skapað samhengi í sögulega þróun og menn hafa jafnvel talað um að þróunin stefni að ákveðnu marki.3 Menn hafa líka tengt nývæð- inguna frelsi og þjóðríki. Jean-François Lyotard fann mjög að ný- væðingarhugmyndinni, bæði að merkingu eða innihaldi og sem mynstri í sagnfræðilegum frásögnum. Hann ritaði árið 1979 (í enskri þýðingu): ?The grand-narrative has lost its credibility ??.4 Stórsögunni um nývæðinguna hafi fylgt einhliða túlkun og lofgjörð um framfarir. Henni hafi fylgt heildarsýn og sú tilhneiging að steypa allt og alla í sama mót. Það sem ekki hafi hæft í mótin hafi fallið út fyrir og ekki verið viðurkennt. Allar frásagnir hafi verið miðaðar við þessa einu. Það er vel hægt að taka undir gagnrýni Lyotards um þetta án þess að hafna yfirlitssögu. Sigurður Gylfi virðist hins vegar telja að yfirlitssögur eða yfirlitsrit (þýðing hans á general history) hljóti jafn- an að vera lituð af stórsögum í þeirri merkingu sem Lyotard miðar við.5 Vel er hægt að skilja andúð Sigurðar Gylfa á stórsögum í þeirri merkingu að allt sé skoðað út frá einni meginhugmynd, svo sem nývæðingu, þjóðríki, öreigum, ?flokknum? eða Vesturlöndum, og haldið að lesendum, beint eða óbeint, að annað skipti ekki máli. Frásagnir af þessu tagi hafa lengi verið gagnrýndar í hópi sagn- fræðinga. Í nýlegum skrifum sínum í Skírni og Sögu fjallar Sigurður Gylfi um stórsögur og hversu óæskilegar þær séu og gagnrýnir þá sem aðhyllast þær. Svo er að skilja á honum að sagnfræðingar í háskóla- samfélaginu (við Háskóla Íslands væntanlega) séu ofurseldir slík- um stórsögum, t.d. nývæðingunni, og séu þar með ?fanggæslur vanans?.6 Ég kannast ekki við það. Þegar Sigurður Gylfi fjallar um stórsögur er hann m.a. að tala um venjulegar yfirlitssögur, svo sem Kristni á Íslandi sem gefin var út á vegum Alþingis.7 S T Ó R S A G A O G Y F I R L I T S S A G A Á H J Ö R U M 159 3 Georg G. Iggers, Historiography in the Twentieth Century. From scientific objectiv- ity to the postmodern challenge (Hanover, 1997), bls. 4?5 og 141. 4 Jean-François Lyotard, The Postmodern Condition: A Report on Knowledge (Min- neapolis, 1984), bls. 37, sbr. 34. 5 Sigurður Gylfi tekur upp endursagnir Úlfhildar Dagsdóttur (Skírnir 2003, bls. 151?152) og Jóns Yngva Jóhannssonar (Saga 2003:2, bls. 18?19) á fræðum Lyo- tards um stórsögur. 6 Sigurður Gylfi Magnússon, ?Fanggæsla vanans,? bls. 399; sbr. sami, ?Að stíga tvisvar í sama strauminn, bls. 129. Sbr. og sami, ?Aðferð í uppnámi,? bls. 25?26, 30 og 36. 7 Sigurður Gylfi Magnússon, ?Fanggæsla vanans,? bls. 398, sbr. 386?387. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 159