Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 67

Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 67
Sigríður Matthíasdóttir Endurreisn lýðræðisins Þjóðernisgoðsagnir íslendinga og Tékka aALÞINGISHÁTÍÐINNI Á ÞINGVÖLLUM árið 1930 var mættur fjöldi erlendra . sendimanna til að samgleðjast ís- pjóðinni þar sem hún hélt upp á 1000 ára afmæli Alþingis. Meðal þeirra var fulltrúi hins nýstofnaða lýðveldis Tékkóslóvakíu en sá hét Jean Malypetr. Um leið og Malypetr bar fram árnaðaróskir frá tékknesku þjóðinni hafði hann orð á því í ræðu sinni hve þjóðirn- ar tvær, íslendingar og Tékkar, ættu sér líka sögu þrátt fyrir að þær væru, eins og hann sagði, „aðskildar. . . af hafi og löndum'1.1 Ég ætla ekki að gera tilraun til að dæma um raun- veruleg líkindi með sögu þessara tveggja þjóða. Hins vegar álít ég að Malypetr hafi hitt naglann á höfuðið ef þjóðernisleg sjálfsmynd og þjóðernisgoðsagnir þjóðanna tveggja eru bornar saman. Hér vil ég geta þess að þjóð- ernisleg sjálfsmynd er þýðing mín á enska hugtakinu national identity eða national iden- titet á Norðurlandamálum. Þótt ég viti ekki til að þjóðernishugmyndir Islendinga og Tékka hafi áður verið bornar saman þá hafa þessi líkindi áður verið reifuð. Benda má á ummæli Inga Sigurðssonar en hann hefur sagt að það liggi beint við að bera saman þjóðernissinn- aða sagnaritun íslendinga við sagnaritun ann- arra smáþjóða í Evrópu sem öðluðust sjálf- stæði 1918 eins og Tékkar gerðu. Ingi nefnir Pólverja og Tékka sem dæmi um þjóðir með líkar þjóðernishugmyndir og íslendingar. Það væri of langt mál hér að fara nákvæmlega í ástæður þessara líkinda en mikilvægt er þó að þessar þjóðir mótuðu hugmyndir sínar um sjálfar sig í sjálfstæðisbaráttu gegn gömlu herraveldi,2 íslendingar gegn Dönum og Tékkar gegn þýskri yfirstétt innan Austur- ríska keisaradæmisins. Sömuleiðis var hér um að ræða þjóðir sem báðar voru þjóðfélagslega vanþróaðar samanborið við þau ríki þar sem hugmyndir nútímans um þjóðríki og lýðræði urðu til.3 Meðan fslendingar og Tékkar háðu sjálf- stæðisbaráttu gegn hinum gömlu herraveld- um á 19. öld blómstruðu bókmennta- og mál- fræðirannsóknir í þjóðernisrómantískum anda um alla Evrópu en þjóðernishugmyndir bæði Tékka og íslendinga eiga rætur sínar í slíkum rannsóknum. Breski félagsfræðingur- inn Anthony Smith hefur skilgreint markmið- ið með þessum rannsóknum þannig að þær hafi átt að leggja grunninn að sjálfsmynd þeirra þjóðríkja sem voru í mótun um alla Evrópu. Smith segir að með rannsóknum þessum hafi verið skapaðar þjóðernisgoð- sagnir en það hugtak skilgreinir hann þannig að í þeim sé fortíðin endurrituð og endur- sköpuð, ekki með fræðilegt markmið í huga heldur það pólitíska markmið að hún verði fyrirmynd framtíðarinnar. Þannig rituðu menntamenn nítjándu aldar og jafnvel þeirr- ar tuttugustu mikil fræðirit þar sem raun- verulegar heimildir um sögu þjóðanna voru lagaðar að pólitísku markmiði samtímans, því að stofna nútíma þjóðríki og leggja grunninn að þjóðernisvitund þjóðanna.4 íslendingar eiga nokkur skýr dæmi um þjóðernispólitísk fræðirit af þessu tagi. Má þar nefna alþýðufyrirlestra sagnfræðingsins Jóns Aðils sem út komu í byrjun aldarinnar, íslenzkt þjóðerni og Gullöld íslendinga en þeim var ætlað að skapa íslendingum þjóð- ernislega sjálfsmynd við hæfi og hvetja þá til dáða í sjálfstæðisbaráttunni. Kennslubækur Jónasar Jónssonar frá Hriflu í íslandssögu þjónuðu einnig sama tilgangi.5 Einn þeirra sem mest skrifaði um sögu tékknesku þjóðarinnar í því skyni að gefa henni þjóðernislega sjálfsmynd og sýna fram á rétt hennar til sjálfstæðis var tékkneski ÍSLENZKT ÞJOÐERNI ALÞtÐUrrRIRLESTRAR ION l AÐILS REYKJAVIK Mynd 1. Titilsíða annarrar útgáfu bókarinnar Islenzkt þjóðerni eftir Jón Aðils frá 1922. Mynd 2. Jón Aðils. 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.