Haft fyrir satt Þrátt fyrir ?misminni? Halldórs Laxness og þá yfirlýsingu hans að minningabækurnar séu ritgerðarskáldsögur lítur Hannes á þær sem sagnfræðilegar heimildir og moðar ómælt úr þeim. Þegar þær stangast á við aðrar heimildir hliðrar Hannes þeim aðeins til eða jafnvel breytir. Í Í túninu heima minnist Halldór á skáldsögu sína ?Aftureldíngu? sem hann skrifaði ungur en týndi svo. Um þetta segir hann: ?Handritið hefur enn verið til um 1930, því það ár rendi Erlendur Guðmundsson yfir það augum og sagði að ég hefði 12 ára dreingur skrifað einsog Kristín Sigfúsdóttir? (bls. 148). Hjá Hannesi verður þetta: ?Einn vinur Halldórs renndi líka augum yfir handrit- ið um 1930 og sagði honum, að hann hefði á fjórtánda ári skrifað eins og Kristín Sigfúsdóttir.? (Bls. 63) Hér breytir Hannes texta Halldórs með því að leggja vininum þau orð í munn að Halldór hafi verið ?á fjórtánda ári? þegar hann skrifaði söguna. Þetta útskýrir Hannes neðanmáls og segir: ?Skv. Í túninu heima, 148. bls., sagði vinurinn, Erlendur í Unuhúsi, að vísu tólf ára drengur, en Halldór hlýtur að hafa skrifað bókina veturinn 1915?1916, þegar hann var þrettán ára og varð fjórtán ára um vorið, svo að því er hér breytt til samræmis.? (Bls. 566, nmgr. 11) Það er rétt hjá Hannesi að Halldór skrifaði söguna fyrsta veturinn sinn í Reykjavík en hann getur ekki haft orð Erlends sem heimild fyrir því. Með leiðréttingum sínum reynir Hannes að sveigja minningar Halldórs undir sagnfræðina. Þetta skapar þversögn í heimildarýni, þar sem sumu er trúað og öðru ekki. Þannig hafnar Hannes frásögn Halldórs af Svölu Benediktsson í Úngur eg var þar sem hún ?virðist ekki vera sannleikanum samkvæmt [?]. Henni er því sleppt hér.? Um þetta vitnar hann til bókar Gylfa Gröndal, Dúfa töframannsins, án frekari upplýsinga um þá bók, hvenær hún kom út eða hvað þar seg- ir. (Bls. 583, nmgr. 10) Hins vegar trúir Hannes frásögn Halldórs af bróður Svölu, Má Benediktsson, í sömu bók og fellir í heilu lagi inn í rit sitt. (Bls. 127?128) Þetta gerir hann jafnvel þótt hann taki það fram neðanmáls að margir hafi ?mótmælt skrifum Halldórs um Má Bene- diktsson, þ.á m. Hrefna Benediktsson í Dúfu töframannsins [?]?.46 H E L G A K R E S S200 46 Hannes getur ekki heimilda um frásögn sína af Má, en hún er tekin úr Úngur eg var, bls. 91?92. Sjá einnig bls. 570, nmgr. 9, þar sem Hannes gerir eftirfar- andi grein fyrir heimildarýni sinni: ?Þótt ýmis skrif Halldórs um Svölu Bene- diktsson virðist ekki vera sannleikanum samkvæmt, enda ekki stuðst við þau Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 200