mælt með kennslubókum Arnórs Sigurjónssonar til notkunar í barna- og unglingaskólum. Sérálit Ólafs er ekki að finna í gögnum nefndarinnar en umsögn Stefáns Jónssonar námsstjóra er hins veg- ar þar. Hann sagðist sammála Ólafi um að höfuðtilgangur kennslu í þjóðfélagsfræðum væri ?að veita hlutlausa fræðslu en ekki að inn- ræta sérstakar skoðanir eða lífsviðhorf.?76 Stefán taldi það samt erfitt í framkvæmd og vitnaði því til stuðnings í orð Ólafs um að erfiðara væri að greina á milli staðreynda og persónulegra sjónar- miða í þjóðfélagsfræðum en öðrum greinum. Einnig tók Stefán undir margar athugasemdir Ólafs um kennslubækur í þjóðfélags- fræðum og sögu en sagði varla hægt að semja kennslubækur í þess- um greinum þannig að ekki væri hægt að benda á veilur og skekkj- ur í þeim. Námsstjórarnir Bjarni M. Jónsson og Þórleifur Bjarnason fjölluðu einnig um tillögur námsefnisnefndarinnar.77 Um sögu- kennslu sögðust Bjarni og Þórleifur sammála Ólafi um ?að það megi hvorki ala á óvild til annarra þjóða eða slíta sögukennsluna úr tengslum við hina almennu sögu.? Ummæli Ólafs Björnssonar prófessors áttu eftir að draga dilk á eftir sér. Jónas frá Hriflu brást ókvæða við þeim og sendi Ólafi fyrirspurn sem birtist í Alþýðublaðinu í byrjun árs 1955 þar sem sagði: Þér hafið í bréfi til ríkisstjórnarinnar bent henni á, að í kennslu- bók í Íslandssögu handa börnum eftir mig væru nokkrar stað- hæfingar þess eðlis, að þær myndu spilla góðri sambúð Dana og Íslendinga. Að vonum leggið þér til við stjórnina að fjar- lægja þessa kennslubók frá börnum landsins. Nú vildi ég fara þess á leit við yður, herra prófessor, að þér tilgreinið á opinberum vettvangi í hverju hætta liggur fyrir börnin og sambúð Dana og Íslendinga af þessu sögukveri. Jafn- framt ættuð þér að gefa kennsluhöfundum nokkra leiðbeiningu um hversu ber að skrifa námsbækur um þjóðarsöguna.78 S VAVA R J Ó S E F S S O N40 22 áliti námsefnisnefndarinnar í næstu bréfum á eftir þessum tillögum. Tillögur námsefnisnefndar er hins vegar ekki að finna í gögnum nefndarinnar. 76 Sama heimild. Álitsgerð Stefáns Jónssonar námsstjóra um álit námsefnis- nefndar. Send ráðuneytinu 9.9.1954. 77 Sama heimild. Umsögn Bjarna M. Jónssonar og Þórleifs Bjarnasonar um álit námsefnisnefndar, sent ráðuneytinu 20.8.1954. Álit Snorra Sigfússonar um til- lögur námsefnisnefndar, sent ráðuneytinu 10.8.1954. 78 Jónas Jónsson, ?Fyrirspurn til Ólafs Björnssonar prófessors?, Alþýðublaðið 19.1.1955, bls. 5. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 40