. Hnéð á mér lítur ekki vel út en mér líður vel og er alveg tilbúinn í slaginn. Ég skil hins vegar alveg að menn vilji vera alveg vissir áður en þeir gera mér tilboð enda er þarna á ferðinni lítið félag sem hefur ekki efni á að gera manni tilboð sem meiðist kannski í fyrsta leik,“ sagði Einar sem segist vera ánægður með að komast ein- hvers staðar að um þessar mundir. Samkeppni er hörð og margir leik- menn að leita fyrir sér meðal félaga í Þýskalandi og hluti þeirra tilbúinn að leika fyrir lág laun. Þarf að slá mikið af launum „Eftir það sem á undan er gengið er ég bara ánægður með að fá vinnu og tækifæri til þess að spila áfram í Þýskalandi þar sem ég verð helst að vera vegna tryggingamála. Sam- keppnin er hörð og líklega verð ég að slá tugi prósenta af þeim launum sem ég er á núna til að ná samningi við Hamm. Ég er tilbúinn til þess og koma mér þannig á framfæri á nýj- an leik. Annaðhvort gengur þetta upp hjá Hamm þar sem maður fær væntanlega mikið að spila eða þá að maður verður að hætta þessu og snúa sér að öðru,“ segir Einar sem ekki hefur átt upp á pallborðið hjá Michael Biegler sem tók við þjálfun Grosswallstadt um áramótin og fá tækifæri fengið með liðinu. „Það væri synd að segja að þjálf- arinn væri minn besti vinur.“ Hamm gerir Einari tilboð  Liðið er á leið upp í efstu deildina  Einar hefur staðist læknisskoðun Þýska handknattleiksfélagið ASV Hamm mun eftir helgina gera Einari Hólmgeirssyni eins árs tilboð. Yfir- gnæfandi líkur eru á að ASV Hamm leiki í 1. deild á næstu leiktíð en liðið trónir á toppi norðurriðils 2. deildar um þessar mundir. EINAR Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Hauka í úrvals- deildinni í handknattleik. Hann tek- ur við af Díönu Guðjónsdóttur sem leyst var frá störfum snemma í vik- unni. Einar þjálfaði karlalið Fram frá miðju keppnistímabili er hann tók við af Viggó Sigurðssyni. Samn- ingur Einars við Hauka er til þriggja ára. Einar er öllum hnútum kunnugur hjá Haukum í Hafnarfirði. Hann er fyrrverandi leikmaður félagsins og var m.a. þjálfari kvennaliðs Hauka áður en Díana tók við þjálfun þess sumarið 2007. Kvennalið Hauka hafnaði í fjórða sæti í N1-deild kvenna á síðustu leiktíð og tapaði fyrir Val í undan- úrslitum úrslitakeppninnar um Ís- landsmeistaratitilinn. iben@mbl.is Einar tekur við hjá Haukum Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is ÞRÁTT fyrir kalt vor þar til fyrir skömmu er ástand grasvallanna víðast hvar orðið nokkuð gott. Keppni í Pepsideild karla hefst á mánudagskvöldið þegar Valur tekur á móti Íslandsmeisturum FH og fyrstu umferðinni lýkur á þriðjudag með fimm leikjum. Af þeim sex völlum sem leik- ið verður á í 1. umferð eru tveir lagðir gervigrasi og því óháðir veðri og vindum. Stjarnan í Garðabæ leikur alla sína heimaleiki á gervigrasi og það er ekki ný staða þegar þeir mæta Grind- víkingum. Nýliðar Selfyssinga munu einnig leika á gervigrasi þegar þeir taka á móti Fylki. KR-ingar og Valsmenn bera sig vel og segja að sínir vellir séu í betra ástandi en á sama tíma síðustu árin. Vals- völlurinn er upphitaður í fyrsta skipti en upphitunarkerfið var sett í gang eftir páska. Jóhann Kristinsson, hinn þraut- reyndi vallarstjóri í Laugardalnum, segir að grasið á aðalleikvanginum líti vel út í fjarlægð. Hann segir þó að völlurinn sé ekki jafn góður og á sama tíma síðustu árin. Gróandinn hafi ekki staðið það lengi yfir að hann sé í toppstandi en hann hafi verið það í upphafi móts síðustu tvö árin. Fram- arar munu leika gegn ÍBV á aðal- leikvanginum í fyrstu umferð. Í Kópavoginum eru Blikar jafn- framt nokkuð sáttir og völlurinn kem- ur ágætlega undan vetri. Undirlag vallarins er hins vegar orðið um 20 ára gamalt og því má völlurinn ekki við miklum rigningum eða leiðinlegu tíðarfari. Völlurinn ætti að óbreyttu að vera í ágætu standi þegar Keflvík- ingar koma í heimsókn. Selfyssingar standa í miklum fram- kvæmdum og gerðu raunar allt síð- asta sumar einnig. Þeir munu vígja nýjan heimavöll seint í júlí með áhorf- endastúku sem tekur um 700 manns í sæti. Selfyssingar eiga þó annan grasvöll sem þeir gætu spilað á ef ekki væri fyrir þær kröfur sem gerð- ar eru varðandi umgjörð og aðstöðu fyrir áhorfendur. Þeir munu því leika á gervigrasi fram í júlí. kris@mbl.is Grasið er gott í Vesturbæ og á Hlíðarenda Til Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Atli Sveinn Þórarinsson mætast á Hlíðarenda á mánudag.  Laugardalsvöllur ekki í eins góðu standi og oft á vorin  Kópavogsvöllurinn í lagi  Byrjað á gervigrasi í Garðabæ og á Selfossi  Ný stúka Selfyssinga tilbúin á grasvellinum síðar í sumar Morgunblaðið/Eggert BORCE Ilievski mun færa sig um set innan norðvesturkjördæmis og verður næsti þjálfari úrvalsdeild- arliðs Tindastóls í körfuknattleik karla. Samningur þess efnis var undirritaður á lokahófi Tindastóls á Sauðárkróki í gærkvöldi. Ilievski er frá Makedóníu en hefur þjálfað KFÍ á Ísafirði undanfarin ár. Ilievski stýrði KFÍ upp í úrvals- deildina á síðustu leiktíð en samn- ingur hans við félagið rann út að tímabilinu loknu. Ilievski tekur við stjórnartaum- unum af Karli Jónssyni sem þjálfað hefur Stólana í eitt ár. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa báðir þjálfað á Ísafirði og í Bolungarvík. kris@mbl.is Borce Ilievski tekur við liði Tindastóls Morgunblaðið/Árni Sæberg Ánægð Rakel Logadóttir, landsliðskona úr Val, hefur mikið yndi af því að lyfta bikurum. Það gerði hún með stæl, einu sinni sem oftar, þegar Valur varð meistari meistaranna í gærkvöld með því að sigra Breiðablik, 4:0. | 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.