Óskar Guðmundsson / '/.*£#%¦,.....<&,:..... / Cc<Z.& <2<~e <y<i<c<-c _£,-y~ d*x>?Tsr2 cx^z, j <Z<*i<r7^<<c<z, <7&' <?^?/9Í4#Z<Z£&>U 3: 2s&?<u<r *&r <iýlte<rr?z-é&?z.. 7*t*< . U\ 'T&Jhááz <<P.<67V^?V7t^?&l?-&6t-/tá>4 ' ^4JZc, -&& <&eséÆ cc s^&c&rz^c- . / / </y c< CO<X-& / o. 7<?Zs Mynd 2. Fyrstu færslurnar í dagbók Magnúsar. ár enn. En nú get ég lítið átt við ritstörf úr þessu, því að nú er ég að tapa öllu, hendin að stirðna, sjónin að daprast og allt að hverfa". Dagbækurnar eru að vonum miklar að vöxtum, alls 17 bindi. Synir Magnúsar af- hentu Landsbókasafninu þær að honum látn- um í samræmi við vilja hans. Við rannsóknir mínar á dagbókunum kom á daginn að þar með voru ritstörf Magnúsar smiðs hvergi nærri upptalin. Við eftirgrennslan kom í ljós að í vörslu ættingja eru til eftir hann margvís- leg önnur ritverk sem erindi eiga til lesenda. Fékk ég góðfúslegt leyfi til að lesa þau og yf- irfara. Meðal ritverka hans eru sjálfsævisögu- þættir, þættir af samferðarmönnum, einskon- ar þjóðsögur og aðrir frásöguþættir. Tvö sýnis- horn af því efni birtast hér á næstu síðum. Eyjólfur Magnússon, sonur Magnúsar, af- henti mér handritin en hann er mjög áhuga- samur um að verkum föður hans sé sýndur til- hlýðilegur sómi og þau komi fyrir sjónir al- mennings. Þess vegna hef ég verið að leita leiða til að koma út bók með ýmsu efni eftir Magnús Kristjánsson. Mér finnst einhvern veginn eins og það sé menningarleg skylda þjóðarinnar að halda fróðleikssýsli manna til haga. Auðvitað er hér um að ræða merkilegt menningarstarf sem gæti ella orðið gleymsk- unni að bráð. Margir hafa áhuga á að slík bók komi út, en það vill stundum verða þrengra um pyngjuopið þegar kemur til verka af þessum toga sem hugsanlega eru ekki arðbær nema í menningarlegu tilliti. Dagbækur Magnúsar hafa sáralítið verið notaðar fram að þessu. Þó koma þær við sögu í Sögu Ólafsvíkur eftir Gísla heitinn Ágúst Gunnlaugsson sagnfræðing, en aldrei kom nema eitt bindi út af þeirri sögu. Þá hef ég notast við verk Magnúsar í greinaflokki um Jóhann Jónsson skáld, en Magnús var móður- bróðir hans, og í sagnaþáttum í bók minni um Pálsætt undan Jökli sem senn lítur dagsins ljós. Skrif Magnúsar Kristjánssonar eru jafn- framt framlag til byggðarsögu Snæfellinga, auk þess sem öllum íslendingum ætti að vera akkur í bók þar sem eru forvitnilegir og skemmtilegir þættir af mönnum og málefn- um. Af verkum Magnúsar eru einungis dag- bækurnar í vörslu þjóðdeildar Landsbóka- safns. Ég tel sjálfsagt að önnur handrit höf- undar verði lögð þar inn til varðveislu að lok- inni vinnu við útgáfu þeirra. Hér á eftir fara tvö sýnishorn af skriíum Magnúsar sem ég hef búið til prentunar. Þetta eru frásagnir úr átthögum hans, önnur um móverk við Ólafsvík, hin um kirkjufærsluna í Fróðársókn. Leitast er við að halda texta og orðfæri sem næst texta höfundar, en stafsetn- ing er færð til nútímahorfs, smávægilegar lag- færingar eru gerðar og reynt er að komast hjá endurtekningum. Millifyrirsagnir hef ég sett til hægðarauka fyrir lesendur. 48