Á R N I BJ Ö R N S S O N Misjafn skilningur á sögulegum viðburðum Ekki var nema von að Guðmundur Hálfdanarson brygðist við að- finnslum mínum í hausthefti Sögu 2002.1 Það gerði hann í vorheft- inu 2003.2 Ég verð að taka undir við hann að þar sem þögn telst oft samþykki hlýt ég að láta af því vita að ég er andsvari hans ekki samþykkur. Hér mætti láta staðar numið, enda sýnist mér að tví- drægni okkar snúist einkum um misjafnan skilning og jafnvel smekk á ýmsum sögulegum viðburðum. Ég lít til dæmis svo á að bretónsk yfirstétt hafi gefist upp fyrir franskri yfirstétt með því að hafa ?öll litið á sig sem Frakka á 18. og 19. öld? (bls. 165). Ég held einnig fast við það viðhorf að stofnend- ur lýðveldisins Íslands 1944 hafi ekki ?litið á lýðveldið sem þjóð- veldið endurreist? (bls. 167) hvað sem kann að hafa skroppið út úr þeim í lýðæsandi hátíðaræðum. Með endurreistu lýðveldi áttu þeir blátt áfram við að Ísland lyti ekki lengur erlendum konungi fremur en á dögum þjóðveldisins, en ekki að hér yrði endurreist goðaveldi. Ég hlustaði eitt sinn sjálfur á Einar Olgeirsson útskýra þetta fyrir ungum ákafamönnum tíu árum eftir stofnun lýðveldisins. Guðmundur segist ekki skilja hvernig megi túlka blaðsíður 72 og 227 í bók hans Íslenska þjóðríkinu svo ?að óskert einstaklingsfrelsi og almennur kosningaréttur hafi ríkt í Evrópu um miðja 19. öld vegna þess að á þessi atriði er ekki minnst á umgetnum síðum? (bls. 167). Ég skal fúslega viðurkenna að ég kann að hafa oftúlkað orðalag hans á fyrri staðnum um evrópska frjálshyggju gagnstætt íhaldssemi íslenskra bænda, en ég læt lesendum eftir að túlka orð hans á seinni staðnum: ?atkvæði bænda vógu þungt í öllum kosn- ingum?. Hefði hann notað orðin ?óðalsbændur? eða ?stórjarðeig- endur? væri öðru máli að gegna. Guðmundur viðurkennir (bls. 166) að konur, helmingur fólks í Evrópu, hafi ekki haft kosninga- Saga XLII:1 (2004), bls. 126?129. 1 Árni Björnsson, ?Hvað er (ó)vilji??, Saga XL:2 (2002), bls. 217?231. 2 Guðmundur Hálfdanarson, ?Hvað er (ó)eðli??, Saga XLI:1 (2003), bls. 165?173. (Hér eftir verður vísað til blaðsíðutals í sviga í textanum.) Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 126