Miðbæjarskólinn í aldarspegli Mynd 6. Suðurálma barnaskólans í smiðum 1907. Þar var haldín aðalveislan í tilefni konungskomunnar það ár. Með því, sem hér hefur verið rakið, er þó naumast nema hálf sagan sögð um hlutverk og ímynd þessa húss og næsta umhverfis þess í bæjarlífinu og raunar í þjóðlífinu öllu. Það vill nefnilega svo til, að í þessu húsi, og ekki síður undir veggjum þess, hafa á liðinni öld gerst ýmsir atburðir, sem tengjast mörgum helstu átaka- og örlagamálum aldarinnar. Skólahúsið var nánast eini kjörstaðurinn við almennar kosningar í Reykjavík framundir miðja öldina, og þar greiddu Reykvíkingar atkvæði um sam- bandsslit við Dani og lýðveldisstofnun árið 1944. Við konungskomuna 1907 gegndi húsið í senn hlutverki gestahúss og veislusalar. Mynd 7. Konungsveisla í barnaskólanum. Konungi var búið sæti fyrir miðjum lang- vegg við borð sem var þar eftir endilöngu, en á það stefndu 12 borð önnur hornrétt. Mynd 8. íslandsgliman 1910. 41 L