Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 íþróttir Handbolti Akureyri og HK héldu áfram sigurgöngu sinni. Akureyringar lögðu Selfoss og HK-ingar unnu Íslandsmeistara Hauka. Fram sigraði Aftureldingu 2-3 Íþróttir mbl.is „Þetta var ekkert alvarlegt. Ég yf- irteygði aðeins á öðrum lærvöðv- anum og stífnaði upp. Menn vildu ekki tefla á tvær hættur og þar af leiðandi var mér skipt út af. Ætli að ég verði ekki frá keppni í 10 daga eða svo,“ sagði Grétar Rafn Steinsson, bakvörður Bolton og ís- lenska landsliðsins, í gær. Hann meiddist lítillega á lærvöðva í kapp- leik Bolton og Everton í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í fyrra- kvöld og fór af leikvelli af þeim ástæðum á 59. mínútu leiksins. „Ég talaði við Óla [Ólaf Jóhann- esson landsliðsþjálfara] í dag og verð ekki með í vináttulands- leiknum við Ísrael í næstu viku,“ sagði Grétar Rafn. Í hans stað kall- aði Ólafur í gær Arnór Svein Að- alsteinsson úr Breiðabliki inn í ís- lenska landsliðið. „Ég átti hvort eð er að taka úr leikbann á laugardaginn hjá Bolton svo þessi meiðsli koma vonandi ekki að sök. Stefnt er á að ég verði klár í slaginn um aðra helgi þegar við í Bolton tökum á móti New- castle á heimavelli. Vonandi gengur það bara eftir,“ sagði Grétar Rafn Steinsson sem fram til þessa hefur ekki misst úr leik með Bolton á leiktíðinni. iben@mbl.is „Stefni á Newcastle“  Grétar Rafn reiknar með 10 daga fjarveru  Missir af landsleiknum í Ísrael  Arnór Sveinn valinn í hans stað Eygló Ósk Gústafsdóttir og Anton Sveinn McKee úr Ægi unnu fyrstu meistaratitlana á Íslands- mótinu í 25 metra laug sem hófst í Laugardals- lauginni í gærkvöld. Eygló Ósk, sem er aðeins 15 ára, vann 800 metra skriðsund kvenna á 8 mín- útum, 54,13 sekúndum og Anton Sveinn, sem er 17 ára, vann 1.500 metra skriðsund karla á 16 mín- útum, 3,35 sekúndum. Aðeins var keppt til úrslita í þessum tveimur langsundsgreinum í gærkvöld. Kristinn Þórarinsson úr Fjölni, sem er 14 ára gamall, setti nýtt drengjamet í undanrásunum í 100 metra fjórsundi karla, 1:01,73 mínúta. Hann náði fjórða besta tímanum og keppir til úrslita síð- degis í dag. Hrafnhildur Lúðvíksdóttir úr SH náði mjög góðum tíma í undanrásum í 100 m fjórsundi kvenna, 1:02,07 mínúta, og Hrafn Traustason úr SH var með besta tíma hjá körlum, 1:00,12 mín- útur. Mótið heldur áfram í Laugardalslauginni í dag. Keppt er í undanrásum fyrri hluta dags en úr- slitasund fara fram klukkan 16.30 til 18 og þá verða krýndir Íslandsmeistarar í 10 einstaklings- greinum og í tveimur boðsundsgreinum. vs@mbl.is Morgunblaðið/Golli Sundmeistari Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona úr Ægi var nærri EM-lágmarki þegar hún kom fyrst í mark í 800 m skriðsundi í Laugardalslaug. Kornungir Íslandsmeistarar  Eygló Ósk, 15 ára, og Anton Sveinn, 17 ára, sigruðu í 800 og 1.500 m skrið- sundi  Kristinn setti drengjamet í undanrásum  Keppt í fjölda greina í dag Jón Guðni Fjólu- son, miðvörður Fram og 21 árs landsliðsins í knattspyrnu, fékk rauða spjaldið í gær þegar hann lék með varaliði þýska stórveld- isins Bayern München gegn varaliði Englandsmeistara Chelsea í æfingaleik í London. Jón Guðni felldi Daniel Sturridge, sókn- armann Chelsea, eftir klukkutíma leik þegar sá enski var sloppinn einn í gegnum vörn þýska liðsins. Chelsea vann leikinn, 4:0, þar sem Sturridge og Fabio Borini gerðu sín tvö mörkin hvor en stað- an var 2:0 þegar Jón Guðni fékk reisupassann. Hann hefur verið til reynslu hjá Bayern síðustu daga og var þar á undan hjá PSV Eindhoven í Hol- landi. vs@mbl.is Jón fékk rautt gegn Chelsea Jón Guðni Fjóluson Oddur Gretarsson, landsliðsmaður í handknattleik úr liði Akureyrar, veit af áhuga þýskra liða á að fá hann í sínar raðir. Oddur segir engar samningaviðræður hafa átt sér stað. „Nei, það er langt í það stig. Ég hef einna helst heyrt af áhuga hjá tveimur liðum í þýsku 2. deildinni, en ég gef ekkert upp hvaða lið það eru þar sem ekkert er komið af stað. Maður hefur bara heyrt af áhuga og það er gaman að því. Það hefur alltaf verið stefnan að komast í atvinnu- mennsku en hvort það verður á næsta ári eða seinna kemur bara í ljós. Ég er bara tvítugur svo ferill- inn er bara rétt að byrja. Ég ætla alls ekki að drífa mig neitt út heldur gera það þegar ég tel það rétt,“ sagði Oddur við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Oddur veit af þýskum áhuga Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG hafnaði í 4.-6. sæti á Concado-mótinu sem lauk á Spáni í gær. Birgir lék loka- hringinn á 71 höggi sem er eitt högg undir pari vallar og lauk leik á fjórum undir pari samtals. Frakkinn Romain Wattel sigraði á níu undir pari samtals. Mótið er hluti af lít- illi spænskri mótaröð sem heitir Hi5. Spilamennska Birgis í mótinu lofar góðu fyrir framhaldið en Birgir mun leika á öðru stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í lok mánaðarins. Birgir lék hringina þrjá á 72, 69 og 71 höggi sem verður að teljast mjög gott í ljósi þess að hann hefur lítið komist í keppnisgolf í haust. Er þetta eina mótið sem Birgir mun leika á í undirbúningi sínum fyrir úrtökumótið. Arnar Snær Hákonarson úr GR komst einnig í gegnum niðurskurðinn og lék á 73 höggum í gær, rétt eins og hann gerði í fyrradag. Fyrsti hringurinn fór hins vegar illa með skorið hjá Arnari en þá lék hann á 77 höggum. Hann hafnaði í 29. sæti á sjö yfir pari samtals. Birgir lék fyrri níu holurnar á þremur undir pari. Hann fékk hins vegar skramba á 13. holu og tapaði þar tveimur höggum. kris@mbl.is Birgir fjórði og lofar góðu Birgir Leifur Hafþórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.