Ný saga - 01.01.1995, Blaðsíða 99

Ný saga - 01.01.1995, Blaðsíða 99
Hvíta stríðið í máli og myndum Inóvember árið 1921 kom í tvígang til harðra átaka við Suðurgötu 14 í Reykjavík, heimili Ólafs Friðrikssonar ritstjóra Alþýðublaðsins. Tildrögin voru þau að Ólafur hafði þá um sumarið farið á þing Komintern (Alþjóðasambands kommúnista) í Moskvu. Par tók hann upp á sína arma munaðarlausan gyðingadreng, Nathan Fried- mann að nafni. Nokkru eftir komuna til íslands kom í ljós að drengurinn var með smit- andi augnsjúkdóm sem nefnist trachoma. Eftir að heilbrigðisyfirvöld vissu þetta lögðu þau til að drengurinn yrði fluttur úr landi. Ólafur túlkaði þetta sem pólitískar ofsóknir á hendur sér og voru stuðningsmenn hans innan Alþýðuflokksins á sama máli. Þann 18. nóvember gerði lögreglan tilraun til að ná drengnum, en þá dreif að mannsöfnuð sem hrakti lögregluna á brott eftir hörð átök. Barst Ólafi liðstyrkur víða að, meðal annars lögðu nokkrir pólitískir andstæðingar hans úr vesturbænum honum lið á þeirri forsendu að kjarninn í lögreglunni væri úr austurbænum. Hrakfarir lögreglunnar og lítill vilji innan liðsins til frekari aðgerða urðu til þess að 22. nóvember var Jóhann P. Jónsson, skipherra á björgunarskipinu Þór, settur lögreglustjóri. Jóhann var sjóliðsforingi að mennt og stofn- aði þegar varalögreglusveit sem átti að útkljá málið. Alls voru í liði þessu um 80 manns og var því skipt í fjórar undirdeildir, um 20 í hverri. Fengu varalögregluþjónarnir grunn- þjálfun í margs konar hernaðarkúnst, voru látnir ganga í takt og vopnaðir remington- riflum og kylfum. Lið Jóhanns, setts lögreglustjóra, merkti sig með hvítum borð- um um vinstri upphandlegg og var því kallað hvíta liðið og liðsmennirnir hvítliðar eins og tíðkaðist að kalla hægri menn í rússnesku byltingunni og borgarastyrjöldinni í Finnlandi. Aðalstöðvar hvítliðanna voru í Góðtemplara- húsinu, Gúttó, þar sem nú er bílastæði Alþing- is, og handan götunar í Iðnó, en hjúkrunar- gögnum var komið fyrir í gömlu slökkvi- stöðinni við Tjarnargötu og Gúttó, því búist var við átökum, meiðslum og jafnvel rnann- falli. Á þessum stöðum og reyndar víðar, svo sem við bankana, voru vopnaðir menn á verði. Um hádegi þann 23. nóvember lögðu hvítliðarnir til atlögu og handtóku Ólaf og helstu stuðningsmenn hans. Ólafur og félagar ákváðu að veita ekki mótspyrnu og verður ekki heldur séð á myndurn að hvítliðar hafi verið vopnaðir öðru en bareflum í aðförinni sjálfri. Hinir handteknu voru fluttir í fangelsi upp á Skólavörðustíg, en Nathan Friedmann og Anna, kona Ólafs, voru sett í einangrun. Drengurinn var síðar fluttur úr landi, en Ólaf- ur og félagar hans dæmdir til fangavistar. Ekki var dómunum framfylgt og voru hinir dæmdu náðaðir skömmu sfðar meðal annars fyrir tilstuðlan Jónasar frá Hriflu sem var gamall kunningi Ólafs. Pegar frá leið þótti lítil upphefð í því að hafa verið í hvíta liðinu og vildu fáir við það kann- ast er þar höfðu verið. Hvíta striðið hafði djúptækar pólitískar af- leiðingar fyrir Alþýðu- flokkinn. Stjórn flokks- ins neitaði að styðja Ólaf í þessum átökum og taldi þetta persónulegt mál hans. Skömmu síðar var honum svo vikið frá sem ritstjóra Alþýðublaðsins. Þessi atvik urðu því til að skerpa andstæðurnar Mynd 1. Ólafur Friðriksson þótti góður ræðu- maður. Á þessari mynd sem tekin er um miðja öldina sjást tilþrif hans í ræðustól. 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.