Morgunblaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Una Sighvatsdóttir Björn Björnsson „Forstöðumenn heilbrigðisstofnana fóru yfir tillögurnar að niðurskurði og hvað þær þýddu og þær þýða í rauninni bara algjört hrun í sjúkrahúsþjónustu á landsbyggðinni,“ segir Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS. Í gær boðaði SASS heilbrigðisráðherra og þingmenn til fundar við sunnlenska sveitar- stjórnarmenn og forsvarsmenn heilbrigðis- stofnana á Suðurlandi og Reykjanesi. Gangi niðurskurðartillögurnar eftir þýðir það að alls þarf að segja upp um 100 manns á Suður- landi og atvinnuleysi þar eykst um 15%. Að sögn Elfu var gagnrýnt bæði samráðs- leysi og skilningsleysi á starfsemi sjúkrahúsa á landsbyggðinni. „Það er tilfinning fólks að hún sé flokkuð eins og annars flokks þjónusta þótt hún sé fyllilega sambærileg við aðra sjúkrahúsþjónustu.“ Fram kom á fundinum gagnrýni á þá stefnu til framtíðar að hafa að- eins tvö sjúkrahús í landinu, í Reykjavík og á Akureyri. „Við búum við landfræðilegar takmarkanir. Það lokast heiðar og svo koma jarðskjálftar. T.d. lokuðust báðar brýrnar hérna, á Selfossi og við Óseyri, í skjálftanum fyrir tveimur ár- um og ef það gerist er nú ekki skemmtilegt að vera hvergi með sjúkrahús á öllu Suður- landi.“ Hitafundur á Sauðárkróki Á Sauðárkróki sótti á annað þúsund fok- reiðra Skagfirðinga baráttufund í gærkvöldi og kom þar glögglega í ljós að Skagfirðingar ætla ekki að taka við boðuðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Til máls tóku Hafsteinn Sæmundsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar, Guðbjörg Árna- dóttir hjúkrunarfræðingur, þá Helga Sigur- björnsdóttir frá Hollvinasamtökunum og síð- astur Bjarni Jónsson, forseti sveitarstjórnar. Var verulega þungt hljóð í öllum ræðu- mönnum sem fögnuðu þó þeim áhuga sem þingmenn kjördæmisins sýndu með nærveru sinni þó að þeir teldu að sá þingmaður sem færi með þennan málaflokk væri illa fjarri. Allir þingmenn sem viðstaddir voru tóku til máls og hétu því að nú yrði bökum snúið sam- an til þess að fá þessum svívirðilega niður- skurði snúið til annars og betri vegar, þó sagði Ólína Þorvarðardóttir að ábyrgðin lægi einnig á stjórnum umræddra stofnana að koma nú með rökstuddar og góðar tillögur um það á hvern hátt mætti mæta þeim nið- urskurði sem óhjákvæmilega yrði einhver. Létu fundarmenn þá í sér heyra og var púað á þingmanninn. Í fundarlok var samþykkt til- laga um að íbúafundurinn hafnaði alfarið boð- uðum skipulagsbreytingum á heilbrigðisþjón- ustu á landsbyggðinni. Þá er gagnrýnt að 70-75% af hagræðingu í heilbrigðisþjónustu eigi að fara fram úti á landi þótt innan við 30% af fjárframlögum ríkisins renni til stofnana utan höfuðborg- arsvæðisins. Í lok ályktunarinnar segir: „Íbú- ar í Skagafirði standa ekki á Austurvelli en eiga samt rétt á að á þá sé hlustað og að sam- félagsgerð og velferðarþjónusta sem hefur verið byggð upp í þeirra heimabyggð í krafti margra kynslóða verði ekki brotin niður á nokkrum mánuðum af stjórnmálamönnum sem eru á mörkum þess að tapa tengslum við þjóðina í landinu.“ Niðurskurðurinn þýðir hrun  Talsmenn heilbrigðisstofnana funduðu með ráðherra, þingmönnum og sveitarstjórnarmönnum  Segja skilningsleysi ríkja gagnvart landsbyggðinni  Mótmælafundir á Sauðárkróki og Selfossi Ljósmynd/Guðmundur Karl Lokuðu Ölfusárbrú „Vil ekki deyja í Reykjavík“ stóð á einu skiltanna sem mótmælendur á bökkum Ölfusár héldu á lofti. Mótmælin fóru friðsamlega fram en brúnni var lokað í 15 mínútur. Morgunblaðið/Björn Björnsson Fjölmenni Hátt í 2.000 Skagfirðingar sóttu baráttufundinn í Fjölbrautaskólanum á Sauð- árkróki. Þungt hljóð var í ræðumönnum og í fundarmönnum öllum sem létu í sér heyra. Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is „Mér finnst fullsnemmt að gefa þessu falleinkunn á meðan þetta er bara í vinnslu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra þegar borin eru undir hann þau ummæli sem forystumenn stjórnarandstöð- unnar hafa látið falla um fundahöld vegna skuldavanda heimilanna. Í gær var forystumönnunum boðið að sitja fund með ráðherrum ríkis- stjórnarinnar í þriðja skipti frá því í síðustu viku. