ég sjálfsagt hagfræðingur af þeirri gerðinni sem nú er svo að segja útdauð, það sem kallað er applied economist. Ég hefði þurft að vinna sem ríkisstjórnarráðgjafi eða eitthvað því um líkt. Ég hefði ekki komizt langt sem fræðimaður hefði ég haldið mig við hagfræðina eingöngu. Tilgangur fræðikenninga er jú að láta reyna á þær. ? Þú myndir sem sagt ekki vilja vinna við að veita ráðamönnum ráðgjöf? Nei, hreint ekki. ? En ef þeir lesa bækurnar þínar? Sumar lesa þeir, aðrar ekki. Ég hef enga skýringu á því hvers vegna þeir lesa sumar en ekki aðrar. T.d. er bókin The European Rescue of the Nation State frekar ólæsileg að mínu áliti en samt selst hún eins og heitar lummur. ? Svo að þú reynir ekki að skrifa aðgengilegar bækur? Ja, sumar bækur eru aðgengilegri en aðrar, það fer mikið eftir við- fangsefninu. En ég vel mér ekki viðfangsefni eftir því hvort ég tel það til vinsælda fallið eða ekki. Slíkt dytti mér aldrei í hug. Mér er hvort eð er ekki gefið að skrifa alþýðlegan texta. Það hefði verið heimskulegt af mér að láta slíkt hafa áhrif á val mitt á viðfangsefn- um. ? Í bókinni sem þú nefndir, The European Rescue of the Nation State, lýsir þú því að það hafi farið í taugarnar á þér hve þröngt sjónsvið brezkra sagnfræðinga væri, einkum þegar saga Evrópusamrunans er annars veg- ar. Þeir væru um of bundnir áherzlunni á hefðbundna stjórnmálasögu þar sem stofnanir þjóðríkisins og ákvarðanir ráðamanna eru í brennidepli. Þú vildir gera hag- og félagssögu hærra undir höfði ? og horfa út fyrir landa- mæri Bretlands. Ég tel sannarlega að kraftur Evrópusambandsins spretti af efna- hagslegu mikilvægi þess, samningamætti þess á viðskiptasviðinu, ef svo mætti að orði komast. Að innri markaðurinn skyldi hafa verkað eins vel og raun ber vitni er lykillinn að velgengni Evrópu- samrunans; hann er forsenda fyrir því að Evrópusambandið fái starfað sem skilvirk stofnun. Og það er það sem mig langaði til að útskýra fyrir fólki. En núna hafa bandarískir fræðimenn trompað þetta með því að skilgreina Evrópusambandið eingöngu sem efna- hagslegt bandalag og þeir telja að upprunalegur pólitískur tilgang- ur þess sé nú orðinn úreltur, einkum og sér í lagi eftir að járntjald- MENN ÆTTU ALDREI AÐ SKRIFA Í VONDU SKAPI12 Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:39 Page 12