Upp frá þessu ber að hafa í huga að afmælisfærslurnar sýna hug- arheim manns sem leit svo á í fyrstu að hann stæði á þröskuldi ellinn- ar og upplifði sig síðar sem gamlan mann. Hálfdán varð þó aðeins 64 ára sem var ekki tiltakanlega hár aldur um hans daga.67 Það einkenn- ir og færslurnar eftir þetta að þær verða almennt lengri og efnismeiri líkt og á öðrum tímaskiptadögum. Árið 1857 ritaði Hálfdán þetta: las eg í Zsohokke etc, sem þessi dagr skyldadi mig til. Ó þú al- mátt. himins og jardar kongur! þú oss fávísu mönnum óskilj- anl. Gud! þú oss vesælu börnum þínum miskunarríki, fadir! Sála mín lofi þig, og alt hvad í mer er vegsami þitt heil. nafn! æ hvad er eg óþakklátr syndari, ad þú sýnir mér svo margfalt meiri nád enn mörgum ödrum, ? ennú hefur þú unt mér ad líta heilbrigdum 1 nýann, endrminn.dag fædingar minnar og tilveru í mannlegu felagi. Ó, eg þakka þer af hrærdu hjarta þessa miklu nád, ? fyrirgefdu mér allar syndir m. á umlidna árinu, blessadu mig eins á tilkomandi 57 ári æfi minnar eins og þú blessadir mig svo eptirminnil. og dásaml. á nýlidna 56 æfi ári mínu. Heil. Guds Andi! hjálpadu mér ad stunda vel köllun mína ad huxa um, ad efla sem mest eg get andl. ríki frels. míns á tilk. ári, ef eg fæ ad aflifa þad. Blessadu elli mína, eg ef lifi svo lengi, med gledi og krapti, svo eg geti í henni bætt bætt [svo] það upp, sem af veikleika mín. vanræktist í æskunni og á full- ordnis árunum. Heirdu minn guddóml leidtogi! þetta bænar- hróp hiarta míns nú í dag. amen.68 Í þessari færslu fæst meðal annars fyllri innsýn í guðsmynd Hálf- dánar sem rúmaði sýnilega bæði hinn hulda, óskiljanlega Guð (Deus absconditus) og hinn opinberaða Guð (Deus revelatus), það er hinn fjarlæga og hinn nálæga Guð eða hinn almáttuga konung him- ins og jarðar og miskunnarríkan föður vesælla (guðs)barna eins og Hálfdán lýsir þessum andstæðum sjálfur. Í einni af fyrstu afmælis- færslum Hálfdánar má raunar fá nokkra innsýn í guðsmynd hans en á afmælisdaginn árið 1829 ritaði hann meðal annars: ?Guð veit það sem mer skal mæta á því [þ.e. komandi æviári], og trúi, að mer verði það alt fyrir bestu, og verði þó vilje þinn Guð minn.?69 Hér H J A LT I H U G A S O N76 67 Árið 1860 voru 5,3% þjóðarinnar 65 ára eða eldri. Hagskinna, bls. 124 (tafla 2. 11.) Í því sambandi verður þó að hafa aldursskiptingu þjóðarinnar í huga, að þá var miklu stærri hluti hennar undir tvítugu en nú er. 68 Lbs. Lbs. 2729 8vo. Minnisbók, 28.2.1857. 69 Sama heimild, 28.2.1829. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 76