Hernám hugans hann makráður í hægindi sínu og horfir á her- sjónvarp, en tekur fálega málaleitunum séra Bernharðs sem vill gera gangskör að því að koma í veg fyrir svallsamkomur unglings- telpna eyjarinnar með hermönnum í herstöð- inni. I lok dómsdagskaflans eru ráðamenn þjóðarinnar hver af öðrum dæmdir til dauða og látnir gista hel.94 Þannig lýsir Jón Óskar gangi Svnrtrar messu og þarf ekki að leita langt til að sjá hvaðan fyrirmyndirnar eru fengnar. I orðræðu andstæðinga Keflavíkursjón- varpsins var íslandi oftast stillt upp sem hreinu, saklausu og óspilltu landi sem byggi að sérstæðri og merkilegri menningararfleifð sem gerði íslendinga frábrugðna öllum öðr- um. Hér á landi væri alþýðan upplýstari en víðast hvar annars staðar og æskan óspillt. Bandaríkjamönnum og fjölmiðlum þeirra var hins vegar úthlutað hlutverki skúrksins. Þeirra var að sýkja hugsunarhátt þjóðarinnar, slæva dómgreind hennar og draga hana niður í spillinguna sem fyrirfannst í Bandaríkjun- um. Engu var líkara en að ísland væri í hlut- verki saklausrar sveitastúlku sem vart mátti vamm sitt vita, en Bandaríkin í hlutverki hins veraldarvana glaumgosa sem hafði það eitt að markmiði að fleka stúlkuna og henda henni síðan frá sér í angist og uppnámi eftir að hún hafði gagnast honum. Áróður eða afþreying? Andstæðingar Keflavíkursjónvarpsins vísuðu oft til þess að frá Keflavík bærist linnulaus áróður Bandaríkjastjórnar sem miðaði að því að grafa undan íslensku þjóðerni. Víst mátti finna áróður gegn kommúnisma í sjónvarpinu en áróður sem beindist gegn íslensku þjóð- erni er vandfundinn. Ef litið er á dagskrána má sjá að dagskráin líkist helst því sem sjá má á Stöð 2 í dag og er til merkis um aukið vægi bandarísks efnis í íslensku sjónvarpi í seinni tíð. Við skulum líta á dagskrá Keflavíkursjón- varpsins þann 19. desember 1967 til glöggvun- ar og bera hana saman við dagskrá Ríkissjón- varpsins eins og hún birtist í Sjónvarpstíðind- um. Dagskrár sjónvarpsstöðvanna þriðjudaginn 19. desember 1967 17.00 18.30 19.00 19.25 19.30 20.00 21.00 21.30 22.30 23.00 23.15 Keflavíkursjónvarpið Þriðjudagskvikmyndin: Miracle on 34th Street" (Sjá föstud. 22. des.). Mayor of the Town: Borgarstjórinn". Fréttir. Moments of Reflection: Þankabrot". Fréttaþáttur. Lost in Space. Ævintýri í geimnum". - Robinson fjölskyldan lendir í mörgum spennandi ævintýrum, þegar hún ferðast til annarra hnatta. Green Acres: Grænar grundir" - Gamanþáttur. Skemmtiþáttur Smotherbræðra: Tom og Dick Smother kynna ýmsa góða skemmtikrafta. Fractured Flickers: Sambland af þöglum kvikmynd- um og teiknimyndum. Kvöldfréttir. Leikhús norðurljósanna: The Brasher Doubloon". - Spennandi kvikmynd frá Twentieth Century-Fox, tekin árið 1947, með George Montgomery og Nancy Guild í aðalhlutverkum. (Sýningart. 1 klst. og 29 mín.). 20.00 20.20 íslenska sjónvarpið Erlend málefni. Umsjón: Markús Örn Antonsson. Tölur og mengi. 13. þáttur Guðmundar Arnlaugs- sonar um nýju stærðfræðina. 20.40 Nauðsyn öryggis í æsku. Fjallað er um barnauppeldi, einkum með tilliti til öryggisráðstafana, sem gera þarf til þess að forða börnum frá hættum. Þýðandi: Sigríður Þorgeirsdóttir Þulur: Óskar Ingimarsson. Um vefjaflutning. Árni Björnsson, læknir, sýnir og skýrir, hvernig fluttir eru vefir úr einum lfkamshluta í annan og jafnvel milli einstaklinga. Nýjasta tækni og vísindi. Þýðandi: Reynir Bjarnason Þulur: Andrés Indriðason 21.50 Fyrri heimsstyrjöldin. (16. þáttur) Bandaríkin skerast í leikinn. Þýðandi og þulur: Þorsteinn Thorarensen. 22.15 Dagskrárlok. 21.05 21.25 35