Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010 Við Hildur Eir kynntumst fimm ára, á Gamla róló við Mela- skóla. Fljótlega eftir að við urðum vinkonur hittust mæður okkar í Guð- mundarbúð og komust að því að hvor- ug hjónin höfðu svo árum skipti kom- ist í frí vegna barnauppeldis. Þá tíðkuðust ekki Kanaríferðir með kjarnafjölskyldunni heldur var frí frekar eitthvað sem maður naut með maka sínum, laus við krakkana. Upp frá þessu hófst dýrðartímabil hjá báðum fjölskyldum þar sem foreldr- arnir nutu sín í ferðalögum innan- lands og utan en við Hildur og litlu systurnar Sigrún Drífa og Katrín eignuðumst aukasett foreldra og heimila þegar við vorum í pössun á heimilunum á víxl. Það er ómetanleg reynsla að hafa fengið að vera heimagangur hjá Jóni og Helgu í fjölskylduhúsinu á Mel- haganum. Yfir öllu ríkti ró og kyrrð, hver hlutur átti sinn stað og engu var breytt. Að mörgu leyti mættust á heimilinu straumar úr sveitinni hans Jóns og borginni hennar Helgu. Gamli tíminn mætti þeim nýja og iðu- lega fékk maður þá tilfinningu á Mel- haganum að þar stæðu tíminn og hlutir í stað. Við hlustuðum á forn- sögur, þjóðsögur og kvæði af stórum segulböndum á meðan við byggðum hús fyrir nýjustu barbídúkkurnar og glæsilegan barbíbíl undir antíkstól- unum. Seinna spreyjuðum við stríp- aða hárið, settum á okkur hvítt gloss og eyrnalokk í annað eyrað, kysstum Kaja-goo-goo eða Wham-plakötin á veggnum og fórum svo fram í ýsu og kartöflur. Svona var að vera á Mel- haga, við fengum að vera akkúrat eins og við vildum, og uppátækin vantaði ekki, en við höfðum fastan ramma og lærðum góða siði og gildi. Í minni minningu sat Jón oftast í bláa stólnum fyrir framan skrifstof- una þar sem bækur þöktu veggina frá lofti niður á gólf. Í stólnum sat hann yfirleitt með bók í hægri hendi og taflborðið á þá vinstri. Jón var flug- gáfaður og eflaust sterkur skákmað- ur en hann taldi ekki eftir sér að kenna okkur smástelpunum að tefla og aldrei fannst okkur við eins klárar og flottar og þegar við brutum heil- ann yfir skák með Jóni. Það voru stórar stundir þegar maður náði jafn- tefli eða jafnvel að sigra Jón, skipti þá engu að hann var iðulega búinn að snúa taflborðinu við einu sinni eða oftar þegar útlitið var orðið næsta vonlaust hjá manni. Jón var mikill áhugamaður um fal- legt mál og reyndi mikið til að kenna mér að segja ekki ókey, hæ og bæ. Því miður hefur sú lexía ekki alveg skilað sér enn, en ég þakka fyrir allt annað sem ég lærði af honum og Helgu á Melhaganum, það er ótrú- legt happ að hafa fengið að þekkja þau. Guðrún Oddsdóttir. Við Jón ólumst upp hvor sínum megin við hæl Hvammsfjarðar. Samt þekktumst við ekki fyrr en á ung- Jón Marinó Samsonarson ✝ Jón Marinó Sam-sonarson fæddist að Bugðustöðum í Hörðudal 24. janúar 1931. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund 16. september 2010. Útför Jóns var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 24. sept- ember 2010. lingsárum. Ég heyrði fyrst um tilveru Jóns þegar menn riðu þjóð- veginn fyrir ofan túnið og mágur minn sagði að þarna færi víst lær- dómsmaðurinn mikli á Bugðustöðum. Um fermingu var Jón sumsé búinn að fá fróð- skaparorð á sig. Við vorum seinna saman í vegavinnu. Þar kynnt- ist ég hagmælsku Jóns, sem var ættgeng, og þá þegar var hann byrjað- ur að safna kveðskap afkomenda langafa síns, Jóhanns Vigfússonar á Saurum. Sumt af því sem Jón sjálfur orti um okkur vinnufélaga sína mundi hinsvegar vart teljast prenthæft í minningargrein. Á þessum vettvangi kom samviskusemi og heiðarleiki Jóns líka óvænt í ljós. Verkstjórinn lét skólapiltinn hjálpa sér við skýrslu- gerð. Sá var ekki alveg laus við þann eiginleika athafnamanna að vilja hagnast ofurlítið persónulega á rík- issjóði með því að hagræða gögnum. Jón rak augun í þetta og neitaði að horfa framhjá. Næsta sumar vann hann ekki á þessum stað. Við urðum samferða í MR fjóra vetur þar sem flestir þekktu hann undir stytting- unni Jón Sam. Hann lét til sín taka í félagsmálum, var scriba scolaris í 5. bekk og orti stundum í Skólablaðið. Hann stofnaði félög sem honum