skrifaðir út úr sögunni sem sögulausar þjóðir en voru síðar samlag- aðir sjálfhverfri formgerð sinnar voldugu, vestrænu, alltumlykj- andi orðræðu.3 Fræðimenn hafa í seinni tíð tekið að leita leiða til að framleiðsla þeirra endurtaki ekki einvörðungu sama ofbeldið og innbyggt er í samhangandi heildarsögu.4 Snúum okkur þá að einvæðingarkenningunni. Í þessu samhengi hefur hún augljósa möguleika enda er hún tilraun til að opna sann- leikshugtakið fyrir ósammælanlegum nálgunum. Slíkar nálganir lúta ekki samhæfingu að rökrænni heild þar sem vitnisburði fortíð- ar er forgangsraðað með ósambærilegum hætti allt eftir markmið- um rannsóknarinnar. Höfundur kenningarinnar, sagnfræðingurinn Sigurður Gylfi Magnússon, hefur þó ekki sérstaklega farið þá leið að byggja upp kenningu sína með vísan til þekkingarlegs ofbeldis fræðanna á minnihlutahópum. Einvæðingin byggir efasemdir sínar um heildræna nálgun yfirlitsins, línulega hugsun o.s.frv. miklu fremur á þeirri póstmódernísku byltingu sem Sigurður Gylfi telur að orðið hafi í ?hugmyndaheimi fræðimanna og almennings? og sem leitt hefur til þess að stórsagnirnar hafa tekið að falla hver af annarri.5 Einvæðingin siglir því undir merkjum þess að vera ópóli- tísk og frelsandi: ?Einvæðingin felst ? í að komast undan stórsög- unum sem stjórna rannsóknarferlinu og gefa rannsóknunum þess í stað færi á að finna sinn farveg innan viðfangsefnisins með hug- myndafræði einsögunnar sér til fulltingis.?6 Sigurður Gylfi hefur skilyrt inntak þessarar staðhæfingar með ýmsu móti. Þrátt fyrir það stendur eftir sú meining að frelsið eigi að leiða framsækna fræði- A F (Ó)P Ó L I T Í S K R I S A G N F R Æ Ð I 173 3 Ólafur Rastrick, ?Menningarlegt forræði og grunsemdir um hið ósammælan- lega. Um póstkólóníalisma og sagnfræði?. Erindi flutt í Norræna húsinu 28. mars 2000 í fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands, Hvað er póstmódern- ismi? Birt í Kistunni: http://www.hi.is/~mattsam/Kistan/postmodern- ismi/rastrick.htm [skoðað 21.1.2004]. 4 Sjá t.d. sérstaklega frá póstkólóníalísku sjónarhorni: Nicholas B. Dirks, ?His- tory as a Sign of the Modern?, Public Culture 2,2 (1990), bls. 25?33. ? Gyan Prakash, ?Writing Post-Orientalist Histories of the Third World. Indian Historio- graphy Is Good to Think?, Colonialism and Culture. Ritstjóri Nicholas B. Dirks (Ann Arbor, 1992), bls. 353?388. ? Gayatri Chakravorty Spivak, ?The Rani of Sirmur?, Europe and Its Others I. Ritstjórar Francis Barker o.fl. (Colchester, 1985), bls. 128?151. 5 Sigurður Gylfi Magnússon, ?Aðferð í uppnámi?, bls. 21. 6 Sigurður Gylfi Magnússon, ?Einvæðing sögunnar?, Molar og mygla. Um ein- sögu og glataðan tíma. Atvik 5. Ritstjórar Ólafur Rastrick og Valdimar Tr. Haf- stein (Reykjavík, 2000), bls. 139. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 173