Hér hefur Hannes dregið langa lýsingu saman í nokkrar línur og tekst með því að eyða sjónarhorni frumtextans. Hann ?þýðir? nöfn- in ?Moskó? og ?Kjalnolt? yfir í viðurkennd heiti þeirra og sleppir örnefnaskýringunum. Yfirleitt gefur hann ekki mikið fyrir áhuga Halldórs og skýringar á örnefnum, en allt slíkt þurrkar hann burt. Þá er ekki annað að sjá en lýsingin á staðháttum við Laxnes sé byggð á eigin athugun Hannesar, en hún er beint upp úr Í túninu heima, og án þess að þeirrar heimildar sé getið: Hér sleppir Hannes allri umræðu um ?Kaldaklofsá?. Með þessu eyðir hann ekki aðeins sjónarhorni Halldórs úr textanum heldur einnig kímninni, og eftir stendur hlutlæg landfræðileg lýsing. Þótt Hannes fái þessa lýsingu þannig tilbúna, og þurfi ekki að gera ann- að en stytta, hefur honum fundist ástæða til að breyta ?undan? í ?undir? og þar með rennsli árinnar sem í stað þess að renna út úr dalnum í vestur gegnum skarð norður undan Helgafelli stefnir í texta hans norður undir Helgafell, og er þá vandséð hvernig hún kemst út úr dalnum.64 M E Ð A L A N N A R R A O R Ð A 213 núna, uppí miðri sveit, heldur þræddi sig með sjónum í niðursveitinni, og var farið upp með Grafarvogi, síðan fyrir voginn yfir litla heiði eða háls sem ég aldrei í minni bernsku heyrði nefnt öðru en því undursamlega nafni Kjalnolt. (Í túninu heima, bls. 27) Frumtextinn Kaldakvísl, áin sem kemur undan brúnum Mosfellsheiðar, og Eyjólfur á Hvoli, sem eitt ár bjó í Laxnesi, nefnir Kaldaklofsá, og þykir víst ekki nógu fínt, þessi á fellur um endilángan Mosfellsdal miðjan til vesturs, og útúr honum gegn- um skarð í Ásunum norðrundan Helga- felli [?]. (Bls. 29) Texti Hannesar Kaldakvísl kemur undan brúnum Mosfellsheiðar og rennur um endilang- an Mosfellsdal miðjan til vesturs og úr honum um skarð í Ásunum norður und- ir Helgafell. (Bls. 18) 64 Benda má á fleiri staðfræðivillur í bók Hannesar. T.a.m. eru Skeggjastaðir sagðir vera ?norðan við fellið frá Laxnesi? (bls. 23), en þar er ekkert fell. Æsu- staðir í Mosfellsdal eru sagðir vera undir Helgafelli (bls. 23), en þeir eru und- ir Æsustaðafjalli. Kálfakot er sagt hafa verið vestan Helgafells (bls. 144), en það stóð sunnan við Úlfarsfell og var nafni þess síðar breytt í Úlfarsá. Þá set- ur Hannes Varmá upp á Kjalarnes (bls. 158), og hefur þar augljóslega ruglað því saman við Kjalarnesþing í frásögn Halldórs af ?fornum skemtistað Kjal- arnessþíngs, Varmárbökkum? (Grikklandsárið, bls. 64). Varmá rennur um miðjan Mosfellsbæ. Ég þakka Bjarka Bjarnasyni fyrir þessar ábendingar. Saga 2004 - NOTA 1.12.2004 9:40 Page 213