Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 3
HANDBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Það var mjög dauft yfir strákunum eftir leik enda voru þetta mikil von- brigði. Menn ætluðu sér áfram enda erum við vanir því að spila á stór- mótum og að standa okkur þar. En svona er þetta bara. Lið eins og Króatía, sem spilaði við okkur til úr- slita á heimsmeistaramótinu síðast, duttu til dæmis líka út. En við erum mjög vonsviknir,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfara U21- landsliðs karla í handknattleik, sem tapaði í gær gegn Serbíu, 28:24, í lokaleik sínum í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Grikklandi næsta sumar. Ísland vann á laugardag tveggja marka sigur á Eistlandi, 31:29, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Áður hafði liðið unnið öruggan sigur á Makedóníu svo að leikurinn við Serba, sem voru á heimavelli, var úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins sem var það eina sem gaf sæti í úr- slitakeppni HM. „Stór skörð höggvin“ Sami árgangur og keppti nú í Serbíu varð í 2. sæti á heimsmeist- aramóti U19 ára fyrir tveimur ár- um. Nokkra frábæra leikmenn vant- aði þó frá því þá, bæði vegna meiðsla og vegna þess að Aron Pálmarsson og Oddur Gretarsson voru með A-landsliðinu í æfinga- leikjum við Þýskaland í undirbún- ingi fyrir HM A-landsliða um helgina. „Það voru stór skörð höggvin í okkar lið, bæði vegna meiðsla og vegna þess að tveir voru með A-landsliðinu að þessu sinni. En við fögnum því bara að menn úr þessu liði séu farnir að spila með A-lands- liðinu og það var nóg af flottum strákum að spila fyrir okkur núna,“ sagði Einar. Markvörðurinn setti í lás „Við spiluðum vel. Alveg þangað til það voru tíu mínútur eftir af leiknum höfðum við forystuna en við töpuðum lokakaflanum 8:3. Þá lok- aði markvörður Serbanna bara markinu og í því fólst munurinn. Þetta eru jöfn lið. Serbarnir hafa sýnt það á síðustu stórmótum að þeir eru með feikilega öflugt lið, og alltaf verið nálægt því að komast í 8- liða úrslit og svona, þannig að við vissum að þetta yrði erfitt. Strák- arnir börðust virkilega vel og spiluðu vel en þetta féll bara ekki með okkur. Markvarslan er svo mikilvæg í handbolta og sá serb- neski varði þrjú eða fjögur dauða- færi á síðustu mínútunum,“ sagði Einar. Enginn átti stórleik HK-ingurinn Bjarki Már Elísson var markahæstur Íslendinga í gær með átta mörk en Framarinn Rób- ert Aron Hostert kom næstur með fjögur mörk. Einar segir að lyk- ilmenn liðsins hafi ekki náð sér nægilega vel á strik í leiknum á erf- iðum heimavelli Serbanna. „Serbarnir fengu mikinn stuðning sem hefur eflaust hjálpað til. Það er alltaf erfitt að spila við svona gott lið á útivelli. Það munaði líka um það að enginn af okkar lyk- ilmönnum átti neinn stórleik, því miður. Við vissum að til að vinna þyrftu allir að spila sinn besta leik, en það gekk ekki upp að þessu sinni og því fór sem fór,“ sagði Einar. „Þeir spiluðu gríðarlega öfluga 6-0-vörn, með tvo tveggja metra menn í hjarta varnarinnar og mark- vörðinn öflugan fyrir aftan, þannig að það var rosalega erfitt að sækja gegn þessu liði. Þegar líða fór á leik- inn varð erfitt að skora mörk, og þeir börðu svolítið á okkur á meðan vörnin okkar gaf frekar eftir. Þetta er bara virkilega öflugt og skipulagt serbneskt lið,“ bætti hann við. Mörk Íslands gegn Serbíu: Bjarki Már Elísson 8, Róbert Aron Hostert 4, Ólafur Guðmundsson 3, Guðmundur Hólmar Helgason 3, Ragnar Jóhannsson 2, Heimir Óli Heimisson 1, Guðmundur Árni Ólafsson 1, Stefán Rafn Sig- urmannsson 1 og Tjörvi Þorgeirs- son 1. Varin skot: Arnór Stefánsson 12 og Sigurður Örn Arnarsson 2. Mörk Íslands gegn Eistum: Rób- ert Aron Hostert 5, Guðmundur Árni Ólafsson 5, Ragnar Jóhanns- son 5, Ólafur Guðmundsson 4, Heimir Óli Heimisson 3, Guð- mundur Hólmar Helgason 2, Vignir Stefánsson 2, Bjarki Már Elísson 2, Tjörvi Þorgeirsson 2 og Stefán Rafn Sigurmannsson 1. „Mjög vonsviknir“  Silfurstrákarnir fara ekki á HM U21 í Grikklandi í sumar  Töpuðu úrslitaleik gegn Serbíu  Frábæra leikmenn vantaði og lykilmenn náðu sér ekki á strik Morgunblaðið/Ómar Átta Hornamaðurinn Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk í úrslitaleiknum gegn Serbum í gær. ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í blaki hafnaði í 3. sæti á 4 liða alþjóðlegu móti sem fram fór í Lúxemborg um helgina. Íslenska liðið vann Skot- land og heimastúlkur örugglega 3:1 en tapaði í gær fyrir liði Liechten- stein, einnig 3:1. Íslenska liðið hafði töluverða yfirburði í fyrstu hrin- unni en tapaði næstu þremur hrin- unum naumlega. Lúxemborg bar því sigur úr být- um á mótinu eftir að hafa lagt Skot- land að velli í síðasta leiknum en öll liðin að Skotlandi undanskildu voru með jafnmörg stig. Lúxemborg var hinsvegar með bestan árangur þeg- ar litið var til hrina og stiga. „Ég er ánægð með mótið svona á heildina litið. Ég er samt sár eftir þennan síðasta leik, við höfðum hann alveg í hendi okkar en glöt- uðum honum samt frá okkur, sem er auðvitað alltaf sárt. Mótið er hinsvegar mikilvægt fyr- ir reynslubankann og góður und- irbúningur fyrir smáþjóðaleikana í vor,“ sagði Fríða Guðmundsdóttir sem var stigahæst liðsmanna á mótinu. Fríða sagði að liðið hefði spilað vel en því miður hefði leikjanið- urröðunin ekki verið íslenska liðinu hagstæð. Liðið spilaði seint á laug- ardagskvöld og svo aftur klukkan 10 í gærmorgun. Við erum stemningslið „Í blaki er það nú þannig að það stendur allt og fellur með móttöku og okkur gekk vel þegar við vorum með góðar móttökur. Þegar það er lélega móttaka þá er úr mjög litlu að moða. Við erum mikið stemningslið, þegar okkur gengur vel, þá gengur okkur mjög vel. Þegar okkur hins- vegar gengur illa þá eigum við mjög erfitt með að rífa okkur upp,“ sagði Fríða. Ekki sjálfsagt að stilla upp sterku liði Íslenska liðið gat stillt upp sterku liði á þessu móti en það er ekki alltaf sjálfsagt. „Við þurfum að standa straum af öllum kostnaði sjálfar sem mér finnst fáránlegt og leiðinlegt. Það eru margar sem hafa hreinlega ekki efni á að gefa kost á sér. Þetta er því miður lítil íþrótt og á undir högg að sækja og fær litla sem enga umfjöllun í fjölmiðlum. Þess vegna eru fyrirtæki ekki æst í að styrkja okkur. Blakíþróttin á því verulega undir högg að sækja. En hópurinn núna var mjög sterkur og það var ánægjulegt.“ Ljósmynd/Peter Eichstädt Öflug Fríða Sigurðardóttir slær boltann í leik í Lúxemborg. Hún gerði 53 stig í leikjunum þremur og var stigahæst íslensku leikmannanna. Fáránlegt og leiðinlegt  Sterkur hópur að þessu sinni  Leikjaniðurröðun óhagstæð Bryndís Guð- mundsdóttir, leikmaður Kefla- víkur, fékk flest atkvæði í net- kosningu á heimasíðu Körfu- knattleikssam- bandsins en kosningunni var hleypt af stokk- unum til þess að velja byrjunarliðin. Stjörnuleikurinn fer fram hinn 15. janúar í Ásgarði í Garðabæ og þar eigast við Reykjanesið og Landið. Um 1.000 manns tóku þátt í kjörinu og fékk Bryndís 157 at- kvæði. Lið Reykjaness: Pálína Gunn- laugsdóttir, Bryndís Guðmunds- dóttir, Birna Valgarðsdóttir og Jac- quline Adamshick, allar úr Keflavík, og Íris Sverrisdóttir, Haukum. Þjálfari liðsins er Jón Halldór Eðvaldsson, Keflavík, og mun hann velja sjö leikmenn til viðbótar frá Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Haukum. Lið Landsins: Hildur Sigurðar- dóttir, Margrét Kara Sturludóttir og Signý Hermannsdóttir, allar úr KR, og þær Savica Dimovska og Jaleesa Butler úr Hamri. Þjálfari liðsins er Ágúst Björg- vinsson, Hamri, og mun hann velja sjö leikmenn til viðbótar frá Hamri, KR, Snæfelli og Fjölni. kris@mbl.is Bryndís fékk flest atkvæði Bryndís Guðmundsdóttir Lærisveinar Benedikts Guð- mundssonar í Þór frá Þorláks- höfn héldu í gær áfram sigur- göngu sinni í 1. deild karla í körfubolta. Þór- arar burstuðu Ármann í Laug- ardalshöllinni, 119:78, og hafa unnið fyrstu tíu leiki sína í deildinni. Þeir eru með fjög- urra stiga forskot á granna sína í FSu en sigurlið 1. deildar fer beint uppí úrvalsdeildina. Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði 28 stig fyrir Þór. Stigaskor í heild er að finna á bls. 6. vs@mbl.is Þór áfram á sigurbraut í 1. deildinni Benedikt Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.