hafi verið að halda á lofti minningunni um slæma stjórn Dana á Ís- landi til þess að unga fólkið veldi örugglega aðskilnað frá Dan- mörku þegar sambandslagasamningurinn rann út.71 Í minnisblaði frá í ágúst 1953 getur Begtrup þess að Jónas hafi þremur árum fyrr verið beðinn um að skrifa framhald af kennslubókum sínum í sögu fyrir barnaskóla72 en Begtrup var að vonast til þess að hann væri hættur við verkið svo að hægt væri að fá annan mann í það. Um miðjan maí 1954 fékk Begtrup Ólaf Björnsson prófessor til að koma á sinn fund í þeim tilgangi að ræða breytingar á íslenskri sögukennslu enda átti námsefnisnefnd sem hann var formaður í að skila niðurstöðum sínum í sama mánuði.73 Tilefni fundarins var að Ólafur, sem hafði verið í forystu lögskilnaðarmanna, hafði látið þau ummæli falla á fundi ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins að á meðan vitleysur og árásir á Dani í kennslubókum í Íslandssögu væru innrættar íslenskri æsku væri ekki að vænta tillitssemi frá þeim. Begtrup sagði Ólafi að hún hefði veitt ummælum hans at- hygli þar sem þetta væri, eftir því sem hún best vissi, í fyrsta sinn sem slík sjónarmið hefðu verið sett fram opinberlega. Ólafur skýrði Begtrup þá frá því að þegar námsefnisnefnd skilaði niðurstöðum sínum myndi hann láta fylgja með sérálit um íslensku sögubæk- urnar. Enn fremur gat Ólafur þess að kennurum á Íslandi hefðu verið sendir spurningalistar til að athuga viðhorf þeirra til sögu- bókanna.74 Gáfu svörin til kynna að kennararnir töldu nær allir að bækurnar væru óhæfar. Ólafur lýsti síðan fyrir Begtrup hve erfitt væri að breyta sögubókunum þar sem stjórnmálamaðurinn Jónas frá Hriflu hefði skrifað þrjár þeirra fyrir barnaskóla. Ólafur ætlaði hins vegar að beita sér áfram í málinu. Í gögnum námsefnisnefndar er að finna ódagsett og óundirrituð drög að tillögum um námsbækur.75 Í tillögunum er einvörðungu B O D I L B E G T R U P 39 71 Bodil Begtrup, Kvinde i et verdenssamfund, bls. 115. 72 RA. Udenrigsministeriet. Representationer i udlandet. Ambassade Rvk. 154, F.2.I. Historisk udvikling mellem Danmark og Island [1951?1954]. Minnisblað Begtrup frá 22.8.1953. 73 Sama heimild. 74 Í þeim spurningalistum til kennara sem eru í gögnum námsefnisnefndar er ekki að finna neinar spurningar um sögukennslu eða sögubækur en sennilegt er að þeir hafi verið fjarlægðir úr gögnunum. 75 ÞÍ. Menntamálaráðuneytið. Fræðslumáladeild. Námsefnisnefnd 1948?1959. Drög að tillögum um námsbækur. Eflaust er um að ræða drög að tillögum þeirrar nefndar sem Ólafur veitti formennsku enda er beðið um umsögn á Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 39