Hann má því e.t.v. kalla einn af fyrstu ?nútíma Íslendingunum?. Sé það rétt er skýringarinnar helst að leita í því uppeldi sem hann hlaut og því trúarlega andrúmslofti sem hann mótaðist af sem barn að Möðrufelli í Eyjafirði á heimili píetistans sr. Jóns lærða. Þar er líka án efa að finna uppsprettu þess innilega, tilfinningatengda og næstum ?mýstíska? trúarþels sem er áberandi þáttur í hugleiðing- um og bænum Hálfdánar á afmælisdaginn. Áhrifin frá hugmynd- um Heinrichs Zchokkes sem Hálfdán varð fyrir síðar á ævinni voru prýðilega til þess fallin að endurnýja og dýpka þessa bernskumót- un. Skýrir það einnig þá miklu vanafestu og tryggð við andakts- bókina sem Hálfdán sýndi. Jón lærði hafði mikla sérstöðu í íslenskri guðfræði- og kirkju- sögu. Því má reikna með að afmælishald Hálfdánar og dagbókar- færslur hans á afmælisdaginn veiti fyrst og fremst innsýn í sérstaka trúarmenningu er þróast hafi á heimilinu að Möðrufelli og ef til vill á nokkrum heimilum öðrum þar sem áhrif píetsimans urðu mest hér á landi. Afmælisfærslur Hálfdánar heyra því væntanlega til undantekninga í íslenskri trúartjáningu um daga hans. Af þeim sökum verða ekki dregnar neinar ályktanir af þeim um hve algengt afmælishald eða það ?hugarfar? sem þar blasir að öðru leyti við var meðal Íslendinga um hans daga. Ekki er þó loku fyrir það skotið að Misseraskiptaoffur sr. Jóns í Reykjadal og aldamótabókin hafi stuðlað að útbreiðslu afmælisdagahalds af því tagi sem hér hefur verið lýst. Hvað svo sem því líður varpa dagbókarfærslurnar án efa áhugaverðu ljósi á þau hugarfarssögulegu hvörf sem gengu yfir á upplýsingartímanum og í kjölfar hans þegar formleg aðild að trúar- menningu vék fyrir aukinni áherslu á gildi trúarsannfæringar sam- fara vaxandi einstaklingshyggju og aukinni sjálfsvitund. Að þessu leyti er Hálfdán maður ?nýs tíma? í íslenskri trúarsögu. Frekari rannsóknir á sambærilegum persónulegum heimildum kunna þó að varpa skýrara ljósi á hve einstakur eða dæmigerður Hálfdán var á sinni tíð og þá dæmigerður fyrir hverja, íslenskan almenning, presta eða píetista. H J A LT I H U G A S O N86 Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 86