Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/hag Bikarmeistarar Sigurinn var langþráður fyrir Vesturbæinga, 20 ár frá síðasta bikarmeistaratitli, og þeir gátu fagnað innilega. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2011 Á VELLINUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Eftir miklar ófarir í bikarúrslita- leikjum á síðustu árum tókst Kefla- vík að snúa blaðinu við og vinna Ís- landsmeistara KR í Poweradebikar kvenna í körfuknattleik í Laug- ardalshöll á laugardaginn. Eftir jafnan fyrri hálfleik tókst Keflavík að slíta sig frá KR í þriðja leikhluta og lét forskotið aldrei af hendi eftir það. Á lokamínútunum var spennan ekki lengur fyrir hendi og Keflavík fagnaði öruggum sigri, 72:62, og sínum tólfta bikarmeistaratitli en þeim fyrsta síðan 2004. Keflavík tapaði einmitt fyrir KR í úrslitum árið 2009 og fyrir Haukum í fyrra en að þessu sinni héldu leikmenn liðsins ró sinni og voru yfirvegaðri í sínum aðgerðum en leikmenn KR. Birna Valgarðs valin best Bandaríski leikmaðurinn Jacqul- ine Adamshick kom sér strax inn í leikinn og var áberandi á upphafs- mínútunum. Sjálfsagt hefur það gef- ið leikmönnum Keflavíkur ákveðið öryggi að Adamshick skyldi byrja vel því hún leiðir úrvalsdeildina í stigaskori og fráköstum. Hinn er- lendi leikmaðurinn hjá Keflavík, Marina Caran, skilaði hins vegar ekki miklu. Birna Valgarðsdóttir var valin maður leiksins af sérstakri dómnefnd en hún skoraði 14 stig sem telst ansi gott í ljósi þess að Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir valdaði hana hluta leiksins. Bryndís Guðmundsdóttir stóð upp úr í liði Keflavíkur að mati undirritaðs. Skoraði 12 stig, tók 10 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Bryndís var ekki atkvæðamest í tölfræðiþátt- unum en hún lagði mjög oft eitt- hvað til málanna bæði í vörn og sókn á mikilvægum augnablikum í leiknum. Ingibjörg innsiglaði sigurinn Í síðari hálfleik fékk Keflavík stórt framlag frá Ingibjörgu Jak- obsdóttur sem gekk til liðs við fé- lagið frá Grindavík fyrir þessa leik- tíð. Þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum má segja að Ingibjörg hafi innsiglað sigurinn. Hún fékk þá ruðning dæmdan á Morris og setti svo niður þriggja stiga körfu í næstu sókn og kom Keflavík í 63:50. „Það var frábært og skotin fóru loksins niður hjá mér í seinni hálf- leik. Frá og með þriðja leikhluta fannst mér við vera með leikinn. Þá fengum við sjálfstraust og settum skotin niður ásamt því að við spil- uðum betur í vörninni. Ég hafði engar áhyggjur af stöðunni í síðari hálfleik. Þegar við spilum vel í þriðja leikhluta fylgjum við því yf- irleitt eftir í þeim síðasta. Sjálfs- traustið hefur einnig aukist eftir að við unnum Hamar í deildinni síðasta laugardag,“ sagði Ingibjörg í sam- tali við Morgunblaðið að verðlauna- afhendingu lokinni. Lykilmenn fundu sig ekki Þegar KR-liðið er skoðað í þess- um leik stingur í augu frammistaða Hildar Sigurðardóttur og Mar- grétar Köru Sturludóttur en þessir lykilmenn KR-liðsins fundu aldrei taktinn í leiknum. Fátt gekk upp hjá þeim í fyrri hálfleik og í þeim síðari vildu þær taka af skarið og koma sér inn í leikinn. Fyrir vikið völdu þær ekki alltaf bestu skotfær- in og örvæntingin fór að gera vart við sig. Kara hitti úr tveimur skot- um af nítján og Hildur úr tveimur af tólf. Ótrúlegt að upplifa slíkar tölur hjá þessum frábæru íþrótta- konum. Chazny Morris dró vagninn hjá KR og var sú eina innan liðsins sem setti niður þriggja stiga skot og gerði það fimm sinnum. Signý Hermannsdóttir komst einnig vel frá leiknum og eins fékk KR ágætt framlag frá Hafrúnu Hálfdán- ardóttur. Stutt í brosið hjá Keflvíkingum Heilt yfir virtist leikgleðin vera mun meiri hjá Keflavíkurliðinu, alla vega ef maður rýnir í svipbrigði leikmanna. KR-konur virtust vera með allar heimsins byrðar á herð- unum á sama tíma og bros sást á andlitum lykilmanna Keflavíkurliðs- ins: Pálínu, Birnu og Bryndísar. Vafalaust hefur það haft sitt að segja og leikmenn Keflavíkur hafa dregið lærdóm af bikarúrslita- leikjum síðustu ára. Þeim virðist hafa tekist að mæta nokkuð afslapp- aðar til leiks og það skilaði árangri. Bikarmeistarar Keflavíkurkonur virða Héldu ró og yfirvegun  Bros sást á andlitum lykilmanna Keflavíkur í úrslitaleiknum  Tólfti bikarsigur Keflavíkurkvenna en sá fyrsti frá árinu 2004  Mættu afslappaðri til leiks Laugardalshöll, Bikarkeppni KKÍ, Poweradebikar kvenna, úrslitaleikur, 19. febrúar 2011. Gangur leiksins: 2:2, 4:12, 10:15, 16:19, 20:20, 23:27, 29:30, 33:32, 35:35, 38:40, 40:46, 44:54, 50:60, 54:68, 57:69, 62:72. KR: Chazny Morris 19/13 fráköst, Signý Hermannsdóttir 14/12 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 10, Hildur Sigurðardóttir 9/7 stoðsendingar, Margrét Kara Sturludóttir 6/6 frá- köst, Helga Einarsdóttir 2/5 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 2/6 fráköst. Fráköst: 31 í vörn, 16 í sókn Keflavík: Jacquline Adamshick 19/14 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðs- dóttir 14/4 fráköst, Bryndís Guð- mundsdóttir 12/10 fráköst/6 stoð- sendingar, Pálína Gunnlaugsdóttir 9/4 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 8, Marín Rós Karlsdóttir 4, Hrund Jóhannsdóttir 3/6 fráköst, Marina Caran 3. Fráköst: 36 í vörn, 9 í sókn Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson, Einar Þór Skarphéðinsson. KR – Keflavík 62:72 Pavel Ermolinskij KR. Leikstjórnandinn snjalli sýndi hvers vegna hann er umtalaðasti leikmaðurinn á Íslandi. Stjórnaði leik KR- liðsins og spilaði mjög vel fyrir liðið. Nýtti lík- amsburði sína mjög skynsamlega. Moggamaður leiksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.