G U Ð M U N D U R J Ó N S S O N Myndin af 20. öldinni SAGA 20. ALDARINNAR. Átta þættir. Höfundar handrits: Hannes H. Gissurarson og Ólafur Þ. Harðarson. Framleiðandi: Jónas Sigurgeirs- son. Kvikmyndagerðin Alvís. Sýning þáttanna hófst í Ríkissjónvarp- inu í desember 2002. 20. ÖLDIN. BROT ÚR SÖGU ÞJÓÐAR. Tíu þættir. Höfundur hand- rits: Jón Ársæll Þórðarson. Framleiðandi: Björn Brynjúlfur Björnsson. Framleitt af Hugsjón. Sýndir á Stöð 2 á árinu 2000. Eins og vænta mátti fundu margir þörf hjá sér í aðdraganda alda- mótanna síðustu að taka sögu 20. aldarinnar til skoðunar, reyna að henda reiður á þessari ógnþrungnu og atburðaríku öld, rifja upp, skýra, skilja, meta ? og gera hana upp, hver eftir sínu höfði. Tals- vert hefur verið rætt og ritað um þær bækur sem komu út um sögu Íslands á 20. öld en hér verður sjónum beint að fjölmiðlaefni sem hæst bar á þessu sviði. Þar er um að ræða tvær þáttaraðir, gerðar af miklum metnaði, sem sýndar voru í sjónvarpi um og eftir aldamót- in. Í Ríkissjónvarpinu var Saga 20. aldarinnar sýnd en þar voru að verki stjórnmálafræðiprófessorarnir Hannes H. Gissurarson og Ólafur Þ. Harðarson. Þættirnir eru alls átta og heita þeir: Þjóðin vaknar: 1901?1927, Átök við aldahvörf: 1927?1940, Stríð og friður: 1940?1949, Haftabúskapur og kalt stríð: 1949?1959, Viðreisnarárin: 1959?1971, Ísland stækkar: 1971?1983, Í leit að jafnvægi: 1983?1991 og Þjóð í fremstu röð: 1991?2000. Á Stöð 2 var sýnd þáttaröðin 20. öldin. Brot úr sögu þjóðar (hér eftir nefnd Brot úr sögu þjóðar) eftir Jón Ársæl Þórðarson fjölmiðlamann og var hún í 10 hlutum, hver þeirra helgaður einum áratug. Bók með sama nafni var gefin út árið 2000 undir ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar þar sem myndir eru í aðal- hlutverki.1 Saga XLII:1 (2004), bls. 177?186. S J Ó N R Ý N I 1 20. öldin. Brot úr sögu þjóðar. Ritstjóri Jakob F. Ásgeirsson (Reykjavík, 2000). Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 177