urður Nordal reynt að leysa málið með því að telja að höfundur Egils sögu hafi ekki haft neinar beinar heimildir úr Landnámu. Hann sér ?enga átyllu til þess að halda, að höfundur Egils sögu hafi haft fyrir sér frásögn elztu Landnámu.?60 Jón Jóhannesson reyndi líka að skera á tengsl söguritarans við forna Landnámu og t.d. segir hann: Munurinn á frásögnum Mb. og Eyrb.s. þar sem samanburði verður við komið, er svo geysimikill, að ólíklegt er, að höf. sög- unnar hafi þekkt Landn., þótt gert sé ráð fyrir, að hann hafi jafnframt haft auðugar munnlegar sagnir og tekið þær fram yfir. Að vísu eru sum atriði eins og nöfn sumra helztu persón- anna hin sömu, en risið verður ekki hátt á áreiðanleika arf- sagnanna, þótt þeim sé látið slíkt eftir, enda gat verið fleiri heimildum til að dreifa en Landn.61 En þarna kemur mergur málsins fram, frásögn Melabókar er lögð að jöfnu við frásögn elstu Landnámu. Jón Jóhannesson ályktar að úr því að Eyrbyggja víkur frá texta Melabókar þá hafi höfundur varla notað forna Landnámu. Texti Sturlubókar sem fer á skjön við Melabók sé þá innskot úr sögunum. Að mínum dómi er því engan veginn hægt að sættast á það að þessi ætluðu tengsl fornsagnanna við Landnámugerðirnar gefi Melabók nokkra sérstöðu. Melabók getur engan veginn skorið úr um hvað staðið hefur í Frumland- námu eða X-forriti Sturlu. Er forrit Melabókar fornt? Það sem fyrst og fremst vakir fyrir mér hér er að geta mér til um lík- legan aldur þess forrits Landnámu sem Melabók er byggð á. Er hægt að sjá einhvern mun á því forriti og líklegu forriti hinna gerð- anna? Björn M. Ólsen virðist í upphafi rannsókna sinna gera ráð fyrir því að forrit Melabókar hafi verið annað og eldra og merki- legra en forrit Sturlubókar og Hauksbókar því að hann talar annars vegar um ?þann mann sem gerðin Sturlubók-Hauksbók uppruna- lega á upptök sín hjá?62 og hins vegar gerir hann ráð fyrir sérstöku forriti Melabókar sem hann undantekningalítið telur upprunalegra A U Ð U R I N G VA R S D Ó T T I R106 60 Sigurður Nordal, ?Formáli?, bls. xxxvi. 61 Jón Jóhannesson, Gerðir Landnámabókar, bls. 96. 62 Björn M. Ólsen, ?Landnáma og Egils saga?, bls. 168: ?den mand, fra hvem recensionen Stb.-Hb. oprindelig stammer?. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 106