ryðjendum í mannlífsviðtölum á Íslandi og hafa viðtöl hans komið út í fjórum bókum. Undir stjórn Valtýs varð Morgun- blaðið stórveldi á íslenskum blaðamarkaði og hefur hann stundum verið kallaður faðir íslenskrar blaðamennsku (GF, bls. 146). Á öðrum stað segi ég: Ýmsar nýjungar voru teknar upp í Morgunblaðinu á árunum 1927 til 1933 og blaðið varð fjölbreyttara en áður. Það tók ótví- ræða forystu meðal íslenskra dagblaða og átti Valtýr Stefáns- son ritstjóri mestan þátt í velgengni blaðsins. Hann er ótvírætt eitt stærsta nafnið í íslenskri blaðasögu 20. aldar (GF, bls. 146). Í bók minni er löngu máli og mörgum köflum varið til að lýsa öll- um þeim breytingum og nýjungum sem urðu á Morgunblaðinu í rit- stjórnartíð Valtýs. Ég dreg þar skýrt fram sérstöðu Morgunblaðsins í íslenskum blaðaheimi. Hvergi er orði hallað á Valtý en þvert á móti lýst góðum eiginleikum hans sem blaðamanns og vilja hans til að gera vel. Umfjöllun mín um hann og Morgunblaðið á hans tímum var lesin í handriti af mönnum nákomnum Morgunblaðinu án þess að þeir gerðu við hana athugasemdir. Hafa verður hér í huga að bókin Nýjustu fréttir! spannar sögu ís- lenskra fjölmiðla frá upphafi, allt frá fyrstu tímaritum, landsmála- blöðum, dagblöðum, útvarpi, sjónvarpi og til netfjölmiðla nútím- ans, og koma þar fjölmargir fjölmiðlamenn við sögu auk Valtýs. Eitt af því sem virðist fara mjög fyrir brjóstið á Jakobi er að hann telur að ég upphefji Finnboga Rút Valdemarsson, ritstjóra Alþýðu- blaðsins á árunum 1933 til 1940, á kostnað Valtýs. Meðal annars seg- ir hann að þetta komi fram í kaflafyrirsögnunum ?Morgunblað kaupmanna ? Valtýr Stefánsson? og ?Hægri pressan eftir stríð? sem fjalli um Morgunblaðið og ?Nýir straumar í blaðamennsku ? Finnbogi Rútur Valdemarsson? sem fjalli um ritstjórnartíð hins síðarnefnda á Alþýðublaðinu (JFÁ, bls. 308). Þarna er að vísu um rangfærslu Jakobs að ræða. Síðastnefndi kaflinn fjallar um öll dag- blöðin á árunum 1933 til 1940 sem fóru þá í gegnum breytingaskeið, ekki síst Morgunblaðið. Sá sem fór hins vegar fremstur í flokki í nýj- ungum var Finnbogi Rútur og því set ég hann í fyrirsögn. Jakob segir að frásögn mín um Finnboga Rút hafi yfir sér ?rómantískan helgisagnablæ? (JFÁ, bls. 307). Ekkert er fjær sanni. Ég dreg enga dul á að Alþýðublaðið undir hans ritstjórn hafi fyrst og fremst verið flokkspólitískt málgagn, oft með æsifréttabrag (GF, bls. 162) og leiði fram vitnisburð um að sannleikanum hafi stundum verið hressilega G U Ð J Ó N F R I Ð R I K S S O N122 Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 122