Þarna á hátindinum trúir Halldór Helgu fyrir því að ?sig dreymdi um að verða mikill maður, láta að sér kveða, auka hróður Íslands.? (Bls. 160) Á móti trúir Helga honum fyrir því að foreldrar hennar séu á móti ráðahagnum. Þar með ljóstrar hún upp leyndarmálinu sem Hannes síðan gerir uppskátt um, og er eitt af nýmælunum í bók hans, ástæðunni fyrir því að slitnaði upp úr trúlofun þeirra. Hugarástandi Halldórs, þegar Helga guggnar á því að strjúka með honum burt, er síðan lýst með hugsunum Sölku Völku þegar Arn- aldur hefur svikið hana: ?Þetta var ein af þeim nóttum lífsins þeg- ar jafnvel gráturinn er freðinn í barminum. Höll hrynur eftir höll, borg eftir borg, og það heyrist ekkert hljóð. Það er einsog saga heils mannkyns líði þar undir lok í þögninni. Jörðin verður aftur auð og tóm. Og myrkur leggst yfir djúpin.? (Bls. 191)59 Um samband Halldórs og Málfríðar Jónsdóttur barnsmóður hans byggir Hannes á viðtali Guðrúnar Guðlaugsdóttur við Maríu Halldórsdóttur, og án þess að geta heimildar gerir hann beina ræðu Maríu að sinni eigin hlutlægu lýsingu: Auk þess að geta ekki heimildar fer Hannes rangt með orð Maríu sem er aðeins að tala um upplifun móður sinnar. Hannes kemur Halldóri að í myndinni og verða þau tvö gangandi berfætt í sand- M E Ð A L A N N A R R A O R Ð A 209 fjöllum. Austan Mosfellsheiðar sést Þingvallasvæðið með vatninu og yfir þar til landsuðurs á Lyngdalsheiði, austur um láglendi Suðurlands, til Vestmanna- eyja og óravídd til hafs.58 58 Egill J. Stardal, ?Esja og nágrenni?, Þættir um nágrenni Reykjavíkur. Árbók Ferðafélags Íslands 1985, bls. 106?108. Hannes vitnar ekki í blaðsíðutal og læt- ur nægja að vísa í sérprent úr Árbókinni sem nefnist ?Esja og Mosfellsheiði? en það er tæpar 60 bls. að lengd. 59 Um þetta er vísað í Sölku Völku, Fuglinn í fjörunni, 26. kafla, án útgáfuárs og blað- síðutals. Tilvísunarmerkið er rangt, 9 í stað 8. Textinn er á bls. 445 í Sölku Völku. Hann er ekki alveg rétt upp tekinn hjá Hannesi sem skrifar ?leggst? í stað ?legst?. 60 ??Hún hefur augun hans Dóra!? Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir við Maríu Halldórsdóttur.? Nærmynd af Nóbelsskáldi. Halldór Kiljan Laxness í augum sam- tímamanna. Ritstjóri Jón Hjaltason (Akureyri, 2000), bls. 31. Frumtextinn ?Mamma sagði mér oft hve yndislegt þetta sumar hefði verið, veðrið gott og gaman að ganga berfætt í sandinum, hvítum og hlýjum,? segir María Hall- dórsdóttir. 60 Texti Hannesar Þetta var yndislegt sumar. Veðrið var gott, og þeim Halldóri og Málfríði fannst gaman að ganga saman berfætt í sandin- um á ströndinni, hvítum og hlýjum. (Bls. 201) Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 209