Morgunblaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2010 BEN AFFLECK LEIKUR BANKARÆNINGJA Í SINNI BESTU MYND TIL ÞESSA HHHH „ÞESSI LÆTUR KLÁR- LEGA SJÁ SIG Á ÓS- KARNUM Á NÆSTA ÁRI.“ - T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHHH “ÞETTA ER EINFALDLEGA BESTA MYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU” - Leonard Maltin HHHH “EF ÞAÐ ER TIL MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ, ÞÁ ER ÞAÐ ÞESSI” - Boxoffice Magazine HHHH “THE TOWN ER ÞRILLER EINS OG ÞEIR GERAST BESTIR OG RÚMLEGA ÞAД - Wall Street Journal SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI Jennifer Aniston og Jason Bateman í frábærri nýrri gaman- mynd sem kemur öllum í gott skap HHH „JASON BATEMAN ER FRÁBÆR“ - S.M. ACCESS HOLLYWOOD HHH „ÞÚ MUNT ELSKA ÞESSA MYND“ - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE HHH „THE SWITCH KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART“ - O.W. ENTERTAINMENT WEEKLY SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI 7 Steve Carrell og Paul Rudd fara á kostum ásamt Zach Galifianakis sem sló eftirminnilega í gegn í “The Hangover” SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK 650 kr. 650 kr. Tilboðil 650 kr. Tilboðil 650 kr. GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIRÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 650 BESTA SKEMMTUNIN MUNUM EFTIR 3D GLERAUGUNUM ATHUGIÐ AÐ 3D GLERAUGU ERU EKKI INNI Í MIÐAVERÐI HÆGT ER AÐ KAUPA ÞAU SÉR OG NÝTA AFTUR LET ME IN kl. 8 -10:30 16 DINNER FOR SCHMUCKS kl. 8 10 ÓRÓI kl. 10:10 10 KONUNGSRÍKI UGLANNA m. ísl. tali kl. 6 7 ÚTI ER ÆVINTÝRI m. ísl. tali kl. 6 L / KEFLAVÍK SOCIAL NETWORK kl. 8 7 THE AMERICAN kl. 10:20 16 NORÐ VESTUR kl. 6 L ÓRÓI kl. 8 10 REMEMBER ME kl. 10:20 12 KONUNGSRÍKI UGLANNA m. ísl. tali kl. 6 7 / SELFOSSI KONUNGSRÍKI UGLANNA m. ísl. tali kl. 6 7 LET ME IN kl. 8 -10:10 16 ALGJÖR SVEPPI OG... kl. 6 L THE SWITCH kl. 8 10 ÓRÓI kl. 10:10 10 / AKUREYRI Heimildarmynd um snjóflóðið sem féll í okt. 1995 á Flateyri 30.10.2010 3 4 9 27 28 0 9 6 3 0 6 3 2 3 3 22 27.10.2010 17 22 24 32 47 48 1011 37 Í Öskjuhlíðarskóla eru um 100 nem- endur sem vegna fötlunar sinnar sækja ekki sinn heimaskóla. Nú um helgina blés foreldrafélagið til hrekkjavökupartís sem lukkaðist afskaplega vel. Nemendum og fjöl- skyldum þeirra var boðið, Snigla- bandið kom og lék fyrir dansi og boðið var upp á seiðandi norna- drykk og sælgæti. Líf og fjör var í skólanum eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Galdrar Hvernig ætli nornamúffur bragðist? Voveiflegt Allir voru leystir út með vofusleikjó. Ofsafjör Það var „hræðilega“ gaman hjá krökkunum! Hrekkjavaka í Öskjuhlíð Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Óttar M. Norðfjörð er að gefa út sína fimmtu skáldsögu fyrir jólin en hann vakti fyrst mikla athygli með annarri skáldsögu sinni, Hníf Abrahams, sem var vel heppnuð og dul- úðug spennusaga. Nýja sagan heitir Átt- blaðarósin og er einnig spennusaga þar sem hið átta blaða tákn kemur mikið við sögu. Óttar er með annan fótinn á Spáni og hinn hér á Íslandi, enda er betri helmingurinn spænskur. Áttablaðarósinni er lýst af útgef- anda sem pólitískum trylli um samband Ís- lands við alþjóðleg stórfyrirtæki og sögulegri spennusögu um hið stutta bil á milli fortíðar og framtíðar. Óttar segir að þessi lýsing eigi ágætlega við bókina en sér hafi fundist vinur sinn sem las bókina yfir í handriti orða þetta enn betur. „Hann orðaði þetta þannig að bók- in væri blanda af harðsoðnum amerískum trylli með bílaeltingaleikjum og tilheyrandi og svo þessum skandinavíska trylli sem er miklu hægari. Í norrænu tryllunum er oft verið að velta fyrir sér samfélagsmálum og þess háttar og ég leyfi mér það inn á milli. Vinur minn benti á þetta og mér fannst þetta fín lýsing. En mér finnst þessi skandinavíski tryllir vera of þungur. Oft einhver drukkinn vandræðagaur sem labbar á milli fjölskyldna og kemst í lokin að því hver drap hvern. Svona „who did it?“-spennusögur finnst mér bara ekki nógu krassandi. Hins vegar finnst mér ameríski tryllirinn stundum vera of grunnur, þannig að ég er kannski að skrifa sambland af hvoru tveggja, enda má segja að það sé við hæfi því Ísland er á flekaskilum Ameríku og Evrópu,“ segir Óttar. Hannyrðatáknið og Hollywood Í bókinni er þremur persónum fylgt eftir og fyrst virðist fátt annað tengja þessar per- sónur en áttablaðarósin eða tákn hennar sem fær talsvert rými í þessari bók. „Já, mér hef- ur fundist þetta hannyrðatákn áhugavert og saga þess. Flestir Íslendingar halda að þetta sé upprunalega íslenskt tákn en það er lík- lega arabískt, það sést víða í flísagerð og mósaík í þeim hluta heimsins. En það er rammíslenskt orðið þar sem þetta hefur verið notað svo lengi hér á landi á koddum, vett- lingum, peysum og öðru.“ En Óttar er einnig að vinna að kvikmynda- handriti sem nú er í skoðun hjá þekktri um- boðsskrifstofu í Hollywood. „Já, ég á von á svari frá þeim fljótlega. Þeir hafa sýnt hand- ritinu áhuga fram að þessu en hlutirnir ger- ast frekar hægt á þessu stigi málsins,“ segir Óttar. „Handritið fjallar um konu sem á sér rómantíska gamanmynd að uppáhaldi, en síð- an fer myndin að verða hálfvegis til í lífi hennar.“ Flestar bækur Óttars hafa verið spennusögur og það frekar dulrænar og því óvænt að hann sé farinn að vinna að róm- antískri gamanmynd. „Ég viðurkenni það að ég hef alltaf haft gaman af rómantískum gamanmyndum og þegar ég fékk þessa hug- mynd að efni á einni hugsaði ég með mér: af hverju ekki að prófa?“ segir Óttar. Hannyrðir og harka  Ný spennusaga frá Óttari M. Norðfjörð fjallar um samtímann  Spennusaga í miðri kreppusögu samtímans  Handrit komið til Hollywood  Áttblaðarósin er marglaga og margblaða spennusaga Ljósmynd/Árni Torfason Áttblaðarósin Fimmta skáldsaga Óttars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.