Sískrifandi smiður ÆTT OG UPPRUNI Magnús Kristjánsson smiður og rithöfundur Magnús Kristjánsson í Olafsvík var tvígiftur og átti fjölda barna. Fyrri kona hans var Kristín Þórðardóttir frá Rauðkollsstöðum og bjuggu þau saman í tæplega tvo áratugi og eignuðust sjö börn; dóu þrjú þeirra í bernsku: 1. Þórður, fæddur 1902, dó tæplega ársgamall. 2. Kristján, fæddur 1904, dó hálfs annars árs. 3. Kristín María, fædd 1905, ráðskona, dó 1979. 4. Lovísa, fædd 1907, dó 1988, gift Þórjóni Jónassyni og áttu þau tíu börn. 5. Þorleifur, fæddur 1910, verkamaður í Ólafsvík, dó 1970. 6. Jóhann Guðni, fæddur 1911, dó 1969, giftur Olgu Konráðsdóttur, áttu einn son. 7. Sigurjón, fæddur 1914, dó vorið 1916. Seinni kona Magnúsar var Sigþrúður Katrín Eyjólfsdóttir frá Bjarneyjum á Breiðafirði og áttu þau saman þrjú börn. Þau eru: 8. Eyjólfur Aðalsteinn, vélstjóri, fæddur 1923, giftur Sigurrós Jónsdóttur, tvær dætur. 9. Magnús, stýrimaður, fæddur 1926, giftur Margréti Gunnarsdóttur og á hann þrjá syni. 10. Ingveldur, fædd 1930, húsfreyja í Ólafsvík, gift Ríkharði Jónssyni og eiga þau eina dóttur. Föðurætt Magnúsar er kennd við Skógar- nes. Faðir hans var Kristján Gíslason, fæddur á Ytra-Skógarnesi 3.2. 1831. Foreldrar Krist- jáns voru þau Gísli Þorvaldsson og Katrín Bárðardóttir í Ytra-Skógarnesi. Fyrri kona Kristjáns var Oddný Sigurðar- dóttir frá Brandsbúð á Arnarstapa. Hún dó eftir stutta sambúð þeirra. Þau áttu tvo syni: 1. Sigurð Kristjánsson, dó áttræður í apríl 1933. Hann var faðir Magnúsar í Mikla- holti og Elísabetar, konu sr. Arna Þórar- inssonar á Stóra-Hrauni. 2. Daníel Krisljánsson, flutti til Ameríku og dó þar í hárri elli. Seinni kona Kristjáns var Jóhanna Gísladótt- ir, fædd 14. 1. 1833 í Eiríksbúð á Arnarstapa. Foreldrar hennar voru Gísli Sigurðsson og Þorbjörg Þórarinsdóttir. Jóhanna var ættfróð og sagnfróð gáfukona. Andaðist í Ytra-Skóg- arnesi 14.5. 1909, 76 ára. Þorbjörg móðir hennar var fædd á Reykjum í Hrútafirði. Önnur dóttir hennar hét Steinunn og fleiri börn áttu þau Þorbjörg og Gísli. Á Arnarstapa bjó Kristján í níu ár en flutt- ist þaðan aftur að æskuheimili sínu, Ytra- Skógarnesi, þar sem hann bjó til dauðadags. Velmetinn, hreppstjóri og oddviti, fékkst m.a. við lækningar. Andaðist í Ytra-Skógarnesi á heimili sínu 16. júní 1886, 55 ára gamall. Þau Kristján og Jóhanna áttu saman tíu börn og af þeim komust fimm til fullorðinsára: 3. Gísli Kristjánsson, smiður í Skógarnesi. Gísli dó á 93 ára afmælisdegi sínum 22. mars 1953 í Reykjavík. 4. Oddný Kristjánsdóttir. Dó í Reykjavík 1936, 71 árs. 5. Steinunn Kristjánsdóttir, móðir Jóhanns skálds. Dó í Ólafsvík 1944, 74 ára. 6. Kristján Kristjánsson smiður, dó í Ólafsvík 1944, 71 árs. 7. Magnús Kristjánsson, fæddur 1875, smið- ur og rithöfundur, dó í apríl 1963, 87 ára. Mynd 3. Magnús Kristjáns- son (1875-1963), meðhjálpari, smiður, sveitar- stjórnarmaður og rithöfundur. 49