fannst vanta í skólalífið. Þau voru kölluð Samfélög. Fyrst þeirra var esperantistafélag en lífseigast varð bókmenntafélagið Bragi og starfaði þar til listafélag með fjórum deildum var stofnað 1959. Sumum fannst nóg um þessa athafnasemi Jóns. Þegar við Jökull sömdum óperuna Gunnar og Hallgerður létum við Njál líkja eftir alþekktum töktum Jóns við tals- verð fagnaðarlæti. Um líkt leyti hófst pólitískt millispil Jóns þegar hann varð fyrsti formaður Félags ungra þjóðvarnarmanna. Þeir vildu herinn úr landi, en óttuðust Sovétríkin. Ung- ur últrabolsi í Hörðudalnum hafði nefnilega ofboðið Jóni á barnsaldri með sovéthollustu sinni. Eftir að Þjóðvörn datt út af þingi 1956 dró mjög úr pólitískri virkni Jóns og hann sneri sér alfarið að íslenskum fræð- um. Eftir glæsilegt magisterspróf hélt hann til Hafnar og fékk eitt sinn þá umsögn nafna síns Helgasonar að vera einhver allra þefvísasti „hand- ritauppsnuðrari“ sem hann hefði kynnst. Fræðistörfum hans munu aðrir gera betri skil en nákvæmni hans og gætni í meðferð heimilda var slík að sumir undruðust að hann skyldi yfirleitt hleypa nokkru á prent. Við Jón vorum ekki einungis sam- bekkingar og sveitungar og lögðum stund á skyld fræði, heldur einnig kvæntir bekkjarsystrum lengi vel. Samskiptin voru því talsvert mikil á tímabili, bæði hér heima og í Kaup- mannahöfn þegar við áttum þar leið um. Það voru góð kynni þótt þau gætu á stundum verið blandin nokk- urri eljaraglettu. Mörgum þótti Jón fremur alvarlegur í bragði hvers- dagslega, en hann gat líka brugðið á leik, þegar þannig vildi verkast. Ég leit til hans nokkrum dögum fyrir andlátið. Hann var greinilega á sterk- um lyfjum og leiðslan löng, en samt gat hann tjáð mér sína gerð af fyrri- parti húsgangsins: Ég er einsog jólatré / ég er í hreppsnefndinni. Árni Björnsson. Nú er látinn Jón Samsonarson handritafræðingur eftir aldarfjórð- ungs stríð við erfið veikindi. Ég man er ég sá þau hjónin Jón og Helgu í fyrsta sinn á mannamóti, svo fríð sýn- um og glæsileg. Jón var þá við nám í íslenskum fræðum. Seinna tók hann magisterspróf með ágætiseinkunn, einn örfárra sem þá einkunn hafa hlotið samvæmt reglum þeirra tíma. Síðar kynntist ég Jóni nokkuð þeg- ar hann var sendikennari í Kaup- mannahöfn. Og mjög náin vinátta tókst með okkur eftir að við gerðumst samstarfsmenn við Handritastofnun Íslands, sem síðar nefndist Stofnun Árna Magnússonar. Á langri samleið bar aldrei skugga á skipti okkar. Að- eins einu sinni kom það fyrir að okkur yrði sundurorða. Nú hef ég löngu gleymt hvað á milli bar, en hitt man ég að hann hvarf af skyndingu brott úr fundarstofunni – og ég skundaði eftir honum inn á skrifstofu hans til að gera gott úr öllu, það var nú auð- sótt mál. Jón er vandvirkasti maður sem ég hef nokkru sinni kynnst. Ævinlega mátti reiða sig á að hann færi rétt með allar staðreyndir og tilvitnanir. Hann skildi líka vel hvar þörf var að taka til höndum, og ef hann var verka sinna ráðandi vildi hann beita plógn- um þar sem vænlegast var að yrkja jörðina. Hann var harla fróður um íslensk- ar bókmenntir allt frá upphafi ritald- ar fram til síðari tíma, en þó bar það frá hversu vel hann kunni skil á sögu vorri og bókmenntum frá tímabilinu næst eftir siðaskiptin á sextándu öld, því skeiði þegar svo margt nýtt var á döfinni hér á landi. Og við Jón áttum okkur sameiginlegan draum: Hann ætlaði að semja rit eða stýra rann- sókn á íslenskri sögu og bókmenntum þessa tímaskeiðs. Kjarni rannsóknar- innar átti að vera annáll Björns á Skarðsá, fyrsta veigamikla sögurit eftir siðaskiptin, en síðan átti að rekja þræðina til og frá annálnum í ýmsar áttir. Ég er sannfærður um að þetta hefði orðið ómetanlegt heimildarverk um íslenska menningu í uppafi nú- tímans. En áður en þessi og aðrir fagrir draumar mættu rætast dundi ógæfan yfir. Jón fékk blóðtappa í heilann sem lamaði hann varanlega, bæði andlega og líkamlega, allt til æviloka. Þetta gerðist þegar hann var enn á besta aldri. Hann kom að vísu á vinnustað sinn í Árnagarði á hverjum degi, en þrek hans var þorrið, og það var hörmulegt að sjá hvernig þessi