Valtýs eða tala háðuglega um þá, kallar t.d. Jónas frá Hriflu ?Hriflu- manninn? (JFÁ, bls. 189) og séra Sigurbjörn Einarsson, síðar bisk- up, ?klerk þennan? (JFÁ, bls. 468). Honum er svo umhugað um að búa til goðsögn um Valtý Stefánsson sem nánast hinn eina sanna blaðamann og föður nútímablaðamennsku að frásögn hans verður undarlega eintóna. Saga hans er því sannkölluð hetjusaga. Ef til vill skýrist það af því að Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur kostað söguritun Jakobs og sjálfur hefur hann verið blaðamaður á blaðinu. Jakobi er mjög í mun að sýna fram á það að Morgunblaðið hafi verið óháð Sjálfstæðisflokknum undir stjórn Valtýs og þrátt fyrir allt miklu hófstilltara fréttablað en önnur blöð. Hann segir hins veg- ar að ég gefi í skyn í bók minni að það hafi verið ?þröngsýnt og harðsvírað flokksblað á vegum Sjálfstæðisflokksins? sem hann telur alrangt (JFÁ, bls. 428). Þarna greinir okkur líklega nokkuð á þó að ég segi að vísu skilmerkilega frá hverjir voru eigendur Morgunblaðsins. Blaðið var formlega óháð Sjálfstæðisflokknum (það var þó í samkrulli við hann um útgáfu Ísafoldar-Varðar) en ekki gekk hnífurinn á milli í skoðunum, málflutningi og áróðri. Sjálfur var Valtýr að sögn frábitinn pólitísku argaþrasi og fór örugglega af stað með þann staðfasta ásetning að gera blað sitt að góðu fréttablaði fyrst og fremst. En það tókst honum ekki er hin fyrirferðarmiklu stjórnmál voru annars vegar. Ekki veit ég nein dæmi þess að Morgunblaðið í ritstjórnartíð Val- týs hafi verið gagnrýnið á Sjálfstæðisflokkinn eða veitt honum mál- efnalegt aðhald. Þvert á móti. Árni Óla, blaðamaður Morgunblaðsins um áratugaskeið, upplýsir það meðal annars í bók sinni Erill og fer- ill blaðamanns að ritstjórum Morgunblaðsins, Jóni Kjartanssyni og Valtý, hafi þótt það beinlínis óviðkunnanlegt að blaðamenn þeirra væru ekki flokksbundnir Sjálfstæðismenn.3 Ekki var blaðið heldur opið fyrir greinum eftir pólitíska andstæðinga Sjálfstæðisflokksins og mér vitanlega birtust aldrei viðtöl við menn sem flokkurinn hafði vanþóknun á. Slík viðtöl sáust ekki fyrr en í tíð Matthíasar Johannessens. Fyrir hverjar kosningar breyttust svo fréttasíður Morgunblaðsins í kosningaáróður. Valtý Stefánssyni tókst þrátt fyrir þetta að gera Morgunblaðið að víðlesnu og fjölbreyttu blaði. Hann naut þess líka að atvinnurekendur voru flestir í Sjálfstæðisflokkn- G U Ð J Ó N F R I Ð R I K S S O N124 3 Árni Óla, Erill og ferill blaðamanns hjá Morgunblaðinu um hálfa öld (Reykjavík, 1963), bls. 9. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 124