Saga XLII:1 (2004), bls. 7?16. Menn ættu aldrei að skrifa í vondu skapi Auðunn Arnórsson ræðir við brezka sagnfræðinginn Alan S. Milward Alan S. Milward (f. 1935) er einn þekktasti sérfræðingur samtímans í sögu Evrópusamrunans. Vorið 2003 lét hann af störfum sem pró- fessor við European University Institute (EUI) í Flórens á Ítalíu, en hann veitti sagnfræðideildinni þar forstöðu um sjö ára skeið. Hann hafði raunar einnig verið prófessor þar á árunum 1983?1986. Nú vinnur hann að viðamiklum rannsóknum á þátttöku Bretlands í Evrópusamvinnunni á vegum brezku ríkisstjórnarinnar (Official Historian, HM Cabinet Office). Hann var annars prófessor í hag- sögu við London School of Economics and Political Science (LSE) á árunum 1986?1996, prófessor í Evrópufræðum við Manchester- háskóla frá 1971 til 1983 og dósent í evrópskri hagsögu við hag- fræðideild Stanford-háskóla í Kaliforníu 1969?1971. Þar áður hafði hann kennt hagsögu við Edinborgarháskóla og University of East Anglia. Auk þess hefur Milward verið eftirsóttur gestakennari, t.d. við Þrándheimsháskóla og Evrópuháskólann í Brugge. Hann nam sagnfræði við University College í Lundúnum (1953?1956) og hagsögu við LSE (1956?1959). Hagsagan varð snemma það svið sem Milward einbeitti sér að og síðastliðna þrjá áratugi hefur hann ekki hvað sízt sérhæft sig í sögu samrunaþróun- arinnar í Evrópu, með áherzlu á efnahagspólitískar hliðar hennar. Rannsóknir Milwards spanna annars vítt svið. Framan af fræði- mannsferli sínum fékkst hann einkum við að rannsaka heimsstyrj- öldina síðari og áhrif hennar á efnahagslíf og samfélög Evrópuríkja. Hann hefur einnig skrifað almenn rit um hagþróun 19. og 20. aldar með áherzlu á alþjóðleg efnahagssamskipti. Meðal helztu rita Milwards eru War, Economy and Society 1939?1945 (1977), The Re- construction of Western Europe 1945?1951 (1984), The European Rescue of the Nation State (1992) og The Rise and Fall of a National Strategy. V I Ð TA L Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:39 Page 7