mynd- arlegi og gáfaði maður veslaðist upp smátt og smátt. Síðari árin dvaldist hann á Grund, og alltaf var hann glað- ur og æðrulaus þegar maður heim- sótti hann. Þó var hann nú þreyttur orðinn, og engill dauðans kom með líknandi vængi. Þau hjónin Jón og Helga hlutu bæði sömu grimmu örlögin, heilabil- un og heilsuleysi fyrir aldur fram. En hvort um sig hafa þau látið eftir sig varanleg verk, og saman fóru þau vítt um land til að safna þjóðlegum fræð- um af vörum fólksins og festa á geymslubönd. Það mikla safn mun halda nöfnum þeirra á loft um ókomin ár. Við Sigríður þökkum margar góð- ar stundir og sendum dætrum Jóns og Helgu innilegar samúðarkveðjur. Jónas Kristjánsson. Ein af mínum uppáhaldsbókum er Sólarsýn, kvæði eftir sr. Bjarna Giss- urarson í Þingmúla sem Menningar- sjóður gaf út árið 1960. Jón M. Sam- sonarson valdi ljóðin og ritaði eftirmála. Fremst í bókinni er kvæðið Um samlíking sólarinnar þar sem skáldið vegsamar sólina og líkir henni við allt það besta sem hann veit. Jón dregur í þessari litlu bók fram kvæði sem sýna aðra hlið á lífi og menningu sautjándu aldar en oft hafði verið gert áður; í stað þess að leggja áherslu á eymd og niðurlægingu kemur hér fram gleði yfir fegurð náttúrunnar og gæðum landsins, gamankvæði, ljóðabréf til ættingja og vina, svo nokkuð sé nefnt. Ég kynntist Jóni fyrst sem kenn- ara árið 1985 í námskeiði um bók- menntir síðari alda á MA-stigi í ís- lensku. Námskeið hans voru vel sótt og skýringin á því var ekki síst sú að hann nálgaðist efnið á annan hátt en flestir aðrir kennarar. Hann gerði okkur ljóst að íslensk bókmennta- saga er annað og meira en þær prent- uðu bækur sem fjallað er um í yfirlits- ritum og opnaði okkur heim ungu pappírshandritanna sem geyma alls konar efni sem fáir þekkja. Hann hjálpaði okkur að yfirstíga þær hindranir sem mæta þeim sem vilja nálgast texta sem aðeins eru varð- veittir í handritum. Hann deildi út verkefnum sem fólust í því að við urð- um sjálf að fara á stúfana, lesa hand- ritin, skrifa upp textana og bera þá Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Innilegar þakkir til allra sem hafa sýnt okkur samúð og vináttu vegna andláts, ÓLAFS ANDRÉSSONAR, Þórólfsgötu 5, Borgarnesi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þórey Sveinsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Árni B. Sveinsson, Fanney Ólafsdóttir, Stefán Haraldsson, Stefanía Ólafsdóttir, Bragi J. Ingibergsson, ✝ Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi, KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, lést á heimili sínu Kjarnalundi, Akureyri, miðvikudaginn 15. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Helga Guðmundsdóttir, Svan Ingólfsson, Friðfinna Jónsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Innilegar þakkir til ykkar, sem með samkennd, hlýhug og hjálpsemi veittuð okkur styrk og stuðning við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KOLBRÚNAR DANÍELSDÓTTUR frá Saurbæ í Eyjafirði. Gunnhildur Sigurðardóttir, Pétur Kornelíusson, Bragi Sigurðsson, Sigríður Emilía Bjarnadóttir, Þórður Sigurðsson, Edda Björnsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar kæru, BENNÝJAR SIGURÐARDÓTTUR hússtjórnarkennara, Skúlagötu 40, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans Landakoti fyrir einstaka alúð, svo og hlýju og nærgætni við aðstandendur. Sigríður Á. Pálmadóttir, Guðmundur I. Sigmundsson, Björn Orri Guðmundsson, Bergur Már Guðmundsson, Sigrún Sigurðardóttir, Sigurður Magnússon. ✝ Eiginmaður minn, JÓHANN ÁGÚSTSSON fv. aðstoðarbankastjóri Landsbankans, Kópavogstúni 8, Kópavogi, lést fimmtudaginn 23. september. Útförin verður auglýst síðar. Svala Magnúsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, MATTHILDUR INGÓLFSDÓTTIR, Didda, Völvufelli 44, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 16. septem- ber. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Vilhjálmur Björnsson, Linda María Vilhjálmsdóttir, Leif David Halvorson, Ragnar Örn Vilhjálmsson, Sólrún Hlín og Bjarki Tómas.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.