var og fóru Hálfdán og tveir karlar aðrir til kirkju. Þegar hann kom heim var afmælisins minnst með kaffi og smágjöf frá vinnukonu.29 Síðasta vetur Hálfdánar í bændastétt (1830) bar afmælið aftur upp á sunnudag og var haldið upp á það með líkum hætti.30 Svipað var uppi á teningnum fyrstu hjúskaparárin með síðari konunni, Guðrúnu Vernharðsdóttur.31 Eftir þetta er aðeins getið gjafar í eitt skipti (1857) og þá frá manni utan fjölskyldu.32 Kann að hafa verið tilviljun að hana bar upp á afmælisdaginn. Hálfdán gerði heldur ekki greinarmun á stórafmælum og hinum smærri. Við þessi tækifæri var heldur ekki meira tilstand á heimilinu en endranær. Hann hélt því upp á afmæli sitt mestan hluta ævinnar án ytra til- stands. Þau tímamót sem Hálfdán taldi að fælust í afmælinu hvöttu hann aftur á móti til íhugunar sem varð stöðugt dýpri því lengra sem leið á ævina. Frá 1854 tók hann einnig að minnast afmælisins með því að lesa ?hugleidíngu á afmælisdegi? úr andaktsbók eftir Þjóðverjann Johann Heinrich Daniel Zschokke (stundum skrifað Schocke) (1771?- 1848). Hann var upphaflega rómantískt skáld og leikritahöfundur en nam síðar guðfræði, hlaut doktorsgráðu og varð prestur. Loks settist hann að í Sviss, gegndi þar opinberum embættum og var virkur í stjórnmálum, meðal annars sem frjálslyndur blaðaútgefandi. Hann varð þekktur fyrir hugvekjur sínar, Stunden der Andacht, er fyrst voru gefnar út sem sunnudagsblað á tímabilinu 1809?1816 og síðar í bók- arformi. Vegna þess hve dýr heildarútgáfa hugvekjanna var tók Zschokke saman úrval þeirra í sérstakri bók sem kom út á dönsku 1853, eða ári áður en Hálfdán vitnaði fyrst til þeirra. Nefndist bókin Huusandagtsbog. En af Forfatteren selv foretagen forkortet Bearbeidelse af ?Stunden der Andacht?. Skiptist bókin í 90 þematískar hugleiðingar um kjarnaatriði kristinnar trúar, sem og ýmsa þætti í lífi og starfi Krists. Í henni var auk þess afmælishugvekja, hugvekja á gamlaárs- dag og nýársdag, sem og vor- og hausthugvekja.33 A F M Æ L I S H A L D O G S J Á L F S V I T U N D 67 29 Lbs. Lbs. 2729 8vo. Minnisbók, 28.2.1827. ? ÞÍ. Sálnaregistur Grundarþinga (BC/1). 30 Lbs. Lbs. 2729 8vo. Minnisbók, 28.2.1830. 31 Sama heimild. Sjá og sömu heimild, 28.2.1837 og 28.2.1838. 32 Sama heimild, 28.2.1857. 33 Sama heimild, 28.2.1854. Hálfdán gat þess árlega eftir þetta að hann hefði les- ið úr bókinni að frátöldum árunum 1863 og 1864. Guðfræðingurinn Krarup Vilstrup annaðist dönsku þýðinguna. Zschokke, Huusandagtsbog, bls. 1?2. ? Killy, ?Zschokke?, bls. 691?692. ? Blauenfeldt ?Zschokke?, bls. 948. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 67