Saga Reykjavíkur Borgin 1940-1990 Eggert Þór Bernharðsson sagnfræð- ingur gerir öllum helstu þáttum borgarlífsins skil á mjög aðgengi- legan og skemmtilegan hátt, í tveim viðamiklum bindum um sögu Reykjavíkur 1940-1990. Úr hafsjó heimilda og fróðleiks um atburði, menn og málefni nýliðinna ára- tuga er varpað ljósi á þá lifandi þróun sem borgarbúar eru stöðugt virkir þátttakendur í. Þetta er hluti 6 binda ritraðar sem samin er að frum- kvæði Reykjavíkurborgar. Þegar eru komin út 2 bindi eftir Guðjón Friðriksson sagnfræðing um sögu tímabilsins 1870-1940. IÐUNN