í aldarspegli Sigurður Ragnarsson tók saman Tjörnina (nú Menntaskólinn við Sund), sem starfaði í húsinu, uns hann fluttist endanlega inn í Voga árið 1976. Eftir það voru í húsinu höfuðstöðvar Námsflokka Reykjavíkur, auk þess sem aðrar skólastofnanir störfuðu þar um tíma í sambýli við þá (Leiklistarskólinn, Tjarnarskóli og Miðskóhnn). Þáttaskil urðu síðan í sögu þessa merka húss árið 1996, þegar borgarstjórn Reykjavík- ur ákvað að taka bygginguna undir Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur, sem þá var sett á stofn vegna yfirtöku borgarinnar á grunnskólanum írá ríkinu. Af því tilefni var ráðist í gagngerar viðgerðir og endurbætur á húsinu, sem mið- uðu ekki síst að því að færa sem flest til upp- runalegs horfs. Raunar virðist mjög hafa ver- ið til hússins vandað í upphafi. Má marka það af því, að þegar fyrst var skipt um bárujárn á veggjum hússins árið 1977 var timburhúsið óskemmt undir bárujárninu fyrir utan smá- vægilegar fúaskemmdir undir einum glugga á suðausturhlið. Þegar skipt var um járn á þaki hússins um 1960 voru fjarlægðir eldingavarar úr járni, sem náðu milli reykháfa þess. Þeir tóku mið af grindverki og settu á sínum tíma mikinn svip á húsið. Mynd 2. Barnaskóli Reykja- víkur. Myndin sýnir skólann og umhveríi hans skömmu eftir að hann var reistur. Eldingavarinn á þaki hússins gefur því sérstakan svip. 39