Morgunblaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2010 Kristján Jónsson kris@mbl.is Forvitnilegt væri að vera fluga á vegg þegar Teitur Örlygsson ræðir við lærisveina sína um markmið vetrarins. Teitur er sigursælasti leik- maður í sögu Íslandsmótsins, ásamt Agnari Friðrikssyni, og Teitur hugsar í titlum eins og fram kemur í viðtalinu hér að neðan. Nú horfir svo við að hann er með leikmannahóp sem gæti farið alla leið á Íslandsmótinu og nokkuð sterkan heimavöll. Stjarnan varð bikarmeist- ari árið 2009 og hví ekki að setja stefnuna á þann stærsta? Morgunblaðið veit ekki hvaða markmið Garðbæingar hafa sett sér en þeir hljóta að stefna hátt. Þeir áttu mjög gott tíma- bil í fyrra og féllu úr keppni í 8-liða úrslitum í hörkurimmu gegn Njarðvík. Stjarnan er með sterkari leikmannahóp en í fyrra ef eitthvað er. Breiddin er meiri með tilkomu Daníels G. Guðmundssonar sem er viðbót við hópinn en einnig geta þeir Ólafur Ingvason og Guðjón Lárusson beitt sér meira en síðasta vetur. Þessar vangaveltur um að Stjarnan geti gert atlögu að Íslandsmeistaratitlinum eru settar fram með fyrirvara um meiðsli lyk- ilmanna auk þess sem leikmannahópur liðanna vill nú stundum breytast þegar líður að úr- slitakeppninni. Eins og sakir standa eru Garðbæingar í góðum málum hvað það varðar að þeirra leikmannakjarni er nánast sá sami þriðja tímabilið í röð. Miðherjinn Djordje Pantelic bættist við hópinn fyrir úrslitakeppn- ina á síðustu leiktíð en átti erfitt með að spila á þeim hraða sem Stjörnuliðið vill spila. Auk þess er verkaskiptingin nokkuð skýr hjá Stjörnunni og jafnvægið getur því raskast ef aðsópsmikill leikmaður bætist í hópinn. Marvin Valdimarsson gekk til liðs við félagið í sumar en hann var stigahæsti íslenski leik- maður deildarinnar á síðasta tímabili. Hann virðist falla ágætlega inn í leik liðsins og á sjálfsagt eftir að aðlagast betur. Hann mun þó ekki skora jafnmikið hjá Stjörnunni og hann gerði hjá Hamri. Morgunblaðið/Kristinn Þjálfarinn Teitur Örlygsson er á þriðja ári sínu sem þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ. Hversu hátt á Stjarnan að stefna? Leikmanna-hópur Stjörnunnar hef- ur styrkst frá síð- asta vetri ef eitt- hvað er en þar hafa reyndar ver- ið mun minni breytingar en hjá flestum liðum deildarinnar. Akureyringurinn Magnús Helgason ákvað reyndar að leggja skóna á hilluna en hann skilaði góðu framlagi í Garðabænum. Ólafur J. Sigurðsson og Djorde Pantelic spiluðu hluta af tímabilinu og eru farnir aftur. Pantelic passaði ekki nægilega vel inn í hraðan leik Stjörn- unnar. Einnig eru horfnir á braut þeir Erling Gauti Jónsson, Jón Pétur Þorsteinsson, Eyjólfur Örn Jónsson, Hafþór Örn Þórisson og Hilmar Geirsson.    Stjarnan nældií stóran bita á leikmanna- markaðinum í sumar þegar liðið fékk til sín Mar- vin Valdimars- son frá Hamri. Marvin gerði það heldur betur gott í Hveragerði og var stigahæsti ís- lenski leikmaður deildarinnar á síð- ustu leiktíð. Einnig fékk Teitur Ör- lygsson gamlan lærisvein úr Njarðvík til félagsins, Daníel G. Guð- mundsson. Hann kom úr Kópavog- inum og var lykilmaður hjá Breiða- bliki síðustu tvö tímabilin. Daníel ætti að auka breiddina hjá Stjörnunni. Einnig eru komnir til félagsins Ottó Þórsson, Sigurbjörn Ottó Björnsson og Dagur Kár Jónsson sem skilaði sér upp úr yngri flokkunum.    Körfuboltinn á sér ekki mikla hefðí Garðabænum eins og komið er inn á í viðtalinu við Kjartan Kjart- ansson hér til hliðar. Stjarnan státar þó af bikarmeistartitli frá árinu 2009. Stjarnan lagði þá geysilega öflugt lið KR-inga í úrslitaleik í bikarúrslitaleik sem meðal annars hafði Jón Arnór Stefánsson innan sinna raða. Fyrir ári vann Stjarnan sigur í Meist- arakeppni KKÍ og aftur voru KR- ingar fórnarlömb þeirra.    Við stjórnvölinn í Garðabænum ereinn sigursælasti körfubolta- kappi Íslands, Teitur Örlygsson, sem varð tíu sinnum Íslandsmeistari með Njarðvík á sínum ferli. Hann tók við Stjörnunni í desember 2008 en hafði áður þjálfað uppeldisfélag sitt í Njarðvík.    