Miðbæjarskólinn Mynd 1. Stoltir smiðir og verkamenn framan við nýbyggingu barnaskólans, sem þeir hafa nýlokið við að reisa. <^gT^\ Ö í haust eru rétt 100 ár liðin frá því i I að lokið var byggingu þess húss, sem S± £~ undangengna áratugi hefur heitið Miðbæjarskólinn í munni Reykvíkinga, en nefndist upphaflega Barnaskóli Reykjvíkur. Húsið reis á sínum tíma í túnbrekku austan við norðausturenda Tjarnarinnar, en ber nú götunúmerið Fríkirkjuvegur 1. Þegar nýbygg- ing Barnaskóla Reykjavíkur komst í gagnið, leysti hún af hólmi eldra skólahús úr steini, sem byggt var árið 1882 og enn stendur á horni Hafnarstrætis og Pósthússtrætis. Eftir flutning barnaskólans var því húsi breytt í pósthús, síðan í landsímastöð, og loks var lög- reglustöð Reykvíkinga þar til húsa um ára- tuga skeið. Seinustu árin hefur húsið verið notað sem viðbót við pósthúsið. Uppdrættir að húsi barnaskólans voru gerðir úti í Danmörku. Þar var að verki C. Brandstrup, en honum til aðstoðar hér heima "* var Jón Sveinsson, sem byggði fyrri áfangana, þ.e. norður- og vesturálmu hússins. Pétur Ingimundarson byggði suðurálmuna árið 1907, en uppdrættir Einars Sveinssonar, húsa- meistara Reykjavíkurborgar, að hækkun íþróttahúss í norðurálmu voru samþykktir haustið 1944. Eftirtektarvert er, að byggingin var reist úr timbri, en ekki steini. Virðist tvennt hafa ráð- ið mestu um það: Annars vegar sú skoðun, að hollusta væri meiri í timburhúsum (öfugt við ríkjandi álit árið 1882), en ekki síður hitt, að jarðskjálftarnir miklu á Suðurlandi árið 1896 voru ráðamönnum bæjarins enn í of fersku minni til að þeir teldu hættandi á að reisa steinhús handa skólanum. Upphaflega var gert ráð fyrir, að byggingin rúmaði 300 nemendur. En Reykjavík var í örum vexti, og því var nýi skólinn fullsetinn þegar á fyrsta ári. Viðbyggingin frá 1907, sem áður er getið, kom til vegna áframhaldandi örrar fjölgunar bæjarbúa og tilkomu skóla- skyldu frá árinu 1908. Eftir stækkunina átti skólinn að geta rúmað 600 nemendur. Barna- skóli Reykjavíkur var eini almenni barnaskól- inn í bænum, uns Austurbæjarskólinn tók til starfa árið 1930, en upp frá því var hann jafn- an kallaður Miðbæjarskólinn. Við hlið Barna- skólans störfuðu framan af öldinni tveir barnaskólar í Reykjavík, Landakotsskólirm og barnaskóli Ásgríms Magnússonar að Berg- staðastræti 3. Árið 1969 var barnaskólahaldi hætt í hús- inu, en það tekið til afnota fyrir nýjan fram- haldsskóla, sem stofnaður var þá um sumarið til að mæta sívaxandi aðsókn í nám á mennta- skólastigi. Hér var á ferð Menntaskólinn við 38