Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 86

Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 86
✓ Aðalsteinn Arni Baldursson Erindi liðins tíma IHITA KJARAMÁLAUMRÆÐUNNAR hefur stundum verið haft á orði að tvær þjóðir byggi þetta land, önnur rík en hin fátæk. Það má líka greina á milli þeirra sem eiga sér vísindi og fræði að daglegu viðfangsefni og hinna sem standa utan fræðaheimsins og koma lítt að því starfi sem þar fer fram. Áætla má að viðhorfin séu eftir þessu mismunandi. Fagfólk á sviði sagnfræði og félagsvísinda hlýtur að hafa nokkuð aðra afstöðu til sagna- ritunar en við hin sem frekar komum að sög- unni sem áhugamáli eða jafnvel hreinni neysluvöru í mynd kauptilboða og rað- greiðslna. Það er ef til vill ástæða til þess að spyrja hvort sagan standi okkur svo nærri sem við viljum vera láta. Við erum gjörn á að tala um okkur sem „bókaþjóð“ og skírskotum til sögulegrar arfleifðar. Stundum er líka, því til áréttingar, hampað tilkomumikilli tölfræði um útgefna bókatitla á hvert mannsbarn. Allt segir þetta þó lítið um raunverulegan áhuga almennings á sagnfræði og viðleitni fræði- manna til að halda til haga heimildum um for- tíð okkar og koma henni á framfæri í aðgengi- legu formi bóka og tímarita. Hugsanlega væri frekar ástæða til að spyrja hvort áhugi fólks á íslenskri sögu og sagnfræði hafi ekki farið hraðminnkandi á liðnum árum og hvort sagn- fræðin hafi ekki einangrast sem afkimi innan þjóðmenningarinnar sem viðfangsefni fárra manna. Samkeppni fjölmiðla af öllu tagi um athygli fólks, ekki síst þeirra sem yngri eru, hefur farið stöðugt harðnandi á liðnum árum og framboð af afþreyingu er orðið áberandi. Eitthvað verður undan að láta og frá þessari vægðarlausu samkeppni komast ekki allir sem sigurvegarar. Verður það hlutskipti bók- arinnar og sögunnar að lúta í gras? Getum við ætlað að í þeim nútíma sem við lifum líti fólk til sögunnar sem áhugamáls og uppbyggilegr- ar afþreyingar á sama hátt og forðum? Sjálfsagt hættir okkur til nokkurrar bölsýni þegar við lítum til þeirra aðstæðna sem bókin og sagan eiga nú við að búa. Ég held samt að alls ótímabært sé að lýsa yfir andláti íslenskr- ar sagnfræði og ritmenningar. Þvert á móti sýnist mér mikil gróska vera í íslenskum fræð- um og menningu. Það eru ekki aðeins sagn- fræðingar og annað fagfólk í íslenskum fræða- heimi sem leitast við að tryggja hlut íslenskr- ar sögu og þjóðararfleifðar því almenningur virðist hafa engu minni áhuga en forðum á efni um sögu sína og menningu. Þannig hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki í vax- andi mæli axlað hluta þeirrar ábyrgðar að halda til haga þjóðarsögunni og heimildum um hana. Æviminningar skipa jafnan drjúgan hluta jólalesningarinnar og stórafmæli og önnur tímamót hafa orðið félagasamtökum og fyrirtækjum tilefni til að láta taka saman sögu sína til útgáfu. Það leynist saga í geng- inni ævi og löngu starfi. Almenningur deilir þeim áhuga með fræðimönnum að vilja skoða þá sögu og halda henni til haga. Bilið á milli fræðasamfélagsins og veruleikans þar fyrir utan er ef til vill ekki eins breitt og í fyrstu kann að sýnast og óbrúanlegt er það alls ekki. Ekki verður samt fram hjá því litið að ým- islegt skilur á milli fræðimannsins og leik- mannsins. Fræðimaðurinn þekkir viðfangs- efni sitt, veit hvar bera verður næst niður í rannsóknum, er vel að sér um notkun heim- ilda og býr yfir aðferðum sem gera honum mögulegt að lesa það úl úr gögnum sem okk- ur leikmönnum er hulið. Gjarnan hefur hann það líka í sínu valdi að ákveða hvað ber að rannsaka og skrifa um. Hann er dálítið eins og konungur í ríki sínu. Hlutirnir horfa öðru- 84
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.