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að um tímasóun hafi verið að ræða. „Ég ætla að ráðfæra mig við félaga mína í dag um hvað við gerum í framhald- inu. Ég sé ekki ástæðu til að mæta á fleiri svona fundi. Þetta var í þriðja skiptið í röð sem við heyrum sömu ræðuna frá Steingrími,“ sagði Þór eftir fundinn í gær. Ekki eiginlegir samráðsfundir Gunnar Bragi Sveinsson, þing- flokksformaður Framsóknarflokks- ins, tekur í svipaðan streng. Hann segist ekki líta á fundina sem sam- ráðsfundi, eins og þeir hafa verið kallaðir. „Við erum á þessum fund- um sem áheyrnarfulltrúar. Það ætti fremur að kalla fundina upplýsinga- fundi fyrir stjórnarandstöðuna. Samráð hlýtur að vera þannig að til- lögur allra aðila fá að koma upp á borðið. En við munum halda áfram að mæta á þá til að fá að vita hvað er að gerast.“ Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, mætti ekki til fundarins í gær. Hann segist ekki sjá tilgang í að funda með ráð- herrunum á þeim forsendum sem lagt sé upp með. „Þetta er ekki sam- ráð um það sem mestu skiptir, sem er að brjótast út úr þeirri stöðnun sem ríkisstjórnin hefur sett sam- félagið í,“ segir Bjarni. Frekari fundahöld fyrirhuguð Á næstu dögum verður fundað með þingnefndum og ýmsum hags- munaaðilum sem að skuldamálum heimilanna koma, fjármálafyrir- tækjum, lífeyrissjóðum og Íbúða- lánasjóði. „Það er verið að vinna þetta af fullri alvöru, allavega af minni hálfu. Enda alvörumál á ferðum,“ segir Steingrímur. „Það er verið að reyna að ná utan um hinn talnalega grunn í þessu öllu. Það er náttúrlega mikið mál að stilla það af.“ Á samráðsfundum sem „áheyrnarfulltrúar“  Fullsnemmt að gefa þessu falleinkunn, segir ráðherra Steingrímur J. Sigfússon Bjarni Benediktsson Þór Saari Gunnar Bragi Sveinsson Fundað vegna skulda » Í dag fundar samráðsnefnd ríkisstjórnarinnar og stjórn- arandstöðu með þingnefndum í Þjóðmenningarhúsinu. » Á morgun verður fundað með umboðsmanni skuldara, Hagsmunasamtökum heim- ilanna og talsmanni neytenda. Alþingi mun í dag kjósa saksóknara til að höfða mál gegn Geir H. Haarde fyrir landsdómi. Á dagskrá þingsins segir orðrétt: „Kosning saksóknara Alþingis og varasaksóknara, skv. 13. gr. laga nr. 3 19. febr. 1963, sbr. ályktun Alþing- is 28. sept. 2010 um málshöfðun gegn ráðherra.“ Að Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir, forseti Alþingis, skuli hafa sett málið á dagskrá bendir til þess að hún muni svara neitandi bréfi Andra Árnasonar, verjanda Geirs, til þingsins í síðustu viku. Þar lýsti hann þeirri skoðun að ákvörðunin um málshöfðun gegn Geir væri fallin niður þar sem saksóknarinn hefði ekki verið kosinn á sama þingi og málshöfðunin var ákveðin. Ekki náðist í Ástu Ragnheiði í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins svaraði hún ekki bréfi Andra í gær en mun vænt- anlega gera það í dag. Kjósi lögmaður Geirs að áfrýja þessum úrskurði Alþingis mun landsdómur fjalla um áfrýjunina. Tillaga verður gerð um Sigríði J. Friðjónsdóttur sem saksóknara í málinu og Helga Magnús Gunn- arsson sem varasaksóknara. Alþingi kýs sak- sóknara í dag Morgunblaðið/Kristinn Seint í gærkvöldi hafði enn ekki tekist að hafa hendur í hári manns sem réðst á 16 ára gamla stúlku í Laugardalnum síðdegis í gær. Að sögn lögreglu var árásin með öllu tilefnislaus, en árásarmaðurinn er meðal annars sagður hafa notað grjóthnullung við árásina. Stúlkunni tókst að komast að verslun við Suðurlandsbraut af eig- in rammleik en þar kom sjúkralið henni til hjálpar. Hún var flutt á slysadeild með höfuðáverka. Árás- armaðurinn er sagður vera um 170 cm á hæð, skolhærður og með- almaður vexti. Hann hafi verið klæddur í dökkan jakka eða peysu, og í hvítum skóm með rauðum röndum að framan. Í gærkvöld höfðu lögreglunni borist ábend- ingar sem unnið hefur verið eftir. Þeir sem veitt geta upplýsingar um málið eru hvattir til að hafa sam- band við lögreglu í síma 444-1100. Lögreglan leitar manns vegna líkamsárásar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.