gangi málsins. Hvidberg menntamálaráðherra sagðist þegar hafa látið málið í skoðun með tilliti til þess hvað væri hægt að gera í sam- bandi við sögukennslu í löndunum tveimur. Hann taldi Begtrup hafa fullan rétt á skoðun sinni og að í sameiningu gætu þau og ættu að gera eitthvað í málinu.27 Hansen rektor sagðist vera reiðubúinn til að kynna málið í menningarmálanefnd Norðurlanda en benti hins vegar á að helst væru norrænu félögin til þess fallin að taka að sér þetta verkefni.28 Frantz Wendt, formaður Norræna félagsins í Dan- mörku, sagði sögubókamálið hafa verið sett á dagskrá sögunefnd- ar Norræna félagsins í Danmörku og að það yrði rætt á næsta fundi um þriðja bindi Omstridde Spørsmål i Nordens Historie. Í þriðja bind- inu yrði jafnframt fjallað um samband Íslands og Danmerkur. Wendt tók það fram að bæði menningarmálanefnd Norðurlanda og menntamálaráðuneyti Danmerkur yrði sagt frá framgangi málsins af hálfu Norræna félagsins og þar með var að minnsta kosti laus- legu samstarfi komið á. Það tók nokkurn tíma að ákveða hvernig heppilegast væri að hafa áhrif á sögukennslu þjóðanna tveggja. Frantz Wendt lagði sig þó eftir því að sögubókamálið yrði unnið á vettvangi sögunefnda norrænu félaganna.29 En sendiherrann fór að lengja eftir ákvörðun danskra stjórnvalda um hvernig málið yrði unnið og skrifaði því Albert Michelsen, skrifstofustjóra menntamálaráðuneytisins, tví- vegis sumarið 1952.30 Í bréfunum ítrekaði sendiherrann að til að ná fram breytingum á íslenskum kennslubókum mætti líta á aukna umfjöllun um Ísland í dönskum bókum sem ?mótgreiðslu? (modydelse). Við þetta bætti Begtrup að Ísland hafi ekki leikið eins stórt hlutverk í sögu Danmerkur og Íslendingar vilji vera láta. Auk þess tilkynnti hún Michelsen að norrænu félögin væru byrjuð að vinna í málinu. En Begtrup sagðist telja að það myndi hafa meiri áhrif ef menntamálaráðherrar þjóðanna tveggja tækju málið upp og lagði aftur áherslu á að danska menntamálaráðuneytið tæki form- lega þátt í endurskoðun sögubókanna. Begtrup tilkynnti Michelsen S VAVA R J Ó S E F S S O N26 27 Sama heimild. Bréf frá Flemming Hvidberg, menntamálaráðherra Danmerk- ur, til Begtrup 30.8.1951. 28 Sama heimild. Bréf frá Hansen rektor til Begtrup 31.8.1951. 29 Sama heimild. Bréf frá Hansen rektor til Begtrup 15.10.1951, bréf frá Frantz Wendt, formanni Norræna félagsins í Danmörku, til Hansens rektors 9.10.1951 og bréf frá Wendt til Begtrup 7.2.1952. 30 Sama heimild. Bréf frá Begtrup til Alberts Michelsens, skrifstofustjóra danska menntamálaráðuneytisins, 29.7.1952 og 25.8.1952. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 26