Morgunblaðið - 14.12.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.2010, Blaðsíða 1
VIÐTAL Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Fimmtán ára að aldri er íslenska handknatt- leikskonan Morgan Marie Þorkelsdóttir á leið vestur yfir haf á morgun til að spila sína fyrstu A-landsleiki fyrir landslið Bandaríkjanna. Morgan er fædd og uppalin hérlendis en á hálf- bandaríska móður og er með tvöfalt ríkisfang. Hún hefur því getað spilað með yngri lands- liðum Bandaríkjanna og lék með U17 og U21 liði þeirra í fyrra, en nú er komið að því að spila fyrir A-liðið í mikilvægum umspilsleikjum við Kanada um sæti á Ameríkuleikunum (Pan Am- erican Games), sem eru nokkurs konar Ólymp- íuleikar 42ja Ameríkuþjóða og fara fram í Mexíkó næsta haust. „Fékk sms frá vinkonum mínum“ „Þetta var bara tilkynnt á heimasíðu hand- knattleikssambandsins í Bandaríkjunum og ég fékk sms frá vinkonum mín- um þar sem þær voru að óska mér til hamingju. Ég vissi ekkert um þetta fyrr og þetta kom mér frekar mikið á óvart. En ég er búin að spila með helmingnum af stelp- unum í liðinu og þekki þær ágætlega. Í U17 og U21 liðunum voru stelpur eins og ég, sem hafa alist upp í Evrópu og þekkja handboltann vel. Þær sem komu frá Bandaríkj- unum voru hins vegar ekkert vanar handbolta heldur búnar að æfa einhverjar aðrar greinar. Mér fannst gott að spila með þessum liðum. Sumar stelpurnar voru auðvitað betri en ég, sérstaklega þær sem komu frá Noregi, en mér fannst þetta rosalega góð reynsla og mér fannst ég bæta mig mikið á þessum tíma með þeim,“ sagði Morgan við Morgunblaðið í gær á milli þess sem hún bjó sig undir síðasta jólaprófið sitt á fyrsta ári sínu í MR. Morgan er nefnilega ekki bara góð í handbolta því hún er ári á und- an í skóla. Getur líka leikið fyrir landslið Íslands Hér á landi hefur Morgan, sem er rétthent skytta, æft og spilað með 3. og 4. flokki Vals auk þess sem hún æfir með meistaraflokknum sem varð Íslandsmeistari í vor. Hún hefur spil- að með U16 landsliði Íslands og gæti átt eftir að leika með A-landsliðinu í framtíðinni, en ein- hver vafi virðist vera á því hvaða áhrif það hef- ur að hún spili fyrir Bandaríkin núna. „Mér hefur verið sagt að með því að fara í þessa leiki núna megi ég ekki spila með ís- lenska landsliðinu í 3 ár, en það hafa aðrir þjálf- arar sagt að ég megi það alveg. Það eru skiptar skoðanir um þetta,“ sagði Morgan sem fær góð- an stuðning þjálfara sinna hjá Val: „Þjálfararnir mínir hafa hjálpað mér mjög mikið með aukaæfingum og slíku svo ég sé upp á mitt besta þegar ég fer út. Svo er ég í jóla- prófunum líka þannig að það kemst ekkert ann- að að.“ Fimmtán ára í A-landslið  Íslensk handknattleikskona á leið til Bandaríkjanna í umspilsleiki við Kanada  Á aukaæfingum hjá Val á milli þess sem hún klárar jólaprófin sín í MR Morgan Marie Þorkelsdóttir ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2010 íþróttir Kvennalandsliðið Aumari persónuleikar en íslensku landsliðskonurnar hefðu lagt árar í bát á erfiðum augnablikum á Evrópumótinu og látið öldurnar ganga yfir sig. 4 Íþróttir mbl.is Reuters Sigurmark Park Ji-Sung fagnar hér markinu sem tryggði Manchester United 1:0 sigur á Arsenal og kom United á topp ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Logi Gunnarsson var atkvæðamik- ill í liði Solna Vikings þegar það vann sigur á Södertälje Kings í sænsku úrvals- deildinni í körfu- knattleik í gær- kvöldi. Logi skoraði 13 stig í leiknum og átti 5 stoðsendingar auk þess sem hann tók þrjú fráköst. Solna skoraði 10 síðustu stigin í 78:67 sigri. Södertälje er áfram í 2. sæti deildarinnar þrátt fyrir tapið en Solna fór upp í 6. sæti með sigr- inum. sindris@mbl.is Logi góður í sigri Solna Logi Gunnarsson Knattspyrnu- maðurinn Krist- inn Steindórsson, efnilegasti leik- maður síðasta Ís- landsmóts og leikmaður Ís- landsmeistara Breiðabliks, er þessa dagana til skoðunar hjá sænska úrvals- deildarfélaginu Örebro. Hann mun leika tvo æfingaleiki með liðinu í vikunni, gegn Karlslund í dag og Forward á fimmtudag. Áður hafði Kristinn verið til reynslu hjá þýska félaginu Greut- her Fürth. sindris@mbl.is Sá efnilegasti hjá Örebro Kristinn Steindórsson Athygli vekur að Laugdælir eru á meðal þeirra átta liða sem eftir eru í Powerade- bikarkeppni karla í körfu- knattleik. Laug- dælir leika í 1. deild og er liðið skipað ungum leikmönnum úr Menntaskólanum og ÍKÍ á Laug- arvatni. „Ég hefði viljað fá mitt gamla lið Skallagrím. Það hefði verið mjög gaman,“ sagði Pétur Már Sigurðsson, spilandi þjálfari Laugdæla, í samtali við Morg- unblaðið í gær. Laugdælir drógust hins vegar gegn Grindavík á útivelli. „Þetta verður mikil áskorun og mjög þroskandi fyrir mína menn en ég er með mjög ungt lið. Ungmenna- félagsandinn er í aðalhlutverki hjá okkur. Leikmenn borga æfinga- gjöld og standa meira og minna í öllum rekstri sjálfir,“ sagði Pétur. kris@mbl.is Borga æfingagjöld Pétur Már Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.