námsefnisnefndar87 að námsskrá fyrir barnaskóla, frá 10. febrúar 1956, segir um markmið sögukennslu að nemendur ?eiga að öðlast skilning á þýðingu friðar og friðsamlegs samstarfs þjóða í milli.?88 En jafnframt kemur fram hin rótgróna söguskoðun um áherslu á frelsisbaráttu þjóðarinnar sem höfuðefni sögukennslunnar: ?Sýna má, að í friði og frelsi þróast menning þjóðarinnar, en á í nauðvörn í ófrelsi og áþján.? Í Námsskrá fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri, sem gefin var út af menntamálaráðuneytinu 1960, er ekki minnst á hvaða kennslubækur skyldi nota við sögukennslu og reyndar er ekkert sagt um sögukennslubækur í námsskránni.89 Aðeins er sagt að nemendur þurfi að öðlast skilning á að saga Íslands sé tengd sögu annarra þjóða og að frelsisbarátta Íslendinga sé eitt höfuðvið- fangsefni sögukennslunnar. Fræðsla sem vopn gegn sögulegum ranghugmyndum Bodil Begtrup lét sér ekki nægja að gagnrýna það sem hún taldi rangtúlkun á sögulegum atburðum. Af bréfum Begtrup má ráða að hún vildi breyta og samræma sýn þjóðanna á söguna með rann- sóknum og fræðslu um samskipti þeirra á liðnum öldum. Hún taldi Dani lítið vita um Íslendinga og sögu þeirra og ekki gera sér grein fyrir hve sárar tilfinningar dönsk valdstjórn hafði vakið á Íslandi. Jafnframt sagði hún fáa Íslendinga átta sig á því hve miklum sár- indum tímasetning sambandsslitanna olli. Áleit Begtrup það vera verkefni sitt að reyna að bæta sambúð þjóðanna en taldi hins vegar íslensku blöðin og einstaka þrætugjarna menn standa í vegi fyrir því. Því vildi sendiherrann stuðla að rannsóknum á sambúð þjóð- anna enda áleit hún að ef breytingar ættu að verða á viðmóti Íslend- inga í garð Dana yrði fyrst að leggja grunn að hugarfarsbreytingum með því að rannsaka ákveðin mál og atburði. Hér verður drepið á nokkrar tilraunir hennar til að ná þessu markmiði. Begtrup áleit til dæmis að Carlsbergsjóðurinn myndi veita fjár- styrk til rannsókna á sambandi Íslands og Danmerkur í aldanna B O D I L B E G T R U P 43 87 Í skjölum Þjóðskjalasafns Íslands eru ekki tekin af öll tvímæli um það hvort námsskrárnefnd og námsefnisnefnd hafi verið ein og sama nefndin. 88 ÞÍ. Menntamálaráðuneytið. Fræðslumáladeild. Námsefnisnefnd 1948?1959. Drög að námsskrá fyrir barnaskóla 10.2.1956, bls. 12. 89 Námsskrá fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri, bls. 34?37. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 43