Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 6

Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 6
Guðmundur Hálfdanarson FRELSI ER EKKI SAMA OG FRJÁLSHYGGJA Síðastliðinn áratug hefur vofa gengið aítur í ís- lenskri pólitík. Ekki vofa kommúnismans, heldur frjáls- hyggja 19. aldar í gervi „nýfrjáls- hyggjunnar." Reyndar hefur fyrirbærið átt nokkuð erfitt uppdráttar, þar sem það hefur reynst rýrt í öflun vinsælda - gott ef heitið hefur ekki öðlast sess sem hið versta skammar- yrði í íslenskri stjórnmálaum- ræðu. Erfiðleikar nýfrjálshyggjunn- ar þurfa alls ekki að koma á óvart. Þrátt fyrir nafnið er fátt nýtt í boðskap hennar, enda er hún lítið annað en skilgetið af- kvæmi líberalismans, hug- myndastefnu sem kom fram í Evrópu fyrir meira en tveimur öldum. Til íslands barst kenn- ingin seint, eins og oft gerðist með slíka strauma á fyrri tímum. Einangrun landsins kom stundum í veg fyrir að tískustefnur nágrannalandanna næðu eyrum íslendinga, auk þess sem félagslegar forsendur voru varla fyrir öflugri frjáls- lyndishreyfingu á íslandi. Þar að auki ríkti almenn deyfð í póli- tísku lífi landsmanna allt þar til einveldið danska riðaði til falls á fyrri hluta 19. aldar. Það er einmitt í þjóðernisbar- áttu íslendinga og þeim hrær- ingum sem henni fylgdu að menn hafa greint fyrstu merki frjálshyggju á íslandi. Þannig segir Gunnar Karlsson í dokt- orsritgerð sinni um frelsisbar- áttu Suður-Þingeyinga: „félags- hreyfingarnar voru auðvitað eitt af afkvæmum frjálshyggju 19. aldar og frjálshyggjan var af- kvæmi iðnbyltingar Vestur- Evrópu."1 Burtséð frá því að ég tel nokkuð djarft að álíta frjáls- hyggjuna afkvæmi iðnbyltingar, þar sem afkvæmi eru sjaldnast eldri en foreldrarnir, þá var samband íslenskra félagshreyf- inga og evrópskrar frjálshyggju nokkuð flóknara en fullyrðing- in gerir ráð fyrir. Reyndar hef ég haldið því fram á prenti að eitt meginstef íslenskrar þjóð- ernisbaráttu, a.m.k. í upphafi, hafi verið andúð á grundvallar- hugmyndum frjálshyggjunnar.2 Langar mig að höggva hér í sama knérunn með stuttri greiningu á hugmyndum um frelsið í íslenskum stjórnmálum á síðari hluta 19. aldar. Tilefnið er að nokkru gagnrýni þeirra kollega minna Gunnars Karls- sonar og Guðmundar Jónsson- ar í fyrsta hefti Nýrrar sögu.3 Þar að auki er það sannfæring mín að stjórnmálasaga nútím- ans verði ekki skilin án sam- hengis við fortíðina. Stjórnmál á ofanverðri 20. öld eru enn und- ir sterkum áhrifum frá þeirri stefnu sem þau tóku fyrir meira en eitt hundrað árum. FRJÁLSHYGGJA OG FRELSI Frelsið er grundvallarstef frjáls- hyggjunnar, eins og nafnið ber með sér. Það er þó ekki frelsið í öllum sínum óteljandi myndum, heldur fyrst og fremst einstaklingsfrelsið sem frjáls- hyggjan berst íyrir. Hugmyndin er að gefa einstaklingnum svig- rúm þar sem hann hefur einn vald yfir hugsunum sínum og athöfnum, án íhlutunar rikis eða annarra utanaðkomandi afla. Frelsi einstaklingsins getur vitanlega aldrei orðið ótak- markað, því þá er hætta á að sumir einstaklingar gangi á rétt annarra í krafti styrkleika síns. Til að koma í veg fyrir slíkt set- ur samfélagið lög sem tryggja sérhverjum einstaklingi réttindi og frið, eða draga landamæri á milli einkalífs og opinbers lífs. Siðfræðilegur grunnur frjáls- hyggjunnar er sú trú að maður- inn sé í eðli sínu skynsemisvera og sjálfur best fær um að dæma um hvað honum er fyrir bestu - svo framarlega sem hann ber ábyrgð á eigin gjörðum. Hug- myndir þessar, sem nú eru margar hverjar álitnar sjálfsagð- ar, þóttu feikilega róttækar er þær komu fram á 17. öld. Þær gengu þvert á allar viðteknar hugmyndir um mannlegt eðli og skipan samfélagsins. Á þeim tima var kenning kirkjunnar um erfðasyndina allsráðandi, þ.e. sú trú að maðurinn væri í eðli sínu spilltur og einungis með styrkri stjórn og aga væri hægt að forða samfélaginu frá algerri upplausn. Fjölskyldan, en ekki einstaklingurinn, var grunnein- ing samfélags miðalda og á fyrri hluta nýaldar. Hún var það líkan sem best þótti henta til að tryggja stöðugleika og jafnvægi. Fjölskyldutengsl eru ekki í eðli sínu samningsbunþin og verða því ekki rofin. Vald föðurins byggist á því að hann gefur börnum sínum líf og krefst í staðinn skilyrðislausrar hlýðni. En faðirinn hefur einnig skyld- um að gegna gagnvart börnum sínum, hann ber ábyrgð á vel- ferð þeirra - a.m.k. upp að vissu marki. Samkvæmt þessari hug- myndafræði var ríkið líkt og píramíti þar sem fjölskyldur hinna lægstu voru grunnurinn en Guð (alfaðirinn) toppurinn. Vald Guðs yfir manninum rétt- lætti vald allra yfirboðara. Frjálshyggjumenn mátu hins vegar ekki stöðugleikann fram- ar öllu. Framþróun var þeirra Guðm. Hálfdanarson. Stjórnmálasaga nútímans verður ekki skilin án samhengis við fortíðina. Siðfræðilegur grunnur frjáishyggjunnar er sú trú að maðurinn sé i eðli sínu skynsem- isvera. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.