alla fleyga hugsun, eins og hann kemst að orði, vegna þess að þar með sé öllum beint í ákveðinn farveg og form.15 Ég get verið sam- mála því að form yfirlitsritsins geti verið of þröngt og virkað heft- andi. Hins vegar er ég alls ekki sammála því að það stýfi alla fleyga hugsun: góðar hugmyndir kvikna oft út frá því sem þar er sagt en ekki síður út frá því sem ekki er sagt. Yfirlitsrit geta því bæði vakið spurningar og svarað þeim. Yfirlitsrit ættu þess vegna að gefa til- efni til andsvara og rannsókna sem vonandi leiða til útgáfu nýrra verka, jafnvel yfirlitsrita. Hver veit nema íslenskir kvenna- og kynjasögufræðingar láti verða af því, jafnvel fyrr en síðar, að skrifa Íslandssögu út frá sjón- arhorni kvenna- og kynjasögu. E R L A H U L D A H A L L D Ó R S D Ó T T I R138 15 Sigurður Gylfi Magnússon, ?Aðferð í uppnámi,? bls. 31?32. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 138