Stjarnan tapaði öllum 22 leikjumsínum í úrvalsdeild veturinn 2001-2002 en Jón Guðmundsson og Kevin Grandberg voru þjálfarar liðs- ins á því tímabili. KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Uppgangur Stjörnunnar í íslenskum körfu- bolta á undanförnum árum er eftirtekt- arverður. Félagið teflir fram liði sem spáð er 4. sæti í deildinni í vetur og merkilegt má telja að litlu munaði að deildin yrði lögð niður fyrir ör- fáum árum. „Á keppnistímabilinu þegar við fórum upp í efstu deild, 2007-2008, voru umræður um hvort við ættum að setja almennilegan metnað í körf- una eða vera bara með lið í bumbuboltanum. Uppbyggingin var hafin í yngri flokkunum undir stjórn Jóns Kr. Gíslasonar en meist- araflokkurinn var við það að lognast út af. Menn voru ekki í körfuboltanum af fullri al- vöru og það var því lítill grundvöllur fyrir al- vöruliði. Bragi Magnússon breytti hugs- unarhættinum talsvert þegar hann tók við liðinu og kom því upp um deild,“ sagði bak- vörðurinn Kjartan Atli Kjartansson þegar Morgunblaðið ræddi við hann um starfið í Garðabænum. Innrömmuð mynd í stofunni Kjartan er einn þriggja leikmanna sem þá voru í liði Stjörnunnar og fögnuðu bikarmeist- aratitli ári síðar í Laugardalshöllinni. Ásamt honum voru það þeir Birkir Guðlaugsson og Guðjón Lárusson. „Við vorum á fundinum þeg- ar leggja átti meistaraflokkinn niður og við vorum einnig uppi á pallinum þegar við tókum við bikarnum. Það er rosalega gaman að taka þátt í þessum breytingum. Úrslitaleikurinn gegn KR er upplifun sem maður gleymir örugglega aldrei enda er ég með innrammaða mynd úr leiknum í stofunni hjá mér. Það sýnir hvað þessi sigur skipti okkur miklu máli og það er ákveðið skref fyrir öll félög að ná sínum fyrsta titli,“ sagði Kjartan og hann segir Teit Örlygsson hafa verið rétta manninn til þess að auka metnaðinn í félaginu. „Bragi skilaði okk- ur upp um deild en ég held að það sé erfitt fyrir þjálfara að fara með lið upp um deild og taka svo einnig næsta skref. Teitur er sigurvegari og við vissum að hann kynni að vinna. Hann gerbreytti allri nálgun okkar og velti upp þeirri spurningu af hverju við ættum ekki að hugsa í titlum. Hann víkkaði sjóndeildarhring- inn en þáttur Jóns Kr. í uppbyggingunni er einnig mjög stór. Hann hefur bæði starfað mikið í félaginu og hann kom liðinu einnig í efstu deild í fyrsta skipti. Auk þess tók hann við liðinu ásamt Eyjólfi Jónssyni á undan Teiti. Við notum til að mynda ennþá leikkerfi frá þeim tíma,“ benti Kjartan á. Marvin og Daníel eru liðsmenn Spurður um tímabilið sem nú er nýhafið seg- ist Kjartan vera nokkuð bjartsýnn og þá sér- staklega vegna þess að litlar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Stjörnunnar. „Nánast öll liðin í kringum okkur hafa breyst mikið. Okkur tókst að halda sama kjarna leikmanna og þannig hefur það verið frá því að Teitur tók við. Auk þess fengum við Marvin og Daníel sem eru miklir liðsmenn. Það hjálpar okkur mikið og það var mikilvægt að fá leikmenn sem hugsa ekki um sig fyrst og síðan liðið. Við höf- um hins vegar ekki sett okkur nein markmið fyrir veturinn. Við hugsum svo stutt fram í tím- ann og ég get ekki talið upp nema næstu tvo andstæðinga okkar,“ sagði Kjartan Atli Kjart- ansson við Morgunblaðið. Gerbreytt nálgun  Kjartan, Birkir og Guðjón voru á fundinum þegar leggja átti liðið niður Morgunblaðið/Golli Heimamaður Kjartan Kjartansson hefur gengið í gegnum súrt og sætt með liði sínu Stjörnunni. Kjartan var í leik- mannahópnum þegar stjórn félagsins íhugaði að leggja deildina niður fyrir örfáum árum. Stjarnan er nú í hópi bestu liða landsins. Kjartan Atli Kjartansson 26 ára Bakvörður (1,91 m) Jovan Zdravevski 30 ára Framherji (1,98 m) Daníel G. Guðmundsson 24 ára Bakvörður (1,87 m) Birkir Guðlaugsson 26 ára Bakvörður (1,89 m) Marvin Valdimarsson 29 ára Framherji (1,98 m) Ólafur Aron Ingvason 26 ára Bakvörður (1,85 m) Dagur Kár Jónsson 15 ára Bakvörður (1,85 m) Ottó Þórsson 33 ára Bakvörðrur (1,86 m) Justin Shouse 29 ára Bakvörður (1,81 m) Guðjón Lárusson 29 ára Framherji (1,95 m) Birgir Björn Pétursson 24 ára Miðherji (2,05 m) Fannar Freyr Helgason 26 ára Miðherji (2,02 m) Sigurbjörn Ottó Björnsson 36 ára Framherji (1,96 m) Leikmannahópurinn STJARNAN VETURINN 2010-2011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.