Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 6

Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 6
Helga Kress Confessio turpissima Um skriftamál Ólafar ríku Loftsdóttur Mynd 1. Kona mangar til við myrkrahöfðingjann. Hún er í forboðinni stellingu, þ. e. ofan á, og sýnir það, að hún er gengin djöflinum á vald. ^^r^UMARlÐ 1981 var haldin í Skálholti norræn ráðstefna um hagi og stöðu kvenna á miðöldum.* Þar flutti Magnús Stefánsson, sagnfræðingur við Há- skólann í Björgvin, fyrirlestur um svokölluð skriftamál Ólafar ríku. Skriftamálin eru mjög sérkennilegur texti, katólsk syndajátning, lögð konu í munn sem skriftar þar opinskátt fyrir sínum andlega föður, m.a. um kynlíf sitt. Þessi texti hefur varðveist í handriti frá ofanverðri 18. öld og hefur hingað til aðeins einu sinni verið gefinn út í heild, í VI. bindi íslensks fornbréfcisafns árið 1900. Þar er hann umsvifalaust, en innan hornklofa þó, eign- aður Ólöfu ríku Loftsdóttur (1410-79) og ársettur við dánarár hennar.1 Ólöf ríka er með frægustu konum Islandssögunnar, eiginkona Björns ríka Þorleifssonar sem Englending- ar drápu í Rifi á Snæfellsnesi 1467, en þau bjuggu miklu búi á Skarði á Skarðsströnd.2 Eins og konur hafa alltaf verið Fyrirlestur Magnúsar Stefánssonar birtist ekki í riti með fyrirlestrum ráðstefnunnar. í formála segja ritstjórar að hann hafi átt að birtast í Sögu 1982, „men dette er ikke blitt realisert enná.“3 Um meginefni hans má hins vegar lesa í viðtali við Magnús í Morgunblað- inu 12. júlí 1981.4 Þar segist hann hafa tekið fyrirlesturinn saman á vegunt kvennahreyf- ingarinnar og kvennasögurannsókna: „Saga kvenna verður auðvitað að koma frarn eins og saga okkar karlmannanna." Eins og flest önnur umfjöllun unt Ólöfu ríku byrjar viðtalið á tilvitnun í ummæli henn- ar þegar henni er fært sundurbrytjað lík mannsins síns í poka: „Eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði.“ Þetta telur Magnús vafasöm ummæli og bætir við: „En til er önn- ur og áþreifanlegri heimild unt Ólöfu Lopts- dóttur, sem ekki er síður merkileg fyrir nú- tímafólk. Það eru skriftamál þau sem henni eru eignuð." Athyglisvert er að hann efast um munnmælasöguna, en ekki um hina riluðu heimild. Þótt Ólöf sé „að vísu [...] ekki nefnd með nafni“ í skriftamálunum, telur Magnús ekki vafa á því „að þarna geti varla verið um aðra en Ólöfu Loptsdóttur að ræða“ og að þetta séu „einkaskriftamál" hennar. Einu rök hans fyrir því eru að „þarna sé voldug kona og auðug á ferð, sem hlýtur að vera getið í öðrum heimildum." Hann segist hafa velt því fyrir sér hvort þarna gæti verið um að ræða „fölsun frá seinni tímum“, en ekki getað fundið að svo væri: „Plaggið ber öll einkenni hins katólska skriftamáls." Skriftamálin tekur hann til vitnisburðar um líf kvenna, ekki ein- ungis á tíma Ólafar, heldur öllum tímum. „Konurnar voru þá alveg eins og þær eru í dag og hafa alltaf verið,“ segir Magnús. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.